17.12.1983
Efri deild: 37. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2057 í B-deild Alþingistíðinda. (1760)

50. mál, tímabundið vörugjald

Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Virðulegi forseti. Í tilefni af ummælum síðasta ræðumanns er alveg ljóst að ekki er hægt að taka upp till. sem þegar hefur verið felld. Það væri auðvitað hægt að flytja einhverja till. lítið eitt öðruvísi, en ég sé ekki að það sé neitt tilefni til þess.

Auðvitað er hægt að taka upp fjárlög hvenær sem Alþingi ætlar sér að gera það. Alþingi er æðsta vald og getur breytt sínum eigin ákvörðunum og ég fellst ekki á þau rök að það hafi ekki verið hægt að samþykkja brtt. mína þess vegna. Þetta er algerlega út í bláinn, en ég ætla ekki að fara að upphefja hér deilur um það. Ég tel mig með þessu hafa svarað spurningunni.

Ég er alveg sannfærður um að þessi lög verða tekin til endurskoðunar. Það felst í yfirlýsingum hæstv. fjmrh. að þeim verður breytt. Við erum nærri því allt árið um kring, af því að nú er þing farið að sitja meiri part ársins, að gera breytingar sem hafa áhrif á fjárlög. Það er þess vegna að mínu mati algerlega út í bláinn að það hefði ekki mátt samþykkja þessa till. En ég vona a.m.k. að það verði gerð breyting á þessum lögum og tollalögum almennt áður en árið er liðið, áður en það er hálfnað og meira að segja áður en fjórðungur þess er liðinn. Ég veit að það ætlar hæstv. ráðh. sér að gera. Hann er mikill ákafamaður og dugnaðarmaður og hefur gott starfslið. Ég treysti honum til þess að vera búinn að gera rækilega breytingu á þessum málum áður en þessi fjögurra mánaða frestur er liðinn.