17.12.1983
Neðri deild: 31. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2060 í B-deild Alþingistíðinda. (1773)
143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Ég tel að með þessari till. sé verið að fara fram á mjög óeðlilega atkvgr., því að aðeins í miðkaflanum, sem hv. þm. vill láta greiða atkv. um, er breyting gerð á greininni. Hitt eru allt saman atriði, sem eru þegar í frvgr. Þess vegna er eðlilegt að bera brtt. upp í heild í atkvgr. eða þá að skipta aðeins þeim köflum sem breytt er hér. Að öðru leyti held ég að ekki beri að fara að kröfu hv. þm.