17.12.1983
Neðri deild: 31. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2061 í B-deild Alþingistíðinda. (1778)
143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Ég vil vísa til þess sem Guðmundur H. Garðarsson hafði á orði áðan og ég vil enn fremur vísa til reynsluleysis míns á Alþingi. Ég gerði mér ekki grein fyrir því að það var verið að greiða atkv. einungis um 1. lið brtt. 242. (Forseti: Nei. Það er annað.) Ég veit að það er annað mál, en ég vil að það komi fram að ég styð að fiskveiðilandhelgi Íslands og auðlindirnar innan hennar séu þjóðareign, sameign allra Íslendinga. Ég vil gjarnan að það komi fram. (Forseti: Af þessu tilefni er sjálfsagt að þetta verði fært til bókar og atkvgr. breytt af því tilefni. Ég held að það sé ekki vandamál.) Já, ég misskildi að ... (Forseti: Það verður ekki vandamál af hálfu forseta.)