17.12.1983
Neðri deild: 31. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2061 í B-deild Alþingistíðinda. (1781)
143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Ég vil benda bæði flm. og hæstv. forseta á að það er ekki hægt að skilja þetta að. Falli fyrri mgr. er tómt mál að greiða atkv. um þá seinni þannig að spurningin er: Vilja menn þá ekki greiða atkv. um þá seinni? Ég vil biðja menn að hugsa sig aðeins um þegar þeir biðja um að slíta í sundur slíkar greinar. Seinni hluti greinarinnar er gagnslaus og út í hött að greiða atkv. um hann ef fyrri hlutinn fellur.
(Forseti: Forseti hafði ástæðu til að ætla að flm. skildi sjálfur sína till.)