17.12.1983
Neðri deild: 31. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2064 í B-deild Alþingistíðinda. (1792)
143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands
Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Í gildandi lögum um fiskveiðilandhelgi Íslands eru miklar og víðtækar heimildir fyrir sjútvrh., sem hafa æ síðan verið notaðar. Mér er ekki kappsmál að koma á kvótafyrirkomulagi, en eins og ástand og horfur eru er nauðsynlegt að taka upp slíkt ákvæði til eins árs. Ég hefði verið ófáanlegur til að greiða atkv. með frv. sem ætti að gilda lengur en nauðsynlegt er að þetta form verði tekið upp. Með tilliti til marggefinna yfirlýsinga hæstv. sjútvrh. um að hafa samráð við hagsmunasamtök í sjávarútvegi og samráð við sjávarútvegsnefndir Alþingis tel ég ekki aðra leið færa en að samþykkja þetta frv. og ég segi því já.