17.12.1983
Neðri deild: 31. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2064 í B-deild Alþingistíðinda. (1794)

143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Í ljósi þess að það er verið að leggja hér fram frv. til l. sem aðeins á að gilda í eitt ár og það kemur aftur fyrir þingið næsta haust, þannig að kostur gefist að sníða af þá agnúa sem vafalaust munu fylgja því að afsala jafnmiklu valdi frá þinginu og hér er verið að gera, en með skírskotun til hins alvarlega ástands sem nú er ríkjandi varðandi fiskstofnana segi ég já.