17.12.1983
Neðri deild: 31. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2065 í B-deild Alþingistíðinda. (1799)
143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Eitt er að vilja leyfisbinda allar veiðar og annað að lögskipa að það skuti líka gert á trillubátum. Svo langt gengur meiri hl. í þessum málum í þessum sal núna í atkvgr. að hann hefur ekki einu sinni fyrir því að lesa hvað í brtt. stendur. Ég trúi því ekki að það beri að gagnálykta þannig af þessari atkvgr. að hæstv. sjútvrh. hafi, ef till. okkar er felld, heimild til að setja aflamark á trillur og handfærabáta. Ég segi já við þessari till.