17.12.1983
Neðri deild: 31. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2066 í B-deild Alþingistíðinda. (1803)

143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Þegar samþykkt var að vísa þessu máli til 2. umr. gerðum við það ýmsir á þeim forsendum að hæstv. sjútvrh. mundi við upphaf 2. umr. svara þeim mörgu og ítarlegu spurningum sem til hans hafði verið beint í umr. Við gerðum það á þeim forsendum að hæstv. ráðh. mundi við upphaf 2. umr. svara þeim spurningum, en til að greiða fyrir störfum deildarinnar og framgangi málsins samþykktum við að málinu yrði vísað til 2. umr.

Hér í nótt og snemma morguns voru bornar fram til hæstv. sjútvrh. fjölmargar nýjar fsp. og fjölmargar af þeim fyrri fsp. sem hann hafði ekki svarað voru ítrekaðar hér sérstaklega. Hæstv. sjútvrh. svaraði þeim engu að síður ekki við lok þeirrar umr. (Iðnrh.: Þess vegna verður nauðsynlegt að fá aðra 3. umr.) Nú er ég að koma að því, hæstv. iðnrh. Ég sé að hæstv. iðnrh. er fljótari að skilja en ýmsir aðrir hér í deild.

Við lok umr. um kl. 6 í morgun greindi hv. þm. Svavar Gestsson, formaður Alþb., frá því að menn hefðu lokið umr. þá í trausti þess að þegar við upphaf 3. umr. mundi hæstv. sjútvrh. svara þeim fjölmörgu efnisspurningum, grundvallarspurningum, sem til hans hafði verið beint við 2. umr. Í trausti þess að hæstv. sjútvrh. efni nú það fyrirheit að svara þessum spurningum og eiga við þm. orðastað um þetta efni segi ég já við því að vísa þessu máli til 3. umr. og vænti þess að við upphaf hennar kveðji hæstv. sjútvrh. sér hljóðs og geri grein fyrir svörum sínum við þessum spurningum.