19.12.1983
Efri deild: 39. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2136 í B-deild Alþingistíðinda. (1832)

143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Það frv. sem við erum hér nú að ræða hefur þegar verið mikið rætt hér í þinginu þó stundum hafi verið við erfiðar aðstæður. Þegar hefur komið fram ýmisleg gagnrýni á efni þess og meðferð alla. Eitt af því sem hefur verið gagnrýnt er hversu seint þetta stóra mál er hér fram komið og hversu lítill tími gefst til að fjalla um það. Ég vil taka undir þessa gagnrýni. Á hún reyndar ekki aðeins við um afgreiðslu þessa eina máls heldur um öll þau stóru mál sem við höfum verið að afgreiða hér undanfarna daga án þess að hafa haft tækifæri til að kynna okkur þau eins og æskilegt væri. Slíkar vinnuaðferðir eru ekki vænlegar til árangurs og m.a. þess vegna er ég uggandi vegna þess máls sem við erum hér nú að fjalla um og snertir afkomu landsmanna allra á einn eða annan máta.

Hv. 4. þm. Vestf. lagði til hér áðan að afgreiðslu þessa máls yrði frestað fram yfir jólaleyfi þm. Styð ég þá till. eindregið. Ég tel það tvímælalaust æskilegt að þm. hafi meira svigrúm til að fjalla um málið en nú gefst.

Annað sem mjög hefur verið gagnrýnt varðandi þetta frv. er hversu mikið vald það færir í hendur eins manns. Undir þessa gagnrýni vil ég taka heils hugar, enda er það eitt af stefnumiðum Kvennalistans að draga úr miðstýringu hvar sem því verður við komið í þjóðfélaginu. Þetta frv. gengur í þveröfuga átt. Það safnar allri stjórnun fiskveiða í hendur sjútvrh. og heftir þannig stórkostlega það svigrúm og þau áhrif sem aðilum í sjávarútvegi er nauðsynlegt að hafa til að reka þessa mikilvægu atvinnugrein. Við okkur blasir mikill vandi og það er vandasamt verk að taka hann réttum og réttlátlegum tökum. Það verk tel ég að einn maður geti ekki unnið eftir sínum sjónarmiðum einum saman. Við verðum að reyna að tryggja að fram komi sjónarmið sem flestra og að þau hafi áhrif á lausn vandans.

Á hinn bóginn er enginn vafi á því að við bágborið núverandi ástand fiskstofna á Íslandsmiðum er stjórnunar þörf. Hjá því verður ekki komist að setja reglur um fiskveiðar í fiskveiðilandhelgi okkar. Það er hins vegar mikilvægt að við þá reglugerð gæti sem flestra sjónarmiða og að samhengi hlutanna sé vandlega skoðað. Einhvers konar kvótaskipting virðist nú vera ein af fáum færum leiðum til að hafa stjórn á sókn í fiskistofna og stemma stigu við ofveiði. Kvótaskipting er ekki endilega af hinu illa. Hún getur haft ýmsar jákvæðar hliðarverkanir. Hún gæti t.d. stuðlað að betri meðferð sjávarafla þar sem magnið er fyrir fram vitað en tekjurnar ráðast af gæðunum. Einnig gæti hún dregið úr tilkostnaði í sjávarútvegi ef hún leiddi til þess að hægt væri að koma á betri samræmingu í veiðum og vinnslu.

Við Kvennalistakonur erum því ekki mótfallnar því að þessi leið sé skoðuð, en mikið finnst mér samt skorta á að fullnægjandi upplýsingar sé að hafa um hvers konar kvótaskiptingu er verið að ræða um. Eins finnst mér skorta á það að svör hafi fengist við þeim mörgu spurningum sem þessu máli fylgja. Það er mér fullkomlega ljóst að kvótafyrirkomulag á veiðum er grundvallarbreyting frá núverandi fyrirkomulagi, ekki aðeins hvað varðar fjárhagslegan grunn fiskveiðanna heldur hvað varðar þær grundvallarhugmyndir sem veiðar og sjósókn byggjast á hér á landi. Víðátta hafsins er nú takmörkuð, fiskurinn er líka takmarkaður, veiðimennirnir geta ekki lengur markað sér stöðu með því að vera fisknir eða með því að vera aflaklær. Við kvótafyrirkomulag fara þeir aðeins og sækja skammtinn sinn. Það er ógerlegt að spá fyrir um hvaða áhrif þessar hugmyndabreytingar munu hafa. En þær munu hafa áhrif og á því vil ég vekja athygli.

Að lokum langar mig til að beina fáeinum spurningum til hæstv. sjútvrh. Það má vera að þær hafi þegar komið fram og að þeim hafi verið svarað og það farið fram hjá mér í önn dagsins, en það æti þá líka verið að þær hefðu farið fram hjá fleirum. Ég er mjög uggandi vegna þeirra áhrifa sem umrædd og eins og ég hef sagt nokkuð óljós kvótaskipting kann að hafa á atvinnu manna hér á landi, jafnt kvenna sem karla. Skv. fréttum í Morgunblaðinu 15. des. s.l. voru um 1200 manns atvinnulausir á 14 stöðum á Suður- og Vesturlandi. Fyrirsjáanlegt er að þær aðgerðir sem kunna að verða framkvæmdar á grundvelli þessa frv. gætu enn aukið á atvinnuleysi, bæði í þessum landshlutum og öðrum, og auk þess stuðlað að flutningi fólks á milli byggðarlaga, þar sem fyrirsjáanlegt er að atvinnumöguleikar innan byggðarlaga verði aðrir en nú er. Því langar mig til að spyrja hæstv. sjútvrh.:

1. Er einhverjar upplýsingar að hafa nú um skiptingu kvóta á milli byggðarlaga?

2. Hefur það þá verið kannað í rn. hvaða hliðarráðstafanir er hugsanlega hægt að gera í þeim byggðarlögum sem í hlut eiga?

3. Hefur verið kannað hvers konar byggðaröskun þessar aðgerðir gætu haft í för með sér og þá hvaða félagslegu afleiðingar aðrar af þeim kunna að hljótast?

Þetta eru stórar spurningar og þeim er ekki fljótsvarað. En ég tel ákaflega mikilvægt að einhverjar upplýsingar hér um komi fram við þessa umr. hér í hv. deild.

Að endingu vil ég hvetja til þess að menn gefi sér meiri tíma til að fjalla um þetta mál en nú er ráð fyrir gert og að menn reyni til fullnustu að ná samkomulagi um efni þess. Ég vil einnig benda á að aðrar þjóðir hafa margvíslega reynslu af aflaskiptingarkerfum ýmiss konar og að sú reynsla er til skjalfest. Ég tel það miklu skipta að menn leiti sér fanga sem víðast um lausn mála en til þess þurfa menn að hafa meiri tíma en hér er nú til ráðstöfunar.