19.12.1983
Efri deild: 39. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2139 í B-deild Alþingistíðinda. (1834)
143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands
Egill Jónsson:
Herra forseti. Það er víst óhætt að viðhafa það ávarp að þessu sinni. Nú er búið að fjalla um þessi mál nokkuð efnislega og draga fram rök og gagnrök og ætla ég þess vegna ekki að fara yfir það málasvið. Ég kemst hins vegar ekki hjá því að fara hér örfáum orðum um vinnutilhögun varðandi þessa lagasetningu.
Ég minni á og undirstrika viðleitni hæstv. sjútvrh. sem hann viðhafði með því að kynna þetta mál fyrir sjútvn. beggja deilda. A.m.k. einn fundur var haldinn í hans rn. og annar hér síðar í hádeginu og er þetta að sjálfsögðu þakkarverð viðleitni af hendi hæstv. sjútvrh. til að miðla upplýsingum og koma fram skoðunum og sjónarmiðum áður en málið kom til meðferðar á Alþingi.
Ég minni líka á að hér fóru fram nefndarstörf með sameiginlegum fundum beggja þingnefnda. Það var að sjálfsögðu líka gagnleg ráðstöfun til að flýta fyrir umfjöllun og kynna málið þegar það kom til umr. á Alþingi. Nú er hins vegar komin röðin að Ed. Alþingis, þeim þm. sem skipa þessa virðulegu deild og þeim alþm. sem hafa tekið við þeim trúnaði að starfa í sjútvn. Ed. Alþingis. Í þeirri nefnd hefur í raun enginn fundur enn þá verið haldinn um þetta mál. Að því er mér virðist á að afgreiða það samt hér í kvöld. Þó er búið að boða þingflokksfund hjá þingflokki Sjálfstfl. og búið að boða fund í Sþ. Þetta er þá væntanlega tíminn sem þessari nefnd, sjútvn. Ed. Alþingis, er ættaður til að fjatla um og taka ákvarðanir í þessu máli. Má þá hver sjá hvað það eru trúverðug vinnubrögð.
Ég hef lagt fram ósk á óformlegum fundi sjútvn. Ed. Alþingis sem haldinn var í morgun um grundvallaratriði í þessum málum. Ég geri mér ljóst að ekki er hægt að ætlast til að farið verði að rekja fyrir nefnd eða á Alþingi hvernig hinir einstöku framleiðslukvótar í sjávarútvegi verða eftir þessa lagasetningu. Nú hygg ég að fyrir liggi að Fiskifélag Íslands sé búið að setja upp slíka kvóta. En það er alveg augljóst mál að sú skipting þarf vandlegs undirbúnings við og augljóst að um hana sem slíka þurfa að fara fram fleiri en ein umr. á milli hinna einstöku hagsmunaaðila. Hins vegar eru viss atriði í þessu máli sem eru það víðtæk og þýðingarmikil að við þeim verða að fást svör.
Ég hef vísað í þessu sambandi til þess rökstuðnings sem ég er nú æðivel kunnugur, þ.e. um kvótauppsetningu í landbúnaði. Þó að það sé annar atvinnuvegur og kannske ekki alveg sambærilegt er ég þó alveg sannfærður um að ef menn hefðu verið búnir að vinna betur bakgrunninn að þeirri kvótauppsetningu hefði t.d. ekki verið notuð þriggja ára viðmiðun. Þriggja ára viðmiðunin í landbúnaði er ákaflega hæpin miðað við það hvernig framleiðslumál höfðu skipast síðasta áratug. Í sumum byggðarlögum hafði framleiðsla í landbúnaði aukist mikið, í öðrum hafði hún dregist saman og auðvitað hafði þarna gerst margt á milli, en það voru þessi þrjú ár sem voru látin ráða. Og hér á að hafa þetta eins. Hér á að miða við þrjú ár án þess að litið sé til þeirra breytinga sem hafa orðið á síðasta áratug t.d. Ég tel annað útilokað en að menn geri sér grein fyrir hvort þessi viðmiðun felur í sér breytingar eða tilfærslur á milli byggðarlaganna á þeim framleiðsluverðmætum sem þar hefur verið aflað.
Í öðru lagi og í beinu framhaldi af þessu hljóta líka að verða að liggja fyrir alveg fullar skýringar á því með hvaða hætti aðrar fiskveiðiheimildir, í síld, humri, rækju og loðnu koma til með að hafa áhrif á úthlutun veiðileyfa í t.d. þorskstofninn. Það eru svona grundvallarspurningar sem Alþingi, þingnefndir og einstakir alþm. eiga fullan rétt á að fá svör við.
Herra forseti. Ég vil að lokum vekja athygli á því sem kom fram í sjútvn. Ed. á fundi hennar í morgun. Þar kom fram hjá held ég öllum fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna að mikill vilji væri hjá þeim að komast að sameiginlegri niðurstöðu í þessu máli. Hvernig til tekst með framgang þessa máls veltur verulega á því hvernig samstaða næst um það hér á Alþingi. Auðvitað er oft nauðsynlegt fyrir ríkisstj. að beita sínum þingmeirihluta þegar hún telur sig geta lagt við hann að eigin vild en í því þarf ekki alltaf að felast mesti styrkurinn. Í málum sem þessum er mesti styrkurinn í því fólginn að ná um málið sæmilegri og þolanlegri samstöðu. Þess vegna met ég mikils það sem kom fram frá fulltrúum stjórnarandstöðunnar á þingfundi í morgun og ekki hvarflar að mér að neinar meiningar séu þar á bak við aðrar en þær að leitast við að ná fram sameiginlegri niðurstöðu í þessu máli. Kannske er það mesta óhappið í þessu, ef um óhapp er hægt að tala, að málið skyldi ekki fyrst fara af stað í þessari deild og verða unnið í sjútvn. Ed. Alþingis. Þá hefði m.a. ekki þetta sjónarspil átt sér stað í Nd. sem menn kalla málþóf. (TÁ: Það er ómögulegt að segja.) Ekki trúi ég því að hv. 4. þm. Austurl. hefði farið að standa að málþófi í þessari deild þó að hann sé til alls vís.
En ég hef sett fram mín sjónarmið. Ég legg mikla áherslu á að við þeim spurningum sem ég hef sett hér fram fáist svör og þá er sjálfsagt að sjá til með framhaldið.