19.12.1983
Neðri deild: 33. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2149 í B-deild Alþingistíðinda. (1847)
Um þingsköp
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Það er út af fyrir sig ekkert á móti því að ræða þetta mál eins fljótt og kostur er. En ég hygg að fullyrða megi að við 1. umr. verði miklar umr. um málið. Mér hefur ekki sýnst að nein tök væru á því að koma þeim viðræðum við og ljúka þeim fyrir þingfrestun. Þess vegna hefur það verð látið mæta afgangi.