19.12.1983
Neðri deild: 33. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2156 í B-deild Alþingistíðinda. (1861)
Um þingsköp
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Þessi umr. er kannske komin aðeins út fyrir það sem heita má þingsköp, en það er eðlilegt að menn ræði margt þegar kjördæmamálið ber á góma. M.a. hafa menn rætt nokkuð um yfirlýsingu sem kemur fram í grg. með frv. til l. um breytingu á kosningalögunum. Í þeirri yfirlýsingu er gert ráð fyrir alhliða átaki til jöfnunar lífskjaranna í landinu. Hv. þm. Framsfl., hv. þm. Stefán Valgeirsson og hv. þm. Ólafur Þórðarson, hafa spurt að því hvað hafi verið gert til að standa við þá yfirlýsingu sem þar um ræðir og þar kemur fram. Það er athyglisvert að þeir skuli spyrja stjórnarandstöðuna um þetta, en ekki hæstv. forsrh. Það kemur auðvitað engum á óvart þó að þeir séu orðnir lúnir á því að spyrja hæstv. forsrh., hv. þm. Stefán Valgeirsson og hv. þm. Ólafur Þórðarson, og þekkja menn þá sögu gjörla og verður hún ekki rakin hér þó margt beri við í umr. um þingsköp. En það sem gert hefur verið í þessu efni m.a. af hálfu stjórnarandstöðunnar, a.m.k. þar sem um Alþb. er að ræða, er það að við höfum ítrekað lagt til að gripið verði til sérstakra aðgerða til jöfnunar húshitunarkostnaðar. Þegar við fórum með stjórnarmyndunar umboð í vor var þetta mál mjög á dagskrá af okkar hálfu og við 2. umr. fjárlaga nú lögðum við til að gripið yrði til sérstakra aðgerða í þessu skyni. Sú till. var felld af stjórnarliðinu, m.a. ef ég man rétt af hv. þm. Stefáni Valgeirssyni, hv. þm. Ólafi Þórðarsyni, hæstv. forsrh. og öllu því liði sem nú gengur hér fram og þykist vilja berja sér á brjóst sem sérstakir talsmenn landsbyggðarinnar. Það eru þessir menn sem hafa brugðist.