19.12.1983
Neðri deild: 34. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2157 í B-deild Alþingistíðinda. (1870)
50. mál, tímabundið vörugjald
Frsm. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Fjh.- og viðskn. Nd. hefur tekið til meðferðar frv. til l. um breyt. á lögum nr. 107 frá 30. des. 1978, um sérstakt tímabundið vörugjald, með síðari breytingum. Nefndin hefur fjallað um frv. og aflað ýmissa upplýsinga um gjald þetta. Nefndin mælir með samþykkt frv., en einstakir nm. áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja brtt. við málið.
Ég verð að vekja athygli á því, að því miður er þetta nál. ekki nógu vel úr garði gert. Það eru undirskriftir hér sem ekki eiga að vera. Ég sé hér nafn hv. þm. Eyjólfs K. Jónssonar. Það er fyrir mistök á þessu þskj. Hann fjallaði hins vegar um þetta mál í Ed. og undirritaði þar nál. Það vantar á handritið nafn Guðmundar Einarssonar og nafn Guðmundar H. Garðarssonar, Ég vek athygli deildarinnar á þessu.