19.12.1983
Neðri deild: 34. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2158 í B-deild Alþingistíðinda. (1874)

147. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Hér er til umr. sérstakur skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði, sem hefur nú verið hér árviss í nokkur undanfarin ár. Í því frv. til breytinga á lögum sem hér liggur fyrir er gert ráð fyrir verulegri lækkun á þessum skatti. Nú hefur það gerst að verulegar álögur hafa verið lagðar á launafólkið í landinu, miklir fjármunir fluttir til atvinnurekstrarins í landinu og það liggur fyrir að afkoma verslunar virðist vera nokkuð góð um þessar mundir, þannig að það verður varla talin ástæða til þess núna og við þessar aðstæður að lækka þennan skatt. Ef vísað er til þess hversu mjög er lagt á launþegana í landinu, ef vísað er til þess að verslunin stendur tiltölulega vel virðist ekki vera aðstaða né heldur rétt eða sanngjarnt að lækka þennan skatt.

Hv. þm. minnast þess væntanlega líka að mörg undanfarin ár hefur það gerst um þetta leyti að Verslunarráðið ritar mönnum bréf þar sem farið er fram á að þessi skattur verði lagður niður eða minnkaður. Nú er það til marks um góðan hag verslunarinnar að ekkert bréf hefur borist um þessi jól, þannig að Verslunarráðið virðist una skattinum nokkuð vel um þessar mundir og því ekki ástæða til að ætla annað en það muni taka því vel og fagnandi að þessi skattur haldi áfram í sama fari og verið hefur. Í samræmi við þetta höfum við þm., auk mín Svavar Gestsson, Guðmundur Einarsson og Guðrún Agnarsdóttir, flutt till. um að skattprósentan verði óbreytt, þ.e. 1.4% af skattstofninum.