19.12.1983
Sameinað þing: 34. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2199 í B-deild Alþingistíðinda. (1893)

1. mál, fjárlög 1984

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég vil fyrst gera grein fyrir fáeinum brtt. nokkurra þm. Alþb. við fjárlagafrv. eins og það nú liggur fyrir á þskj. 281. Þar endurflytjum við í fyrsta lagi till. um að hækka lítillega framlag til Námsgagnastofnunar eða um 2 millj. kr. frá því sem um er að ræða í fjárlagafrv. eins og það lítur út eftir 2. umr. Í annan stað erum við með tillögu um sérstakt framlag til sérkennslugagna upp á 1 millj. kr. Við fluttum þessar tillögur við 2. umr., en drógum til baka til 3. umr. í trausti þess að við fengjum einhverjar undirtektir við að sérmerkja handa Námsgagnastofnun litla upphæð í sérkennslugögn. En undir það hefur því miður ekki verið tekið í hv. fjvn. og þess vegna er þessi till. endurflutt.

Þá flytjum við í öðru lagi till. um að hækka framlag til Blindrabókasafnsins um heil 200 þús. Blindrabókasafnið fór fram á að fá 1 millj. kr. í gjaldfærðan stofnkostnað, þ.e. til þess að koma sér á laggirnar. Þessi stofnun er tiltölulega ný og býr við mjög þröngan kost. Ég tel að stjórnarliðið mætti gjarnan líta betur til þessarar stofnunar en gert hefur verið og athuga að sú beiðni sem Blindrabókasafnið lagði fram var í rauninni mjög hógvær og greinilega sett fram að vandlega yfirveguðu máli en ekki til að prútta við fjmrn. eins og oft er gert af stofnunum. Lagðar eru fram tillögur og óskir og síðan er hugmyndin á bak við þær iðulega sú að taka um málið snerru fyrst við fagrn. og svo við fjmrn. En hér er bersýnilega um að ræða till. sem er mjög vandlega undirbyggð og þannig hugsuð að ekki sé verið að fara fram á eyri umfram það sem þessi stofnun brýnast þarf.

Þó að það sé ekki mikil upphæð sem hér er farið fram á sýnist mér að rekstur Blindrabókasafnsins sé ekki tryggður með öðrum hætti en þeim að upphæðin verði hækkuð upp í 1 millj. kr. Ég vil segja við þá fjmrn.menn sem hér sitja — að vísu utan salar sumir — að ég er sannfærður um að þessi upphæð dugir ekki eins og þeir eru með þetta í fjárlagafrv. fyrir Blindrabókasafnið á næsta ári. Það verður að bæta þarna einhverju við.

Stofnunin kemst í strand á miðju næsta ári eða svo ef ekki verður bætt þarna örlitlu við.

Ég heiti á hæstv. fjmrh. og formann fjvn. að skoða þetta af vinsemd vegna þess að ég held að beiðni Blindrabókasafnsins hafi verið afskaplega vel unnin og ígrunduð af hálfu þess fólks sem hana vann, en undir beiðnina rituðu, ef ég man rétt, Helga Ólafsdóttir og Halldór Rafnar. Ég satt að segja þekki hvernig þetta fólk vinnur og hefur unnið á liðnum árum og ég veit að það er ekki að gera stærri kröfur á hendur íslenska ríkinu en brýnast þarf til að unnt sé að halda þarna uppi sæmilegri starfsemi.

Í þriðja lagi, herra forseti, flytjum við svo tillögu um að veita nokkurt fé í fyrirhleðslur vegna hamfarahættu á skeiðarársandi gegn mótframlagi allt að 50% frá Viðlagatryggingu Íslands upp á 3.9 millj. kr. Hér er um að ræða endurflutning á till. frá fyrri umr. sem þó hefur lækkað nokkuð frá því sem var við 2. umr. í trausti þess að litið verði á málið með meiri skilningi nú. Mun hv. þm. Hjörleifur Guttormsson gera nánari grein fyrir þessari till. hér á eftir.

Þá vil ég geta þess að ég mun fyrir mitt leyti styðja till. um Lánasjóð ísl. námsmanna sem er flutt af Kristínu Halldórsdóttur og öðrum þm. Kvennalistans og einnig till. um Framkvæmdasjóð fatlaðra sem er flutt af hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur og Helga Seljan.

Ég tel að út af fyrir sig hafi hv. fjvn. komið nokkuð til móts við þær óskir sem uppi hafa verið um fjármuni til að efla fræðslustarfsemi vegna ávana- og fíkniefna. Ég tel þó að í raun og veru sé mjög skammt gengið í því efni. Gert er ráð fyrir því að verja í þessu skyni sérstaklega 1 millj. kr. á fjárlögum ársins 1984 og það verði undir fjmrn. Mér finnst nú satt að segja að kannske sé út af fyrir sig ekki óeðlilegt að hafa þetta undir fjmrn. en ég minni á að í till. sem ég og fleiri þm. Alþb. fluttum við 2. umr. málsins var gert ráð fyrir að þessum fjármunum yrði varið í samráði við heilbrigðisog trygginganefndir þingsins.

Ég vil skora á hæstv. heilbr.- og trmrh., sem hér er, og hæstv. fjmrh. að velta því fyrir sér hvort ekki væri rétt að reyna að fá heilbrigðis- og trygginganefndir þingsins til átaks í þessu efni, þ.e. fræðsluátaks og forvarnarstarfs vegna ávana- og fíkniefna. Ég held að mjög gott væri fyrir þingheim og þingnefndir að kynnast því starfi sem unnið er í rn. í sambandi við þessi mál. Það er talsvert unnið þar. Oft fer ekki mikið fyrir því sem best er gert í þeim efnum og ég held þess vegna að fengur væri að því að tengja heilbrigðis- og trygginganefndirnar við þá starfsemi sem fram fer í rn., bæði í heilbrrn. og ekki síður í dómsmrn. Ég held að nefndunum væri hollt að kynnast þessum verkum þannig að líka yrði þá kannske auðveldara að undirbúa tillögugerð um fjárveitingar í þessu skyni á árinu 1985.

Nú er það þannig að í fjárlögum er þó nokkur upphæð í þessu skyni á ári hverju. T.d. er veitt úr gæsluvistarsjóði í sambandi við fræðslustarf vegna ávana- og fíkniefna og vegna áfengismála líka þannig að margt er þarna gert sem ég hygg að þm. hafi ekki fengið kost á að vita nægilega vel um. En ég held að mjög nauðsynlegt væri fyrir þá að kynna sér þetta til að þeir geti grundað sem best sinn tillöguflutning því að ég hef orðið var við að hjá hv. þm. er mikill áhugi á því að gera í þessum efnum átak.

Herra forseti. Ég vil þá aðeins víkja hér að einni till.

frá hv. fjvn., trúi ég; en hún er um Framkvæmdasjóð aldraðra. Ég hef tekið vel í það fyrir mitt leyti að hjálpa til við að gjaldið í Framkvæmdasjóð aldraðra verði hækkað, eins og hæstv. heilbrrh. hefur hér lagt til. Þörfin er brýn og eðlilegt að standa þannig að málum að reyna að tryggja sjóðnum sem besta stöðu gagnvart þeim miklu verkefnum sem hann á að sinna.

Ég vil hins vegar í þessu efni spyrja hæstv. heilbr.- og trmrh. og hæstv. fjmrh.: Hvaða hugmyndir hafa þeir um framlag til B-álmu Borgarspítalans á næsta ári úr þessum Framkvæmdasjóði aldraðra? Það er vafalaust erfitt fyrir þá báða að tiltaka upphæð nákvæmlega vegna þess að þeir þurfa að líta þarna á ýmis önnur verkefni sem kostuð verða sameiginlega af ríki og sveitarfélögum.

Mér er það mikið kappsmál að vita þetta með B-álmu Borgarspítalans vegna þess að hér er um að ræða stórt og mikilvægt verkefni sem er nauðsynlegt að verði unnið að áfram. Menn þekkja þær áskoranir og bréfaskriftir sem til okkar hafa komið í þessu efni núna að undanförnu. Ég hafði látið mér koma til hugar að vegna þess hve hér er um stóra tölu að ræða gæti verið skynsamlegt að fjárveitingin til B-álmunnar yrði sérmerkt í fjárlögum ársins 1984, þ.e. tekið yrði fram sérstaklega undir liðnum Framkvæmdasjóður aldraðra að þar af ætti að fara til B-álmu Borgarspítalans svo og svo stór upphæð.

Nú eru á þessari hugmynd nokkrir meinbugir vegna þess að það er Framkvæmdasjóður aldraðra eða stjórn hans sem á að úthluta þessu fé lögum samkvæmt eða gera till. um úthlutun ráðh. Þannig er það í lögunum. Hins vegar varð ég á s.l. vetri var við að hv. alþm. höfðu áhuga á að vita hvernig Framkvæmdasjóðnum væri varið og þessi upphæð til B-álmunnar var þeim sérstakur ásteytingarsteinn. Ég var gagnrýndur mjög harðlega af ýmsum hv. þm. fyrir að stuðla að því að svo mikið fé fór til B-álmunnar. Og ég verð að segja eins og er að ég hygg að betra væri fyrir hæstv. heilbr.- og trmrh. ef fyrir lægi nokkurn veginn þegar við afgreiðslu fjárlaga hvað hann hugsaði sér í þessu efni jafnvel þó að sjóðsstjórnin væri ekki búin að ákveða úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra í einstökum atriðum.

Nú er það þannig að tvær hæðir af B-álmunni eru þegar tilbúnar og hafa verið teknar í notkun. Unnt er að taka stærri hluta B-átmunnar í notkun á árinu 1984. Ég tók eftir því í dag í framsöguræðu hv. formanns fjvn. að hann greindi frá því að tekin hefði verið inn upphæð í brtt. fjvn. um rekstur á nýjum daggjaldaspítölum. Ég vildi leyfa mér að spyrja hæstv. heilbr.- og trmrh. í framhaldi af því hvaða ný pláss á daggjaldaspítölum verða tekin í notkun á árinu 1984 samkvæmt þeirri tölu sem formaður fjvn. greindi frá í ræðu sinni í dag að gert væri ráð fyrir í slíka nýstarfsemi á næsta ári. Ég man ekki alveg hver talan var en fróðlegt væri að vita hvaða hugmyndir heilbrrn. er með um nýstarfsemi á daggjaldaspítölum á næsta ári. Ég geri ráð fyrir að B-álman sé þar inni en fróðlegt væri að vita hvaða fleiri stofnanir eru þar á blaði.

Varðandi fjárlagafrv. almennt, herra forseti, vildi ég víkja að nokkrum atriðum sem mér finnst að hafi komið fram í umr. í dag og að undanförnu reyndar líka og skipta ákaflega miklu máli. Í fyrsta lagi vil ég benda á að í fjárlagafrv. eins og það lítur út núna er gert ráð fyrir að launahækkanir milli ára verði mun minni en gert var ráð fyrir við umr. fjárl. Talað er um 4% í þessu sambandi og launaútgjöld fjárlaganna eða fjárlagafrv. hafa verið færð niður í samræmi við það. Þrátt fyrir þá launaniðurfærslu sem hér um ræðir er gert ráð fyrir að verðlagshækkanir séu þær sömu á árinu 1984 og áður var gert ráð fyrir. Þetta þýðir ekkert annað en að í verðlagsforsendum fjárlagafrv. er gert ráð fyrir meiri gengisbreytingu en áður var gert ráð fyrir vegna þess að annars hlyti verðlagstalan að hafa lækkað. Ég vek athygli á þessu hér ekki síst vegna þess að ég hef nokkrum sinnum vakið athygli á gengisstöðunni núna um áramótin hér úr þessum ræðustól og mér sýnist að fjmrn. og fjvn. viðurkenni að nauðsynlegt er að láta eiga sér stað á árinu 1984 meiri gengisaðlögun en áður var gert ráð fyrir í fjárlagafrv. Þetta er mjög stórt atriði varðandi almenna efnahagsmálastefnu á árinu 1984 og það er nauðsynlegt fyrir alþm. að átta sig á þessu. Hér er verið að boða það af hæstv. ríkisstj. að hverfa frá þeirri fastgengisstefnu sem hún hefur fylgt og taka í staðinn upp stefnu þar sem reynt yrði að aðlaga gengið þeim kostnaðarbreytingum sem orðið hafa innanlands og þeim breytingum sem orðið hafa á gengi samkeppnisgjaldmiðla okkar. Ég tel að þetta sé eitt stærsta málið í fjárlagafrv. eins og það stendur núna, að ríkisstj. skuli þannig hafa viðurkennt að þörf sé á meiri gengisaðlögun á næsta ári en gert hefur verið ráð fyrir.

Í öðru lagi, herra forseti, vil ég vekja athygli á því að í fjárlagafrv. er gert ráð fyrir að vísitölutengdur tekjuliður eins og bensíngjaldið hækki um 44.4% milli ára meðan laun eiga að hækka um 13%. Það er fróðlegt í þessu sambandi fyrir hæstv. samgrh. að þegar brtt. fjvn. eru kynntar er því lýst yfir að nú eigi Vegasjóður að fá 50% af tekjum af bensíni á næsta ári. Þykja mikil tíðindi að þessu skuli nú vera lýst yfir og hæstv. samgrh. hafi í Vegasjóði öll þessi 50% og þetta sé þá væntanlega einhver breyting frá því sem verið hefur og hækkun mundu margir telja. En þegar málið er skoðað, eins og hv. þm. Geir Gunnarsson greindi frá hér í dag, kemur í ljós að hér er um að ræða lækkun frá árinu 1983. Samkv. þeim upplýsingum sem fram komu hjá hv. þm. Geir Gunnarssyni í dag eru greidd í Vegasjóð af tekjum af bensíni 52.6% á þessu ári, en ríkisstj. gerir ráð fyrir því af örlæti sínu að verja í þessu skyni á næsta ári 50% af tekjum af bensíni. Hér skakkar nokkrum tugum millj. kr. sem verið er að taka þarna inn í ríkissjóð aukalega þrátt fyrir stórfelldar yfirlýsingar núv. ríkisstj. um að hún sé alveg sérstakur vinur vegalagningar í landinu, hún sé mikil vegalagningar- og vegagerðar- ríkisstj. Það er nú eitthvað annað þegar þetta er skoðað. Það á að hramsa þarna meira í ríkissjóð en verið hefur samkv. þeim upplýsingum, sem hér komu fram í dag frá hv. þm. Geir Gunnarssyni.

En svo vantar ekki dýrðina heldur þegar hæstv. ríkisstj. er að hrósa sér af því að ekki eigi að hækka taxta opinberra stofnana á næsta ári og sjónvarpið étur upp í bak og fyrir í fréttunum í kvöld og útvarpið líka að ríkisstj. sé nú orðin svo almennileg við fólkið í landinu að það eigi ekkert að hækka taxtana á næsta ári. Og hvernig ætli standi á því? Það stendur auðvitað þannig á því að það er búið að hækka taxta þessara stofnana svo rosalega að undanförnu, langt umfram launin, að þær verða bersýnilega í vandræðum með að koma sínum peningum í nóg á næsta ári.

Gleggsta dæmið um þetta er Póstur og sími, sem hefur fengið 47.5% hækkun á sínum töxtum á meðan kaupið hækkar um 13%. Þessa miklu hækkun á töxtum Pósts og síma á síðan að nota til að auka framkvæmdafé stofnunarinnar um 38% frá því sem er á árinu 1983. Það er ekki kreppusniðið á þessari eftirlætisstofnun ríkisstj., Pósti og síma. Það á að stórauka þar framkvæmdir á sama tíma og verið er að skera niður í svo að segja allri félagslegri þjónustu. Það er auðvitað vegna þess að hæstv. samgrh. hefur tryggt að stofnunin hefur fengið svo miklar gjaldskrárhækkanir að hún er blátt áfram að springa af þeim gagnvart þeim litlu launalækkunum sem hafa átt sér stað. Þess vegna er það svo, að það er 38% aukning í framkvæmdafé þessarar stofnunar. Og mér finnst það varla þakkandi að ríkisstj. skuli ekki taka viðbótarhækkanir handa Pósti og síma til þess að stofnunin geti framkvæmt enn þá meira á árinu 1984 en gert er ráð fyrir að óbreyttum töxtum.

Það er einnig fróðlegt í þessu sambandi að skoða ýmsar fleiri opinberar stofnanir. Ríkisútvarpið hækkar sína taxta um 117% meðan kaupið hækkar um 43%. Það er ekki verið að kreppa að þeirri stofnun heldur.

Ég held að nauðsynlegt sé að menn átti sig á því að það sem er að eiga sér stað er að ríkisstj. er búin að heimila svo rosalegar hækkanir hjá opinberum stofnunum að ekki einu sinni hún þorir að láta hækka þar meira á næsta ári vegna þess að stofnanirnar hafa ekki með neitt meira að gera. Það var orðið hreint blygðunarefni í fjvn., að þegar talsmenn þessara stofnana komu á fundi hennar og gerðu grein fyrir fjárhag stofnananna var afgangurinn þvílíkur að annað eins hafði ekki sést þar um langt árabil. Þá var búið að rústa svoleiðis kaupið í landinu að stofnanirnar urðu að stórhækka sitt framkvæmdafé frá því sem áður hafði verið. Þetta er, herra forseti, annað megineinkenni fjárlagafrv. að mínu mati. Það er að þessar stofnanir eru látnar hlaða upp fjármunum og styrkja sína stöðu stórkostlega meðan öll félagsleg þjónusta í landinu að öðru leyti er látin setja niður.

Þriðja megineinkennið á þessu fjárlagafrv. er svo hallinn á fjárl. á næsta ári. Það er talað um að hann sé 375–380 millj. kr. Ég vil spyrja hæstv. fjmrh.: Hvað er langt síðan fjárlög hafa verið afgreidd með slíkum halla og hvenær var það, hver var þá fjmrh. og úr hvaða flokki var hann? Þetta er einföld spurning fyrir þá í fjmrn. að fletta upp. Þeir geta jafnvel séð þetta í Hagtölum mánaðarins, ef taflan þar nær inn í fjmrh.-tíð Matthíasar Á. Mathiesen. Ég held að það séu enn þá síðustu ár hans fjmrh.-veldis í Hagtölunum, ef ég man rétt.

En auk þess að hallinn á fjárl. er upp á 375 millj. kr. er bersýnilegt að þar er um að ræða viðbótarvanda upp á fleiri hundruð millj. kr. Það er ekki gert ráð fyrir neinum vaxtagreiðslum af yfirdrætti ríkissjóðs hjá Seðlabankanum núna um áramótin, sem er þó upp á 1100 millj. kr. Á enga vexti að borga af þessu? Ætlar Jóhannes að hafa þetta vaxtalaust? Hvað eru háir vextir af yfirdrætti ríkissjóðs hjá Seðlabankanum um næstu áramót? Fær Albert, hæstv. fjmrh., þetta vaxtalaust? — og Jóhannes: Hverjir verða vextirnir og af hverju er ekki gert ráð fyrir þeim hér í þessu fjárlagafrv., sem hlýtur auðvitað að skekkja þetta dæmi upp á fleiri tugi millj. kr.?

Hvað er með Atvinnuleysistryggingasjóð? Þar vantar bersýnilega 30 millj. kr. til þess að sjóðurinn geti staðið við lágmarksskuldbindingar sínar án þess að komi til atvinnuleysis í rauninni. Það eru skuldbindingar Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna eftirlauna aldraðra. Það er bersýnilegt að 30 millj. vantar upp á það. Hver á að borga það? Samkvæmt lögum er það ríkissjóður sem á að standa undir þessu. Hvar á að taka þá peninga? Þarna er 30 millj. kr. gat.

Þá er að geta um stjfrv. eitt sem liggur fyrir hv. Alþingi. Ég veit ekki til þess að það eigi að afgreiða núna fyrir jólin að vísu. Það er frv. um húsnæðismál. Kannske hæstv. félmrh. vildi segja okkur frá því hvar það liggur núna í þingsölunum, afvelta einhvers staðar í nefndum og sent til umsagnar um allt land, norður á Melrakkasléttu og víðar og víðar, sem lengst virðist vera, af formanni Sjálfstfl., formanni félmn. Nd. Hvar er það frv.? Það gerir ráð fyrir 240 millj. kr. á næsta ári í húsnæðismál. Það er ekki fimmkall í fjárlagafrv. í það. Eiga menn að byggja hús úr lögum, úr bréfum, pappírum, eða hvað? Hvar eru þeir peningar?

Svo kom hér hæstv. iðnrh. í kvöld með yfirlýsingar um að nú ætti aldeilis að gera vel við þá sem eru að sligast undir of háum orkureikningum vegna húshitunar. Hann ætlar að flytja frv. strax eftir áramótin, bara strax eftir áramótin! Hann gat þess hins vegar ekki hvernig ætti að kosta þær breytingar sem það frv. hefði í för með sér. Hvað kosta þær breytingar og hvað mega þær kosta? Verður að afla til þess nýrra skatta? Þetta er sýnilegt. Ég sé hvergi að það sé afgangur í þessu fjárlagafrv. Alberts Guðmundssonar til að kosta aukið átak til að borga niður húshitunarkostnaðinn í landinu. Eiga menn að kynda með lögunum, pappírnum, frv.? Hvaðan eiga þessir peningar að koma og hvað eiga þessar yfirlýsingar að þýða gagnvart fólki þegar ekkert stendur á bak við, að því er virðist, annað en að hæstv. ráðh. ætti að fara að fara að flytja hér frv. eftir áramótin. Annað eins hefur nú gerst eins og að ráðherrar flytji frv. hér á hv. Alþingi. Það væri fróðlegt að vita hvernig hæstv. iðnrh. ætlar sér að ná í þessa fjármuni og með hvaða hætti hann ættar að leggja þá á aðra landsmenn, vegna þess að ljóst er að það verður að leggja á skatta í þessu skyni, það er greinilegt.

Þegar þetta dæmi er gert upp varðandi húsnæðismálin, húshitunarkostnaðinn, gatið í fjárl., Atvinnuleysistryggingasjóð, vextina af yfirdrætti hjá Seðlabankanum og aðra þætti sem ég hef hér rakið, þá er greinilegt að um er að ræða mjög verulegan halla á ríkiskassa hæstv. fjmrh. 1984. Sá halli er mun meiri en nú er látið í veðri vaka. Og það mun koma í ljós þegar þetta dæmi verður gert upp, að nú er haldið á nýjan leik inn á braut skuldasöfnunar við Seðlabankann og seðlaprentunar. Það er sú stefna sem tekin er upp af núv. hæstv. ríkisstj., sem lofaði jafnvægi í ríkisfjármálum á árinu 1984 í stjórnarsáttmála sínum.

En það sem einkennir frv. til fjárlaga fyrir árið 1984 er hins vegar ekki fyrst og fremst það sem hér hefur verið rakið, heldur eru það hugmyndirnar um sjúkraskattinn, spítalaskattinn. Það eru þær hugmyndir sem gera þetta fjárlagafrv. algerlega sérstætt og marka því bás sem tímamótafrv. í fjármálastjórn íslenska ríkisins. Það á að fara að skattleggja sjúklingana. Það á að fara að skattleggja þá sem síst skyldi. Hæstv. ráðherrar hafa þó verið það aumir, eftir að þetta mál hefur verið tekið upp, að þeir hafa ekki gert grein fyrir því hvernig þeir ætla að útfæra þetta í einstökum atriðum. Það hefur ekkert komið fram um það, þó að þeir hafi ítrekað verið spurðir um það, á hvaða stigi veikindanna þeir ætla að rífa þessa fjármuni af sjúklingunum í landinu. Hæstv. ráðherrar hafa ítrekað verið spurðir um þetta, hæstv. fjmrh. alveg sérstaklega í jafnítarlegri ræðu og ég flutti um þetta mál fyrir nokkrum kvöldum. Hann hefur engu svarað. Og ég spyr hæstv. heilbr.- og trmrh., úr því að hann lætur svo lítið að vera hér viðstaddur núna við 3. umr. fjárlaga: Hvaða hugmyndir hefur hann um þennan spítalaskatt? Hvernig ætlar hann að láta innheimta hann? Hverjir eiga að borga hann? Og hvernig kemur þessi skattur inn í fjárhag sjúkrahúsanna í landinu? Hvernig kemur hann inn á ríkisspítölunum, hvernig á daggjaldaspítölunum, hvernig á hjúkrunarheimilunum? Vill ekki hæstv. ráðh. svara þessu nákvæmlega, vegna þess að hann hlýtur að vita hvað hann ætlar að gera í þessu efni? Það mun vera meiningin að hafa upp úr sjúklingunum 300–400 millj. kr. Þeir hljóta að vera búnir að gera sér grein fyrir því hvernig þeir ætla að slíta þessa peninga út? Ég skora á hæstv. heilbr.- og trmrh. að gera ítarlega grein fyrir því hvernig hann ætlar að hlaða sér minnisvarða með spítalaskattinum sem hér hefur verið rætt um.

Hv. þm. Lárus Jónsson gerði grein fyrir þessu hér á dögunum mjög lauslega og ég spurði í framhaldi af því hvernig þessum hlutum ætti að haga og hv. þm. Kjartan Jóhannsson flutti um þetta mjög ítarlegt mál hér á dögunum. Hvernig eiga menn að borga? höfum við spurt. Við höfum engin svör fengið. Ég endurtek spurningar mínar til hæstv. fjmrh. og hæstv. heilbr.- og trmrh. vegna þess að hér er um að ræða tímamót í þessu fjárlagafrv., þ.e. sjúkraskatturinn. Þetta eru sjúkrafjárlög hæstv. ríkisstj. sem hér er lagt til að afgreidd verði. Það er sú nafngift ein sem hæfir þeim ósköpum sem hér er lagt til að verði að lögum á hv. Alþingi.