19.12.1983
Sameinað þing: 34. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2205 í B-deild Alþingistíðinda. (1894)

1. mál, fjárlög 1984

Frsm. samvn. menntm. (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Að venju hafa menntamálanefndir Alþingis hist til að gera tillögur um hversu háttað skuli heiðurslaunum til listamanna samkv. sérstakri ákvörðun Alþingis.

Á þessu ári hlutu 15 listamenn heiðurslaun og hafa þrír þeirra fallið frá, Kristmann Guðmundsson rithöfundur, Sigurjón Ólafsson myndhöggvari og Tómas Guðmundsson skáld. Það er að sjálfsögðu jafnan álitamál hversu marga listamenn Alþingi skuli heiðra með þeim hætti sem hér er gerð tillaga um. Þar er engin tala heilög og sannast sagna að ýmsir listamenn eru enn ótaldir sem vel ættu heima í þeirri sveit og skipuðu þar sæti með fullum sóma. En allt hefur sinn tíma og takmörk fyrir hversu langt hægt er. að ganga hverju sinni.

Eftir að nm. höfðu rætt málið ítarlega og skipst á skoðunum urðu þeir sammála um að leggja til að 17 listamenn skyldu njóta heiðurslauna samkv. sérstakri ákvörðun Alþingis að þessu sinni eða þeim yrði fjölgað um tvo. Lagt er til að þeir sömu njóti heiðurslauna og áður og fimm nýir bætist við.

Heiðurslauna á næsta ári njóti samkv. till.: Finnur Jónsson listmálari, Guðmundur Daníelsson rithöfundur, Guðmundur Gíslason Hagalín rithöfundur, Halldór Laxness rithöfundur og skáld, Hannes Pétursson skáld, Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur, Jóhann Briem listmálari, Jón Helgason skáld í Kaupmannahöfn, Jón Nordal tónskáld, María Markan óperusöngvari, Matthías Johannessen skáld, Ólafur Jóhann Sigurðsson rithöfundur, Snorri Hjartarson skáld, Stefán Íslandi óperusöngvari, Svavar Guðnason listmálari, Valur Gíslason leikari, Þorvaldur Skúlason listmálari.

Lagt er til að heiðurslaunin verði 100 þús. kr. á næsta ári eða samtals 1.7 millj. kr.

Nýir í þessum hópi eru:

Hannes Pétursson varð ungur eitt af fremstu skáldum sinnar samtíðar og hefur síðan í ljóðum sínum fundið persónulegan stíl á grundvelli traustrar ljóðhefðar. Hann hefur enn fremur sem ritgerðahöfundur lagt merkilegan skerf til íslenskra þjóðfræða og ritskýringa.

Jóhann Briem er einn af sérstæðustu listamönnum þjóðarinnar. Hann hefur í list sinni farið eigin leiðir og aldrei hvikað frá persónulegum stíl sínum og sterkri myndgerð, sem vakið hefur athygli þegar hún hefur komið fyrir almenningssjónir.

Jón Helgason skáld í Kaupmannahöfn. Kveðskapur hans er ekki mikill að vöxtum, en Jón er engu að síður eitt af höfuðskáldum íslenskrar tungu um okkar daga.

Jón Nordal. Hann vakti ungur athygli sem tónskáld og píanóleikari. Í tónsmíðum hans þykir kveða við þjóðlegan íslenskan tón jafnframt því sem þær sverja sig í ætt við ýmislegt hið besta sem verið er að gera með öðrum þjóðum. Hann hefur hlotið mikla viðurkenningu fyrir tónsmíðar sínar hér heima og erlendis.

Matthías Johannessen er mikilhæfur og fjölhæfur rithöfundur í bundnu máli og óbundnu. Sem ljóðskáld kom hann með nýjan ferskleika og einlægni inn í ljóðagerð síns tíma. Hann hefur auðgað skáldskap okkar að fjölbreytni og sótt yrkisefni sín víðar en algengt er um skáld. Hann er viðurkenndur meistari samtala.

Að svo mæltu legg ég til, herra forseti, að brtt. n. á þskj. 286 verði samþykktar.