19.12.1983
Sameinað þing: 34. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2220 í B-deild Alþingistíðinda. (1898)

1. mál, fjárlög 1984

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Það er nú heldur dapurlegt að sjá hversu fámennt er hér að hlusta á mikilvægar umr. um þjóðmálin og fjármálin. Það væri athugandi fyrir hv. 4. þm. Austurt., af því að ég vil auðvitað að það sé hlustað á þm. Austurl., hvort hann ætti ekki að nota styttri tíma og vera gagnorðari svo að einhver nennti að hlusta á tal hans. Þetta eru slíkar langlokur að menn gefast upp á þessu. Þetta er vinsamleg ábending.

Mér var sagt frá því að fyrr í kvöld hefði hv. 3. þm. Reykn. varpað fram þeirri fsp. til mín með hvaða hætti ég hygðist skylda, eins og það mun hafa verið nefnt, olíukyndurum að breyta til og taka í notkun innienda orkugjafa. Það þekkja allir sem þekkja vilja með hvaða hætti hægt er að stuðla að þessu og það er með því að heimildir eru til þess í lögum og reglugerðum að svipta þá olíustyrk sem eiga kost á innlendum orkugjöfum. En ég bætti því við að svo einfalt er málið að vísu ekki að mínum dómi, heldur tel ég að þurfi að koma til hjálpar þessum aðilum. Og ég nefndi sérstaklega að það ætti ekki að vera umhendis fyrir það opinbera að láta af hendi rakna til þessara þarfa þann styrk sem nú er verið að greiða niður vegna olíunotkunarinnar. Ég þykist samt vita að fleira þarf til. En hér er um afar mikilvæga stefnu og framkvæmd hennar að tefla, sem er ekkert nýtt fyrirbrigði, og minni ég á að þegar olíuverðsprengingin varð á sínum tíma voru á milli 40 og 50% allra húsa í landinu hituð með erlendum orkugjafa, olíunni. Þetta hafa menn nýlega fengið að sjá skýrslur um, að það virðist nokkuð auðgert að tengja öll hús, að undanskildum um 350 eða svo, við innlendan orkugjafa og leggja til hliðar erlendu olíuna. Að þessu verður stefnt, en auðvitað kostar það fjármuni, auðvitað kostar það fyrirhöfn og auðvitað kostar það áróður. Það verður enginn skyldaður með öðrum hætti en þeim sem ég hef nú nefnt.

Það er svo að heyra á málflutningi þeirra Alþb.manna sem vandi húshitunarinnar sé alveg nýr af nálinni. Það er eins og hann hafi alls ekki verið til hér meðan þeir fóru með völdin. A.m.k. báru fjárveitingar á síðustu fjárlögum ekki vitni um að þeir gerðu sér grein fyrir að hann væri til. En þegar við höfum hækkað framlag til niðurgreiðslu rafhitunar um 700% hvíslast þeir á um hvernig menn ganga á bak yfirlýsingum sínum og loforðum. Ég hef ekki dregið neina dul á þá túlkun Sjálfstfl. á lögunum frá 1980 að 1.5 söluskattsstig skyldi að hans dómi renna til þessara þarfa. Það höfum við aldrei gert. En það voru þeir sem settu lögin sem túlkuðu þau með öðrum hætti og fullvissuðu menn um að það hefði ekki annað legið á bak við þá lagasetningu. Og þeir fóru náttúrlega næst um það sjálfir hvað þeir áttu við með setningu laganna.

Það var áreiðanlega löngun allra sem að þessum málum unnu að ná öllu þessu fjármagni til þessara þarfa nú. En hvað hefur núv. hæstv. ríkisstj. gert? Hún hefur lagt fram um 450 millj. af nýju fjármagni með því sem nú er á fjárlögum til þessara þarfa. 150 millj. kr. á árinu sem er að líða til viðbótar við þær 35 til rafmagnsniðurgreiðslunnar og 29 til olíuverðsniðurgreiðslunnar sem voru látnar af hendi rakna af þessum tveimur herramönnum sem sitja hér fyrir framan mig, hv. 3. þm. Norðurl. v. — eða er hann 4.? (RA: Hann er nú 3.) Hann er 3., já, hann stendur sig nokkuð vel reyndar- og hv. 5., síðasta, þm. Austurl., fyrrv. iðnrh. og fjmrh. 35 millj. kr. voru til niðurgreiðslu rafhitunar, en hér standa þeir á blístri af hneykslan yfir 230 millj. sem nú má finna. (Gripið fram í.) Rétt er það að við liggjum undir áföllum og ekki vegna þess að við höfum ekki verið menn til að standa við loforð okkar. En hvers vegna er það aðallega, hv. 5. þm. Austurl., sem okkur er ófært að standa við þessi okkar dýru loforð og þurfum til þess ráðrúm og tíma? Það var vegna þess hvernig skilið var við af þessum sömu herramönnum aðallega sem sitja hið næsta mér, hvernig við allan fjármálabúskap þjóðfétagsins var skilið af síðustu ríkisstj. Þarf að fara fleiri orðum um það? Þarf að setja langar tölur á um gjaldþrotabúskapinn, greiðsluþrotabúskapinn, sem hvarvetna blasti við? Fjárhagur ríkisins hefði áreiðanlega ekki þurft að standa miklu betur til þess að við hefðum samt tekið til þessara þarfa það sem við höfðum lofað að gera. En það hefur kostað tíma vegna þess að allt var þetta á hverfanda hveli.

Það hefur kostað tíma að skipuleggja þessi mál. Það hefur verið unnið hörðum höndum að því alveg frá því að þessi ríkisstj. tók við völdum. Og það er nýbúið að skila verki, vel unnu verki, sem ég hygg að megi byggja á í framtíðarskipulagi málanna. Ég endurtek þá yfirlýsingu mína að hér verður lagt fram frv. til laga sem markar fastmótaða stefnu í þessum sökum. Ég upplýsi enn fremur að ríkisstj. er ákveðin í því, að ef þeir fjármunir sem til þessara þarfa eru ætlaðir nú hrökkva ekki til muni málið tekið til sérstakrar athugunar á næsta ári. Okkur er nefnilega fullkomin alvara að koma til hjálpar þeim sem í erfiðleikum eiga þessa vegna. Okkur er fullkunnugt um ástæður þeirra. Við erum minnugir þeirra yfirlýsinga og loforða sem við höfum gefið þótt við séum ekki í bili færir um að standa við þær yfirlýsingar til fullnustu. En hv. þm. Hjörleifur Guttormsson kveinkar sér auðvitað. Hann er sár og ákaflega móður frá því að hann fékkst við þessi verk og ekkert gekk, komst hvorki lönd né strönd í einu eða neinu, hvort heldur sem það var stóriðja eða með öðrum hætti að stjórna orkumálum okkar. Það er ljótt að þurfa að standa hér uppi og minna á þetta, sem að vísu allir vita. Ég tek það nærri mér því að mér er heldur vel til þessa manns persónulega. (HG: Það eru breyttir tímar.)

Í tillögum orkuverðsnefndar eru gagngerðar tillögur sem ég, eins og ég segi, hygg að megi byggja á framtíðarstefnu okkar í þessu, sem muni koma þeim sem örðugast eiga, sérstaklega og fyrst og best þeim, til hjálpar í þessum sökum. Á því er enginn vafi. Þetta verður framkvæmt og á því munu menn taka og á því munu þeir taka á sjálfum sér, sem örðugast eiga, að þeim verður komið til hjálpar. En þegar menn leyfa sér að halda því fram að afkoma orkuveitnanna og Landsvirkjunar hafi engin áhrif eða skipti engu máli í sambandi við lausn þessara mála sýnir það betur en nokkuð annað sem ég hef komist að raun um, að undantekningarlítið hafa Alþb.-menn ekkert vit á fjármálum — alls engan á rekstri og lítið sem ekkert á fjármálum. Það er einn einasti maður eða einn og hálfur eða svo í þau 16 ár sem ég hef bráðum átt sæti á þingi sem hefur haft einhvern urmul af viti á fjármálum. Það eru hv. þm. Geir Gunnarsson og Lúðvík Jósepsson, þegar hann vildi það viðhafa sem sjaldnast var. En hitt er urinn akur og þar með talinn hv. 3. þm. Norðurl. v., svo hörmulegt sem það nú var. (Gripið fram í.) Ragnar Arnalds, svo að enginn misskilji málið, enda hefði það ekkert misskilist. Það vita allir, þegar maður tekur djúpt í árinni með óvitið í fjármálum, við hvað maður á.

Hv. 3. þm. Reykv., Svavar Gestsson, spurði hvort ætti að kynda með nýjum lögum. Hann vissi hvernig átti að fara að því á þessu ári. Þá dugðu 35 millj. til þess arna. En hann veit ekki hvernig á að fara að því að beita 230 millj. + 61.5 í þessu skyni. Það eru gripir þetta, ég segi það satt, svo að ég minnist orðatiltækis Einars í Hvalnesi. Þetta eru gripir, ég segi það satt!

En ég þarf ekki að hafa mörg fleiri orð um þetta. Mér er ljóst að við eigum óunnin verkin að mestu. Við höfum aðeins gert bráðabirgðaráðstafanir í þessu skyni, en á bak við þær yfirlýsingar sem ég gaf um setningu laga til úrbóta í þessum efnum liggur fullkomin alvara, sem menn eiga eftir að þreifa á. Það skal ég fullvissa þá um og þarf ekki fleiri orð um að hafa. Það ljós mun renna upp fyrir mönnum innan rúms mánaðar eða svo.