19.12.1983
Sameinað þing: 34. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2227 í B-deild Alþingistíðinda. (1901)

1. mál, fjárlög 1984

Stefán Benediktsson:

Herra forseti. Það er margt búið að tala í þessu máli og flestallt viturlegt, þannig að ég hef kannske ekki miklu við það að bæta. Það er þó eitt atriði, sem tengist tillöguflutningi BJ í fjárlagamálum, sem ég vildi leggja enn einu sinni áherslu á, að við höfum haldið því fram að í núverandi fjárlagafrv. vanti markvissan sóknarþunga.

Fyrirtæki það sem hér um ræðir, þ.e. þjóðarbúið, er skuldugt upp fyrir eyru. Það er rekstrarhalli á þessu fyrirtæki og báðar þessar stærðir eru stærri en svo að sparnaður dugi til að jafna metin. Níundi áratugurinn er hafinn og nýsköpunar er þörf og hennar hefur reyndar lengi verið þörf. Eini atvinnuvegurinn sem hægt er að efla til muna í dag er iðnaður. Maður hefði haldið að iðnaðurinn ætti sér málsvara í þessari ríkisstj. En viti menn! Fjárlög sanna það rétt eina ferðina enn að þessir tveir flokkar, sem nú fara með stjórn, eru svo vandlega keflaðir af öðrum hagsmunaaðilum en iðnaðinum að iðnaðurinn má tóra á þeirri týru sem hann sjálfur getur haldið logandi. Ríkisstj. segir að hjól atvinnulífsins snúist hægt vegna þess ástands sem við búum við. Þess vegna vár-fært fjármagn frá launþegum til atvinnurekenda. Rekstrarstaða .fyrirtækja í atvinnulífi á eftir að versna, segir ríkisstj. Ríkisstj. segir: Það er ekkert svigrúm. Ramminn er ákveðinn. Ef svo er verða menn að taka afleiðingum gefinna forsendna. Undirstaða bættra lífskjara og þar með þeirra framfara sem við öll trúlega viljum eru auknar tekjur. Auknar tekjur verða hvergi fengnar í dag nema í iðnaðinum. Iðnað þarf að efla til muna og til þess þarf fjármuni. Ef iðnaðurinn þarf að leggja þessa fjármuni fram sjálfur veikir það rekstrarstöðu hans, sbr. fullyrðingar ríkisstj. um rekstrarstöðu atvinnufyrirtækjanna. Því þarf ríkisstj. að koma til. Hún hefur ekki svigrúm til aukningar, segir hún sjálf. Það þýðir að hún verður að millifæra ef hún vill stíga skrefið inn í 9. áratuginn. Þess vegna miðast tillögur BJ við að dregið verði úr fé sem ætlað er til ráðgjafar og stuðnings við þá atvinnuvegi á Íslandi sem lengstan hafa haft aðlögunartímann og þeim fjármunum verði varið til nýsköpunar og sóknar í iðnaðinum.

Ekki meira um það. Þetta er kjarninn í okkar tillögum og við sjáum á morgun í atkvgr. hvern hug þessi ríkisstj. og stjórnarflokkarnir bera til þessarar atvinnugreinar, sem framtíð okkar er fólgin í.

Herra forseti. Hér hafa verið töluð ákveðin orð í kvöld. Það hafa verið nefndir aftaníossar. Get ég kannske lítið um það sagt annað en margur heldur mig sig. Hér í Nd. og væntanlega bráðlega í Ed. hafa fallið atkvæði í stærsta máli þessa þings um langan aldur. Það fjölgaði jólasveinunum snögglega þegar allir þm. 5jálfsttl. í hv. Nd. með einni undantekningu færðu Framsfl. þá stærstu jólagjöf sem nokkur flokkur hefur gefið öðrum nokkurn tíma, þ.e. algert einræðisvald yfir sjávarútvegsmálum Íslendinga. Ég vil ekki spá í hvernig gengnum forustumönnum Sjálfstfl. líður í hásölum við að horfa upp á þá niðurlægingu flokks síns í þessu máli sem hér er á orðin. En ég er a.m.k. viss um eitt, herra forseti, að meiri aftaníossar hafa ekki sést á þingi enn.