20.12.1983
Sameinað þing: 35. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2254 í B-deild Alþingistíðinda. (1982)
125. mál, aðgerðir gegn innflutningi og dreifingu ávana- og fíkniefna
Frsm. (Guðmundur H. Garðarsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. um till. til þál. um skipulagðar aðgerðir gegn ólöglegum innflutningi og dreifingu ávana- og fíkniefna sem allshn. hefur haft til meðferðar. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund lögreglustjórann í Reykjavík, tollstjóra, sakadómara í ávana- og fíkniefnamálum og ráðuneytisstjóra dómsmrn. Nefndin mælir með samþykkt till. með þeirri breytingu sem flutt er till. um á þskj. 270.
Breytingarnar frá þáltill. í sinni upprunalegu mynd eru sem hér segir:
1. Um fjölda þeirra sem mynda samstarfshópinn. Í stað þess að tiltaka að í hópnum skuli vera níu manns er engin ákveðin tala nefnd þannig að það er á valdi dómsmrh. að ákveða stærð hópsins. Nefndin hallast þó frekar að því að samstarfshópurinn sé ekki of stór.
2. Með tilliti til þess að umræddur hópur á ekki að vera stjórnunartæki í eigintegri merkingu þess orðs var talið rétt að orða niðurlag 1. mgr. á þá leið að hlutverk samstarfshópsins væri að samræma og skipuleggja auknar aðgerðir gegn ólöglegum innflutningi og dreifingu ávana- og fíkniefna og einnig að hann athugi nýjar rannsóknaraðferðir í fíkniefnamálum.
Að öðru leyti voru engar breytingar gerðar á tillögunni.
Sem fyrr segir komu fulltrúar þeirra stofnana og embætta á fund n. sem einkum fjalla um það viðkvæma og erfiða verkefni sem fólgið er í því að reyna að afstýra þeim mikla þjóðarvoða sem felst í aukinni fíkniefnaneyslu á Ístandi. Miklar kröfur eru gerðar til þessara aðila um árangursríkar aðgerðir án þess þó að þeim hafi enn sem komið er verið sköpuð fullnægjandi skilyrði. Þeir sem og þjóðin í heild standa frammi fyrir vágesti sem var svo til óþekkt vandamál fyrir nokkrum árum. Öflugir alþjóðlegir glæpahringar teygja anga sína um allan heim og með skipulagðri starfsemi reyna sendimenn þeirra, fíkniefnasalarnir, að veiða í sitt net grandalaust fólk sem uggir ekki að sér varðandi skaðsemi fíkniefna. Sérstaklega leggja þessir óþokkar sig fram um að reyna að gera ungt og reynslulítið fólk háð háskalegum fíkniefnum.
Íslendingar standa nú frammi fyrir því að þurfa að mæta þessum vágesti sem því miður hefur færst í aukana hérlendis á síðustu árum. Allt of margir hafa orðið fíkniefnum að bráð. Þessari óheillaþróun verður að mæta með öllum tiltækum ráðum. Efla verður enn frekar skipulagðar aðgerðir þeirra aðila sem eru í framvarðasveit í baráttunni gegn stöðugt meiri ásælni hinna ófyrirleitnu fíkniefnasala sem virðast hafa aukið starfsemi sína á Íslandi í tengslum við erlend skuggaöfl.
Sú þáltill. sem hér er til meðferðar er liður í þessari varnarbaráttu. Hún felur í sér auknar aðgerðir gegn innflutningi og dreifingu á ávana- og fíkniefnum. Þegar hefur verið unnið mikið starf á þessu sviði af hálfu löggæslu og tollgæslu sem og dómsvaldsins og réttarfarsaðila sem um þessi mál fjalla. En þessir aðilar eru ekki í stakk búnir sem skyldi til að mæta hinni hörðu, hröðu og neikvæðu þróun. Þess vegna verður m.a. Alþingi að koma enn frekar til skjalanna í hinni hörðu baráttu gegn skuggavöldunum, fíkniefnasölunum og dreifendum þessara efna.
Í fjárlögum ársins 1984 er veruleg fjárupphæð er verja skal í þessum tilgangi. Þessi þáltill. er enn einn þátturinn í þessari baráttu og í rökréttu samhengi við afstöðu Alþingis eins og hún birtist í fyrrnefndum lið fjárlaga. Allshn. kann hæstv. forseta þakkir fyrir þann skilning á mikilvægi þessa máls sem kemur fram í því að hann skuli nú taka þessa þáltill. inn á dagskrá í hinum miklu önnum þingsins. Allshn. væntir þess að sami skilningur ríki hjá hv. þm. og þeir samþykki till. til þess að það víðtæka samráðsstarf sem hér um ræðir geti hafist sem fyrst.