25.10.1983
Sameinað þing: 7. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í B-deild Alþingistíðinda. (199)
459. mál, ráðstöfun gengismunar og bætt meðferð sjávarafla
Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Sem svar við fyrstu spurningunni vil ég taka fram, þótt þar geti ekki verið um tæmandi svar að ræða, að það sem gert hefur verið í sjútvrn. er m.a. eftirfarandi:
Í fyrsta lagi: Lagt hefur verið fram frv. til. l. um ríkismat sjávarafurða, sem væntanlega mun koma fram á Alþingi næstu daga. Það felur í sér allmiklar breytingar á núverandi skipulagi fiskmatsmála í landinu.
Í öðru lagi: Ráðnir hafa verið til eins árs tveir forstöðumenn við Framleiðslueftirlit sjávarafurða, sem vinna nú ásamt fulltrúum hagsmunaaðila og þjónustustofnana sjávarútvegsins að endurskoðun á reglugerðum og fyrirmælum stofnunarinnar sem og starfsháttum.
Í þriðja lagi: Ráðgjafarþjónustan Hannar sf. vinnur að víðtækri úttekt á viðamestu þáttum í starfsemi Framleiðslueftirlits sjávarafurða. Lokaúttekt hefur farið fram á stöðu ferskfiskmatsins og áfangaskýrsla hefur verið lögð fram um ástand í afurðamati saltfisks og skreiðar. Tilgangurinn með þessari úttekt er að afla gagna og tillagna um endurskipulagningu á starfsemi Framleiðslueftirlitsins, þannig að hún komi á sem hagkvæmastan hátt að mestum notum, m.a. með því að tryggja vörugæði og að kröfum markaðsins sé fullnægt.
Í fjórða lagi: Auk þess er til umræðu fjárfestingarstefna, fiskveiðistefna, verðlagning o.fl. með það í huga að auka gæði og bæta meðferð sjávaraflans.
Sem svar við annarri spurningunni: Í árslok 1982 ákvað sjútvrn. að standa fyrir fræðslu- og kynningarstarfi svo bætt yrðu gæði íslenskra sjávarafurða og var Jóhann Briem ráðinn til þess að annast skipulag og stjórnun verkefnisins. Lagt var til grundvallar við kynningarstarfið að það yrði unnið í samstarfi við hina mörgu hagsmunaaðila í sjávarútveginum og lögð áhersla á þá þætti sem talið var að hefðu orðið útundan og útvegsmenn, framleiðendur og þjónustustofnanir í sjávarútveginum ekki haft aðstæður til að sinna.
Kynntar hafa verið helstu þjónustustofnanir í sjávarútveginum, stuðlað hefur verið að umfjöllun í fjölmiðlum um gæðamál og miðlun upplýsinga, framleitt hefur verið kynningar- og fræðsluefni á myndböndum til notkunar í fjölmiðlum og á vinnustöðum. Á s.l. vori tók rn. þátt í ráðstefnu um gæðamál með Fiskiðn, fagfélagi fiskiðnaðarins. Í undirbúningi er gerð fræðsluefnis í bæklingaformi ásamt gerð veggspjalda með leiðbeiningum um fiskmeðferð um borð í fiskiskipum og í vinnslustöðvum sjávarafla.
Til gæðamála hefur sjútvrn. nú varið 1 943 832 kr. af gengismunarfé 1982, sem skiptist þannig:
1. Ráðgjöf og umsjón 366 986.
2. Kynning og fræðsla, þ.e. myndbandagerð, upptaka, laun aðstoðarmanna og önnur aðstoð, 642 463.
3. Auglýsingar 440 684. — Það eru í fyrsta lagi blaða- og tímaritsauglýsingar upp á 150 684 og svo greiðsla til Sjómannasambands Íslands 290 þús. vegna myndbandadreifingar Sjómannasambandsins.
4. Tilraunamat á ferskum fiski 129 907.
5. Ráðstefna um gæðamál 100 000.
6. Styrkir til tilrauna o.fl. 178 792.
7. Handbók í fiskvinnslu 85 000. — Samtals 1 943 832.
Af þessu leiðir að af gengismunarfé 1983 hefur enn engu verið ráðstafað og er það fjármagn í vörslu Fiskimálasjóðs.
Í Fiskmatsráði hafa verið ræddar hugmyndir um gerð myndbanda er veittu fræðslu um vinnslu sjávarafla og veiðar um borð í togurum. Engin ákvörðun hefur verið tekin enn.
Vænti ég þess að ég hafi þá svarað þessari fsp.