24.01.1984
Sameinað þing: 37. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2260 í B-deild Alþingistíðinda. (1992)
386. mál, útreikningur verðbóta
Fyrirspyrjandi (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Í lögum um stjórn efnahagsmála nr. 13/1979 er veitt heimild í VII. kafla til lánsviðskipta með ákvæðum þess efnis að greiðslur skuli breytast í hlutfalli við verðvísitölu eða gengi erlends gjaldeyris. Ekki þarf að fjölyrða frekar um að verðtrygging er orðin mjög algeng í viðskiptum manna á milli. Hins vegar er ekki heldur hægt að neita því að allvíða og í mjög mörgum tilvikum hefur risið ágreiningur um hvernig reikna skuli verðbætur út. Staðreyndin er sú að hér er um hundruð ágreiningsmála að ræða í þjóðfélaginu og ástæðan er ósköp einföld. Reglurnar eru sumpart óskýrar, sumpart alls ekki til og enginn viðurkenndur úrskurðaraðili hefur verið tiltækur til að skera hér úr nema þá dómstólarnir, en dómstólaleiðin er seinfarin eins og kunnugt er.
Þess gætir mjög að seljendur fasteigna eða verksalar gera samning við kaupendur, áskilja sér í samningum og reikna sér verðbætur aftur í tímann, þ.e. verðbætur eru reiknaðar á samningsverð frá tímamörkum sem voru liðin þegar samningurinn um kaup eða verk var gerður. Í öðru lagi tíðkast nokkuð að verðbætur séu reiknaðar og innheimtar af eftirstöðvum greiðslu fyrir verk sem óunnið er eða ekki alhent kaupanda og/eða greiðslu fyrir verk sem óunnið er eða ekki afhent kaupanda og/eða af greiðslum sem ekkí eru fallnar í gjalddaga þegar verðbætur eru innheimtar. Og í þriðja lagi eru verðbætur reiknaðar skv. meðaltali innan hvers vísitölutímabils, þ.e. hækkun vísitölu á tímabilinu deilt upp með dagafjölda hvers tímabils og meðalbreyting þannig lögð til grundvallar verðbótum af tímabilinu.
Ég hef fyrir framan mig eitt dæmið um þessa útreikningsaðferð í viðskiptum aðila þar sem kaupsamningur er gerður 6. apríl 1981. Nú var vísitala byggingarkostnaðar reiknuð út í fyrri hluta des., síðan aftur í marsbyrjun og loks í júníbyrjun, en kaupsamningurinn er gerður 6. apríl. Og við hvað halda menn nú að kaupsamningurinn sé miðaður, þ.e. stofnverðið sem allt er reiknað út frá? Samningurinn sem er gerður 6. apríl er miðaður við vísitöluna eins og hún var í fyrri hluta desembermánaðar. Sú mikla hækkun sem í þessu tilviki verður frá desembermánuði 1980 og fram í marsbyrjun eða aprílbyrjun kemur öll seljandanum til óverðskuldaðs hagnaðar þannig að hér verður um verulega ósanngjörn viðskipti að ræða. Einnig er ljóst að ef dagvísitala er reiknuð eins og áður var getið kemur allt annað út úr dæminu en ef aðrar og venjulegri leiðir eru notaðar. Afleiðingin verður sú að í raun og veru er kaupandi að greiða mjög háa vexti auk verðtryggingar. Fullyrt er að í mjög mörgum tilvikum sé um að ræða fulla verðtryggingu með 25% vöxtum ofan á.
Ég þarf ekki að rekja hér hvílíkum vandræðum þetta hefur valdið hjá mjög mörgum sem hafa verið að kaupa fasteignir á liðnum mánuðum og misserum. Þar er mörg sorgarsagan sem ekki er ástæða til að fjölyrða hér um. Kaupendur hafa leitað til opinberra aðila til að ná leiðréttingu mála sinna, t.d. Seðlabanka Íslands, en í 41. gr. laga nr. 13/1979 segir að Seðlabankanum sé falið að setja reglur um verðtryggð viðskipti utan banka og lánastofnana. Hins vegar hefur farið svo að Seðlabankinn hefur lýst því yfir að verðtryggð viðskipti um afhendingu eignar sem hækkar í verði á afhendingartímanum í hlutfalli við verðbreytingar flokkist ekki undir lánsviðskipti og þar með ekki undir lög nr. 13/1979. Nú er að vísu mikið vafamál hvort þetta er rétt lögskýring hjá þeim seðlabankamönnum, en það skiptir ekki öllu. Aðalatriðið er að Seðlabankinn túlkar lögin á þennan veg og neitar að skipta sér af málinu frekar.
Hitt er rétt að taka fram, að í umsögn um málið sem Seðlabankinn gaf fyrir einu ári síðan kom skýrt fram að seðlabankastjórnin lítur svo á að útreikningur dagvísitölu með þeim hætti sem ég lýsti áðan væri algerlega óeðlileg. (Forseti hringir.) Ég er rétt að ljúka máli mínu, forseti.
Rétt er að minna á að í lögum er gert ráð fyrir því að sérstök nefnd geti verið úrskurðaraðill í málum af þessu tagi. En það hefur nú farið svo að þegar leitað hefur verið til þessarar nefndar sem getið er í 44. gr. laganna að fella skuli fullnaðarúrskurð í ýmsum ágreiningsmálum af þessu tagi hefur hún líka vísað málinu frá sér, í öllu falli ekki gefið nein svör við fsp. sem til hennar hefur verið beint. Þess vegna hef ég leyft mér að bera hér fram fsp. á þennan veg:
„Vill ríkisstj. beita sér fyrir því að settar verði skýrar reglur um útreikning verðbóta í viðskiptum þar sem kaupverð er tengt vísitölu verðlags eða byggingarkostnaðar?“
Ég álít að setja verði skýrar reglur. Þar getur komið tvennt til greina, annað hvort lagasetning eða útgáfa reglugerða og geta fleiri en ein lög vissulega komið þar til álita sem grundvöllur. Einhverja leið verður að fara til að leysa þann vanda sem hér er bersýnilega við að kljást hjá fjöldamörgum kaupendum fasteigna.