24.01.1984
Sameinað þing: 37. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2263 í B-deild Alþingistíðinda. (1995)
386. mál, útreikningur verðbóta
Stefán Benediktsson:
Herra forseti. Það kann að vera að túlkun seðlabankans á hlutverki hans innan ramma laga nr. 13 frá 1979 verði ekki á móti mælt og honum beri þar af leiðandi skv. eigin túlkun ekki skylda til að fylgjast með þeim málum sem hér um ræðir meira en orðið er. Aftur á móti fer ekkert á milli mála að seðlabankinn hefur ákveðnu hlutverki að gegna í mælingu og ákvörðun gengis íslenskrar krónu. Og vísitala er í raun og veru ekkert annað en mæling á fallandi gengi krónunnar og öll þau viðskipti sem henni tengjast eru þannig bæði afleiðing og hugsanlega orsök gengisstöðu krónunnar.
Rangur útreikningur verðbóta í kaup- eða verksamningum, sem leiðir til verðhækkunar framleiddrar vöru umfram mælt fallandi gengi krónunnar, leiðir til þess að umrædd framleiðsla stendur enn síður en ella undir kostnaði. Það er m.ö.o. verðbólguhvetjandi í sjálfu sér þegar útreikningur verðbóta er rangur þannig, eins og ég sagði áðan, að hann leiðir til verðhækkunar umfram mælt fallandi gengi. Þegar við horfum upp á að verksamningar, líklega nánast allan s.l. áratug, hafa verið gerðir með þeim hætti að þeir hafa leitt til verðhækkunar umfram mælingu á fallandi gengi getum við í hendi okkar séð hvaða afleiðingar þetta hefur haft fyrir íslenskan þjóðarbúskap. Ég leyfi mér að fullyrða að hér sé um mjög alvarlegan þátt í okkar verðbólguvandamáli að ræða.
Að Seðlabankanum hafi ekki verið þessar aðstæður kunnugar er mjög erfitt að samþykkja vegna þess að við vitum að Seðlabankinn sjálfur hefur verið beint viðriðinn verksamninga með verðbótaákvæðum og aðilar tengdir Seðlabankanum hafa verið viðriðnir einhverja stærstu verksamninga sem gerðir hafa verið í þessu landi með verðbótaákvæðum. Menn hafa almennt notað svokallaða línulega mælingu á fallandi gengi krónu sem leiðir ósjálfrátt til þessarar verðhækkunar umfram fallandi gengi.
Ég tel þess vegna ástæðu til að þeir aðilar sem hér hafa að mínu viti brugðist á vöku sinni taki sér tak. Bæði á Alþingi að knýja sem fyrst fram lög sem beina þessum málum í heitbrigðan farveg, en fordæmi að slíkum lögum eru fyrir hendi hjá nágrannaþjóðum okkar, og hins vegar Seðlabankinn að taka sér einnig tak í þessum málum. Ef hann ekki vill sjálfur verði honum gert að fylgjast með þeim af meiri nákvæmni en hingað til hefur verið.