25.10.1983
Sameinað þing: 7. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 253 í B-deild Alþingistíðinda. (202)
459. mál, ráðstöfun gengismunar og bætt meðferð sjávarafla
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Ég fagna því, sem kom fram í máti hæstv. ráðh., að það sé komið í frumvarpsform að taka fiskmatsmálin til endurskoðunar. Þetta starf var hafið 1979–80 en stíflaðist allt of lengi hjá fyrrv. sjútvrh. Ég vona að ráðh. og þing beri gæfu til þess að taka það mál föstum tökum þegar það berst hingað.
En það eru önnur atriði sem ég held að verði að hyggja sérstaklega að í sambandi við gæði fiskafurða okkar. Það er í fyrsta lagi verðlagningarkerfið. Það gætti mjög ríkrar tilhneigingar á síðasta kjörtímabili til þess að verðlagningin á aflanum væri þannig að það hvetti síst af öllu til þess að auka gæðin og fá sem verðmætastar afurðir. Það er grundvallarforsenda til þess að ná árangri að verðlagningarkerfið sé nýtt til þess að auka gæði, að gæðin séu verðlaunuð. Það er afleitt þegar öfugþróun verður í þeim efnum eins og var á starfstíma seinustu ríkisstj. Ég legg áherslu á það við hæstv. sjútvrh. að hann hafi þetta í huga.
Í annan stað er það hvatningin til þess að fjárfesta í atriðum sem verða til þess að auka gæði afla og afurða. Á árinu 1979 var reglugerð Fiskveiðasjóðs breytt í því skyni að auka tæknivæðingu í fiskvinnslunni og stuðla að því að menn nytu eðlilegrar lánafyrirgreiðslu einmitt í fjárfestingu af þessu tagi. Ég vil beina því til hæstv. ráðh. að hann gæti að því hvort ekki megi gera enn betur í þeim efnum en þá var gert, ég tala nú ekki um ef hæstv. fyrrv. sjútvrh. skyldi hafa spillt því í leiðinni. (Forseti hringir.)
Í þriðja lagi verður það sama að gilda að því er varðar fjárfestingar í fiskiskipum, að menn njóti möguleika á lánum til endurbóta sem stuðla að gæðum aflans. Á þessu hefur verið þverbrestur.
Í fjórða lagi er það spurningin um að tempra aflann þannig að fiskur skemmist ekki í aflahrotum. Það er mjög erfitt mál og ég ætla ekki að ræða það núna, það kemur inn á stjórnkerfið sjálft. En ég held að þetta séu grundvallaratriði sem menn verði að virða hvað sem öllu öðru líður.