25.01.1984
Efri deild: 44. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2338 í B-deild Alþingistíðinda. (2061)

159. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Ragnar Arnalds:

Virðulegi forseti. Það er mjög áberandi og eftirtektarvert einkenni á stefnu núverandi stjórnar að hún beitir sér fyrir hvoru tveggja í senn, annars vegar einhverri mestu lífskjaraskerðingu lágtekjufólks og meðaltekjufólks sem átt hefur sér stað um margra áratuga skeið, en hins vegar beitir hún sér fyrir lögfestingu ýmiss konar kjarabóta og fríðinda í þágu þeirra sem best teljast settir í okkar þjóðfélagi. Ég þarf ekki að orðlengja frekar um skerðingu lífskjaranna. Hún er daglega til umr. hér í þingsölum og meðal alls atmennings, enda hygg ég að ekki hafi orðið þvílíkt neyðarástand á þúsundum og tugþúsundum heimila í landinu fyrr, a.m.k. ekki seinustu 20–30 árin, og við stöndum núna frammi fyrir.

Hin hliðin á stefnu stjórnarinnar, sem varðar kjarabætur og fríðindi til þeirra sem best eru settir í þjóðfélaginu, er því miður ekki eins mikið rædd, en er engu að síður athyglisverð. Ég ætla ekki að rifja upp þau mörgu mál sem hafa komið fram á þingi og varðað hafa ýmiss konar tekjutap ríkissjóðs í þágu þeirra sem hljóta að teljast allvel settir. En við stöndum hér frammi fyrir frv. af þessu tagi — frv. sem er flutt til þess að minnka skatta á tekjur manna og atvinnurekenda að sjálfsögðu á kostnað annarra skattgreiðenda í landinu um leið og verið er að fjölga stórlega þeim smugum og glufum sem eru á tekjuskattskerfinu og munu gera lögleg og ólögleg skattsvik eða skattundanþágur, skattundandrátt skulum við kannske öllu frekar orða það, auðveldari en áður var.

Þau ákvæði í frv. sem stefna í þessa átt eru þau í fyrsta lagi, að gildandi heimild um að draga frá tekjuskatti arð af hlutafjáreign er stórlega aukin og um er að ræða að upphæðin, sem er í núgildandi lögum, er tífölduð. Vissulega er ekki þar um tífalda aukningu að ræða frá því sem var þegar núgildandi skattalög voru sett, því að upphæðin var ákveðin í skattalögum 1981 seinast og um er að ræða tíföldun frá þeim tíma, en ætli það sé ekki a.m.k. fjórföldun. Ætli það sé ekki um að ræða a.m.k. fjórföldun á skattfríðindum frá því sem er í gildandi lögum, ef tekið er tillit til verðlagsbreytinga frá árinu 1981.

Í öðru lagi geta einstaklingar fengið veruleg skattfríðindi með því að auka eignir sínar í atvinnurekstri, fjárfesta í atvinnurekstri. Þar er um að ræða undanþáguheimild sem ekki er óskyld þeirri fyrri sem ég nefndi. Samanlagt nema þessar heimildir hjá hjónum 90 þús. kr. á ári, þ.e. skattfríðindi á hverjum mánuði af tekjum sem nema hvorki meira né minna en 7500 kr. Það er rétt að hafa það í huga að talið er að allra lægstu tekjur fólks séu nú í kringum 8 þús. kr. En þeir sem eru á lágmarkslaunum eru með tekjur í kringum 10 þús. Það er sem sagt um að ræða að næstum því jafnhá tekjuupphæð og nemur lægstu tekjum í þjóðfélaginu verður frádráttarbær við skattálagningu, að sjálfsögðu einungis hjá þeim sem hafa háar tekjur því að hinir bera ekki tekjuskatt og njóta þessa því á engan hátt. Menn þurfa raunar að vera verulega miklu hærri í skattstiganum en þetta til að njóta þessara hlunninda. Ég hygg að menn þurfi að fara alla leið upp í tvöfaldar þessar tekjur, sennilega a.m.k. í 15–20 þús. kr. tekjur á mánuði, til að þeir komist í tekjuskatt og þá fyrst er einhver möguleiki að menn njóti þessara fríðinda, enda segir það sig sjálft að menn þurfa að hafa verulegar tekjur til að eiga eitthvað afgangs, ekki síst eins og nú er komið málum hjá launafólki í landinu.

Vissulega er gjöf ríkisins til þeirra sem hér eru að þiggja gjafir ekki 7500 kr. á mánuði, því að það er tekjuupphæðin sem því nemur. Gjöfin til hátekjumanna í þjóðfélaginu, sem gefin er með þessum tveimur ákvæðum, er 45% af tekjuupphæðinni eða rétt um 3400 kr. á mánuði. Það er sú gjöf sem við stöndum frammi fyrir að núv. ríkisstj. ætlar að gefa hátekjumönnum í landinu, 3400 kr. á mánuði, ekki í eitt skipti heldur til frambúðar svo fremi að þeir rétti út hendina og nýti sér möguleikann.

Í þriðja lagi er verið að auka verulega skattfrelsi af hlutafjáreign og þar er um að ræða gjöf til hátekjumanna og stóreignamanna sem mun nema um tæpum 5 þús. kr. á ári. Það er vissulega lítil upphæð til samanburðar við þær sem ég nefndi hér fyrr, en þó dágóð summa.

Þetta gildir um einstaklinga, sem ekki eru í atvinnurekstri, en eru með þessum hætti að gerast þátttakendur í atvinnurekstri, væntanlega í fyrirtæki sem verið er að stofna, setja á fót. En ef við svo aftur á móti lítum á þá sem atvinnurekstur stunda, þá er vissulega þar um enn stærri og meiri hlunnindi og fríðindi að ræða. Þar er í fyrsta lagi sú regla að mönnum heimilast að taka 40% af skattskyldum hagnaði ársins og leggja í fjárfestingarsjóð. Vissulega er hér ekki um algert nýmæli að ræða, vegna þess að í núgildandi lögum er heimild til myndunar varasjóðs hjá félögum — ákvæði sem er á margan hátt hliðstætt þessu ákvæði, en verður nú afnumið. Við höfum löngum bent á það, við Alþb.-menn, að varasjóðsákvæðið í núgildandi lögum væri afar hæpið og ætti að afnema því að auðvitað er þar ekki um neitt annað að ræða en hrein skattfríðindi. En þótt við höfum nú verið í ríkisstjórnum og jafnvel átt fjmrh. um skeið hefur okkur ekki tekist að fá aðra flokka, sem við höfum unnið með, til fylgis við þessa breytingu, þannig að ákvæðið um varasjóðina hefur staðið áframhaldandi, enda gamalt að stofni til, mjög gamalt sennilega. Ég get tekið undir það, sem kemur fram hér í grg., að ákvæðin um varasjóðsframlag fyrirtækja eru stórgölluð í núgildandi lögum. En ég held að við séum svo sannarlega að fara úr öskunni í eldinn með því að taka upp fjárfestingarsjóði, sem eiga að koma hér í staðinn, enda er þar bersýnilega um að ræða miklu stærri og meiri hlunnindi og fríðindi en voru með gömlu varasjóðsákvæðunum.

Menn munu vissulega reyna að benda á það í þessu sambandi að eignaaukningin í atvinnurekstri lækki tekjur til skatts þegar þar að kemur með einum eða öðrum hætti, eins og vikið er að í grg. þessa frv. En ég hygg að það sé nú meira sjónblekking, sem menn átta sig til fulls á ef þeir lesa frv., enda er ljóst af því að í fyrsta lagi getur aldrei orðið um að ræða skattlagningu, hvorki fyrr né síðar, nema á 2/3 hlutum af þessum skattfríðindum, sbr. það sem skýrt er tekið fram í frv., heldur er það og að menn eiga kost á að fyrna þessi fríðindi bæði með sérstakri flýtifyrningu og sérstakri fyrirframfyrningu, þannig að ég hygg að almenna reglan verði sú, að menn eiga ekki í neinum vandræðum með að losna við það um alla framtíð að greiða skatt af þessum fríðindum þótt reynt sé að láta annað í veðri vaka á yfirborðinu.

Loks er það ákvæði frv. að fyrningar allar eru stórlega hækkaðar. Það þarf varla að útskýra það fyrir einum eða neinum hvaða afleiðingar það hefur í för með sér fyrir skattgreiðslur fyrirtækja eða skattgreiðslur reksturs sem einstaklingar hafa með höndum. Að sjálfsögðu dregur það stórlega úr skattgreiðslum allra rekstraraðila þegar fyrningar t.d. á vélum og tækjum eru hækkaðar úr 12% í 20%, á mannvirkjum úr 2–6% í 2–10%, á skipum úr 8% í 10% og á verksmiðjuvélum og tækjum og hvers konar iðnaðarvélum úr 12% í 15%. Hér er sem sagt verið að rétta atvinnurekstri hvers konar mjög miklar gjafir úr ríkissjóði, ekki bara í eitt skipti heldur áframhaldandi, svo lengi sem ákvæði þessi yrðu í gildi. Þar á ofan bætist að íbúðarhúsnæði sem notað er í atvinnurekstri verður nú fyrnanlegt samkv. almennum reglum, en það hefur ekki verið fyrnanlegt samkv. almennum reglum, heldur einungis samkvæmt mjög afmörkuðum sérreglum í núgildandi skattalögum. Vissulega fara áhrif þessa ákvæðis nokkuð eftir því hvaða takmörkunarreglur verða settar í þessu sambandi, en ég hygg að hér sé farið út á afar hættulega braut, enda ljóst að eigendur fyrirtækja þurfa að sjálfsögðu að búa sjálfir í íbúðum, og er hætt við að með þessari breytingu á núgildandi skattalögum sé boðið upp á verulega misnotkun á ákvæðum skattalaga. Auðvitað segir það sig sjálft að allar reglur af þessu tagi eru til þess fallnar að bjóða upp á misnotkun. Það er ekki aðeins að hægt væri að misnota ákvæði af þessu tagi í sambandi við íbúðarhúsnæði, sem auðvitað er fyrst og fremst hugsað þegar fyrirtæki eiga íbúðir sem ætlaðar eru sérstökum starfsmönnum. En þarna er sem sagt um að ræða ákvæði sem væri mjög auðvelt að misnota, ef menn eru nógu klókir til, í þágu eigendanna sjálfra.

Sama gildir auðvitað um svo margt annað sem er ágalli núverandi skattakerfis. Það hefur mjög verið gagnrýnt að einstaklingar sem reka fyrirtæki geta stóraukið skattfrjálsar tekjur sínar með því að nota eignir sjálfum sér til handa sem skráðar eru af fyrirtæki. Bíllinn er mjög gott dæmi þessa. Launamaðurinn verður að borga skatt af öllum þeim tekjum sem hann ver til að reka bifreið sína, en atvinnurekandinn sleppur við það í flestum tilvikum. Hann getur látið þennan kostnað lenda á fyrirtækinu og þarf ekki að greiða skatt af þeim tekjum sem hann ver í þessu skyni. Þegar farið er út í það að gera mönnum kleift að fjárfesta og draga síðan fjárfestinguna frá tekjum sínum er auðvitað verið að ýta enn frekar undir það að menn misnoti þá möguleika sem á yfirborðinu eru ætlaðir í allt öðrum tilgangi og skapi sjálfum sér ýmiss konar fríðindi á vegum fyrirtækisins. Til þess að skapa þau fríðindi þarf þá væntanlega að fjárfesta í mörgum tilvikum, kannske kaupa nýja og dýrari bíla, og það er þá ekki nóg með að bíllinn sem fyrirtækið kaupir handa viðkomandi aðila sé rekinn af eigandanum, sem ekki þarf að greiða skatt af þeim tekjum sem varið er í þessu skyni, heldur verður fjárfestingin sjálf í bílunum tilefni til þess að minnka tekjur eigandans.

Ég þarf ekki að orðlengja að hérna er verið að skjóta mörgum stórum skotum á núgildandi skattalöggjöf og opna glufur og opna smugur sem gera mönnum kleift að skjóta tekjum undan skatti. Við höfum glæsilegt dæmi fyrir framan okkur eða hitt þó heldur þar sem er Glistrup hinn danski, sem nú situr í fangelsi eða er væntanlega á leiðinni þangað því að hann er víst nýsloppinn þaðan, en hann varð frægur að endemum fyrir að nota heimildir í skattalögum, sem auðvitað voru á yfirborðinu ætlaðar í mjög heiðarlegum tilgangi, á óheiðarlegan hátt og á þann hátt að hann gat sjálfur verið skattlaus árum saman. Ég er ekki í neinum vafa um að þetta frv. á ekki aðeins eftir að auðvelda miklum fjölda manna, sem ber lítinn tekjuskatt í dag og rekur fyrirtæki, að verða algerlega skattlaus og það á fullkomlega löglegan hátt, heldur mun það einnig fjölga verulega möguleikum manna til að skjóta tekjum undan skatti á ólöglegan hátt.

Ég nefndi í upphafi að hér væri um að ræða enn ein fríðindin í þágu þeirra sem best mega sín í þjóðfélaginu á sama tíma og almenningur verður fyrir gífurlegri kjaraskerðingu. Ég þarf ekki að minna á að það er auðvitað allur almenningur í landinu, sama fólkið og borgar meginhluta af útgjöldum ríkissjóðs í gegnum t.d. söluskatt og tolla, sem er aðaltekjustofn ríkissjóðs, sem verður endanlega að borga brúsann fyrir hátekjumennina, þegar tekjur ríkissjóðs dragast saman af völdum ákvæða þessa frv.

Því miður er ekki gerð nein grein fyrir því í frv. hver kostnaður ríkissjóðs af samþykkt þessa frv. verður. En á bls. 8 í frv. er viðurkennt að um verulega lækkun ríkistekna verði að ræða. Ég tel það aldeilis fráleitt af hæstv. ágætum fjmrh. að leggja fram frv. sem felur í sér verulega skerðingu ríkissjóðstekna án þess að nokkur grein sé gerð fyrir því hversu háa fjárhæð menn ætla að um sé að ræða. (Gripið fram í: Það er ólöglegt.) Raunar er það rétt ábending, sem hér kom, að það ber lögum samkvæmt að leggja slíka útreikninga fram hverju sinni.

Ég hygg að fundartími hv. deildar sé senn að verða búinn og skal nú reyna að ljúka máli mínu á sem allra stystum tíma hér í frá, þótt vissulega þyrfti og væri ástæða til að fjölyrða miklu meira um þetta frv. En það verður tækifæri til þess eftir að hv. fjh.- og viðskn. hefur fengið tækifæri til að fjalla um málið og það kemur hér til 2. umr.

Ég tel að þetta frv. þurfi hins vegar nokkra skoðun. Ég geri mér alveg grein fyrir því að það þarf að flýta málinu, það þarf að hraða málsmeðferð. En menn verða hins vegar að gera sér grein fyrir því að það verður að leita vissra umsagna um þetta mál og við verðum að fá sérfræðinga til að útskýra ýmislegt í frv., sem alls ekki er fullkomlega ljóst og síst af öllu fyrir þá sem ekki hafa staðið að samningu þess. Því hygg ég að við verðum að taka okkur einhvern tíma til afgreiðslu þess. Raunar er það svo um tekjuskattsfrv. hér á Alþingi, að þau eru einhver mesti hrærigrautur sem maður hefur lengi staðið frammi fyrir. Ég hygg að það séu ein fimm stjfrv. sem hafa verið hér til umfjöllunar um tekjuskattinn, fyrir utan tekjuskattsfrv. einstakra þm. Það eru í fyrsta lagi brbl., sem hlutu hér staðfestingu fyrr í vetur, og það var frv. sem var flutt í desembermánuði um skattstiga og breytingar á ýmsum ákvæðum skattalaganna. Það er í þriðja lagi sá litli bastarður sem sniðinn var út úr því frv. og afgreiddur fyrir jólin. Og svo stöndum við núna frammi fyrir tveimur öðrum frumvörpum sem snerta tekjuskattinn. Ekki er því að undra þótt margur maðurinn verði ruglaður þegar tekjuskattsmál ber hér á góma og átti sig kannske ekki atveg á hvaða mál það er sem raunverulega á hér að ræða því að þessi ólíku frv. eru að sjálfsögðu ekki sérmerkt í dagskrá Alþingis. En eins og ég segi: það eru fimm frv. frá ríkisstj. sem bera sama heitið, tekjuskattur og eignarskattur, fyrir utan frv. þm.

Ég vildi svo segja það að lokum að ég tel þörf á því að örva sparnað í þjóðfélaginu. Ég hygg að þeir sem hafa staðið að samningu þessa frv. og hæstv. ráðh. og hæstv. ríkisstj. annars vegar og svo hins vegar Lið stjórnarandstæðingar hins vegar séum alveg sammála um að það þurfi að örva sparnað í þjóðfélaginu. Það má vissulega til sanns vegar færa að nokkrar greinar þessa frv. geti verið liður í þeirri viðleitni. En það er bara ekki farið eins að gagnvart öllum sem hlut eiga að máli. Launamaðurinn sem vill leggja sparnað sinn inn á bankareikning, sem bankinn getur síðan lánað út — (Gripið fram í.) Nei, það er ekki verið að opna honum leið að því leyti að ef hann kýs að leggja sitt fé inn á venjulegan verðtryggðan sparireikning — bankinn getur svo lánað það út til hvaða fyrirtækis sem honum sýnist — þá fær hann ekki skattaleg fríðindi samkv. þessu frv. Hann verður að leggja féð í fyrirtæki. (Gripið fram í.) Hann verður að leggja féð í fyrirtæki. Það eru því einungis þeir sem við kaupsýslu fást, þeir sem fást við rekstur fyrirtækja nú þegar eða ætla sér að gera það með þessum nýju ákvæðum, sem munu njóta þessara fríðinda. En hinn almenni launamaður, sem kýs að leggja fé sitt á reikninga hjá opinberum bankastofnunum, nýtur þessara fríðinda ekki. (Fjmrh: Atvinnurekandinn ekki heldur, ef hann leggur inn á banka.) Og það tel ég að sé að sjálfsögðu aldeilis fráleitt, að ætla sér að skapa þann ójöfnuð að bara þessi sérstaka tegund fjárfestingar skapi mönnum skattfríðindi.

Að öðru leyti áskil ég mér rétt til að fjalla um þetta mál nánar við 2. umr. málsins.