25.01.1984
Neðri deild: 40. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2345 í B-deild Alþingistíðinda. (2071)
31. mál, kosningar til Alþingis
Landbrh. (Jón Helgason):
Herra forseti. Frv. til laga um breytingu á lögum nr. 52 14. ágúst 1959, um kosningar til Alþingis, er flutt hér til staðfestingar á brbl., sem útgefin voru hinn 22. apríl 1983, um það að heimilt væri að hafa kjördaga tvo, ef erfiðleikar yrðu svo miklir í samgöngum við kosningarnar sem fram áttu að fara þann 23. apríl, að ekki yrði unnt fyrir alla kjósendur að koma til kjörfundar þann dag.
Sem betur fer rættist betur úr en á horfðist með samgöngur, þannig að ekki kom til að hafa þyrfti kjördagana tvo. En þetta frv. er hér flutt til staðfestingar á þessum brbl.
Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. allshn.