25.01.1984
Neðri deild: 40. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2353 í B-deild Alþingistíðinda. (2081)
149. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Karvel Pálmason:
Virðulegi forseti. Auðvitað er eðlilegt og sjálfsagt að miðað við ríkjandi kringumstæður í þjóðfélaginu gæti ráðh. þess ekki hvað síst að ekki sé hreyft um of fram álögum á almenning í landinu umfram það sem verið hefur. Ég fagna því þess vegna að hæstv. iðnrh. gefur yfirlýsingu um að hann ætli sér að vera staður þó að vissulega, eins og hann greindi frá, kunni að koma til undantekninga í þeim efnum.
Hins vegar er ekki að sjá að hæstv. ríkisstj. sem heild hafi verið mjög stöð í því að taka til sín auknar álögur af almenningi í landinu við afgreiðslu t.d. síðustu fjárlaga og það virðist ætta að halda áfram, a.m.k. á sumum sviðum.
Ekki er síst ástæða til að bæjar- og sveitarstjórnir hugi líka að því að nánast er kreppuástand í þjóðfélaginu. Búið er að skerða kjör launþega meira en nokkru sinni hefur verið gert áður, a.m.k. um margra áratuga skeið, og ástæða til að vekja athygli þeirra bæjar- og sveitarstjórnarmanna á því sem ekki hafa vitneskju þar um ef þeir skyldu vera einhverjir sem ég hygg þó að ekki séu fyrir hendi. Því öllum hlýtur að vera ljóst hversu mikið er búið að rýra kaup og kaupmátt og kjör allra launþega í landinu á undangengnum nokkrum mánuðum.
Það er rétt sem fyrrv. hæstv. félmrh., núv. hv. 3. þm. Reykv., sagði áðan að taxtarnir á heita vatninu í Reykjavík eru partur af launakjörum fólksins hér. En þessi ágæti hv. þm. hefði átt að huga að þessu fyrr. Þetta er líka partur af launakjörum launafólks úti á landi, þ.e. raforkuverð og sá upphitunarkostnaður sem það hefur orðið að búa við og verður að greiða. Ekki var að sjá á hæstv. félmrh. fyrrv. ríkisstj. að hann tæki nærri sér að hrifsa til sín fjármagn sem búið var að skattleggja til að greiða til þessa fólks og nota það í annað. Þá heyrðust ekki hér yfirlýsingar um að það væri partur af launakjörum fólksins sem hér væri verið um að fjalla. Ég er ekkert hissa á því þó að hann sem þm. Reykv. taki þetta mál upp nú í því formi sem hann gerir. En mér hefði fundist að hv. þm. hefði átt að muna eftir þessu öll sín ráðherraár þegar hann hlunnfór launafólk víðs vegar út um landið, ekki síst á köldu svæðunum, með því að taka ófrjálsri hendi peninga sem hann átti að skila til þess.
Það er líka rétt hjá hv. 3. þm. Reykv. að í raun og veru er hin eina sjálfvirkni sem bönnuð er af kaupinu. En það er eins og mig minni — hv. 3. þm. Reykv. leiðréttir ef það er ekki rétt — að við afgreiðslu á brbl. ríkisstj. í lok síðasta árs, við bann á vísitölubótum, að hv. 3. þm. Reykv. svo og fleiri Alþb.-menn greiddu atkv. gegn þeirri brtt. okkar Alþfl.-manna að afnema líka sjálfvirknina hjá ríkinu. Ég hygg að þetta sé rétt, hv. þm. Svavar Gestsson, og mér þætti vænt um ef hv. þm. kæmi hér upp á eftir ef þetta er rangt og lýsti því yfir að hann hefði ekki greitt atkv. gegn þessu. Þá yrði flett upp á því til sönnunar. En það er auðvitað tvískinnungsháttur að greiða atkv. gegn því að afnema sjálfvirknina hjá ríkisfyrirtækjunum, að þau geti alltaf velt áfram eftir verðbólgunni, en á sama stigi að gagnrýna að það sé gert í sambandi við launin.
Hér hefur aðeins komið inn í umræðuna margumtalað námsvistargjald. Mér þætti fróðlegt að fá um það vitneskju t.d. hvaða afstöðu hæstv. félmrh. hefur til þess sem fyrrv. sveitarstjórnarmanns og framarlega í herbúðum sveitarstjórnarmanna í landinu, hvort hann telur slíkt námsvistargjald eiga rétt á sér eða eðlilegt. Mér þætti líka gaman að heyra afstöðu hæstv. iðnrh. í þessum efnum, hver hans afstaða er til þessa. Ég veit ekki betur en a.m.k. vel flestir ef ekki allir sveitarstjórnarmenn í hans kjördæmi hafi mótmælt þessari gjaldtöku. Þess vegna væri fróðlegt að heyra afstöðu hans.
Ef þetta á svona fram að ganga með því að Reykjavíkurborg líðist að taka slíkt gjald af skólafólki á þessu svæði sem kemur utan af landsbyggðinni hlýtur að koma upp sú eðlilega krafa frá hinum ýmsu t.d. sjávarplássum og fleirum úti á landsbyggðinni að greitt sé sérstakt gjald af því skólafólki héðan úr Reykjavík sem aflar mikilla tekna úti á landi við fiskvinnslu yfir sumarmánuðina. Það er ekki síður réttlætanlegt að taka upp slíkt gjald til þess að taka af fólki sem kemur á svæði til að afla sér stórra peninga á svipaðan hátt og menn ætla hér að fara að taka gjald af fólki sem kemur til þess að afla sér menntunar. Sem í raun og veru þýddi það einvörðungu ef af yrði að þetta fólk utan af landi mundi ílengjast og festast hér miklu frekar en nú gerist.
Ég vildi líka gjarnan heyra hver afstaða hv. 3. þm. Reykv. er í þessu námskostnaðargjaldi, hvort hann tetur það eðlilegt og réttlætanlegt eða sjálfsagt að Reykjavíkurborg taki upp slíka gjaldheimtu af nemendum utan af landsbyggðinni. Það væri fróðlegt að heyra slíkt. Og með áframhald af þessu bíð ég eðlilega eftir því að fá þá vitneskju sem hér hefur verið beðið um. Ég geri mér vonir um að hún sé föl og komi hér fram.