25.01.1984
Neðri deild: 40. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2357 í B-deild Alþingistíðinda. (2087)
60. mál, orkulög
Flm. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Fyrir því getur varla fundist nokkur réttlætisvottur að menn geti auðgast á því eða setið yfir hlut annarra vegna þess eins að á landi þeirra sé jarðskorpan eitthvað þynnri en annars staðar. Þetta frv., sem ég mæli hér fyrir, er flutt út frá þeirri réttlætiskennd að við viljum ekki að menn auðgist með svo einkennilegum hætti eða vegna þess eins hvernig hagar til með jarðskorpuna á hverjum og einum stað. Þetta frv. felur í sér þá stefnumörkun, að sú orka sem fólgin er í háhitasvæðum sé sameign þjóðarinnar. Djúphiti yrði sem sagt almannaeign. Hins vegar er gert ráð fyrir að jarðvarmi á lághitasvæðum og yfirborðshiti yrði hvarvetna háður einstaklingsrétti landeigenda.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að Alþfl. hefur lengi haft á stefnuskrá sinni að binda það í lög að eignarráð íslensku þjóðarinnar á landinu og miðunum séu sameign, að landið verði þjóðareign, að orkulindirnar verði sameign þjóðarinnar og byggðin í landinu háð vaxtarrými án þess að þurfa að greiða okurgjald fyrir. Viðgangur byggðar og atvinnu í landinu þarfnast þess að orkulindir fallvatna og jarðvarma séu virkjaðar í almannaþágu og landrými sé ráðstafað til mannvirkjagerðar. Það er vitaskuld gagnstætt öllu réttlæti að einstakir landeigendur geti hirt stórgróða vegna þess eins að þjóðarnauðsyn og atþjóðarþörf hafi gert lönd þeirra verðmæt án nokkurs tilverknaðar þeirra sjálfra.
Vegna þessarar stefnumörkunar hefur Alþfl. á undanförnum þingum flutt nokkur lagafrv., þar á meðal frv. til l. um endurskoðun á eignarnámsbótum sem gilda munu fyrst og fremst í nágrenni við þéttbýli. Í annan stað um að afréttir, sem ekki eru skilmerkilega í eign annarra, séu lýstir sameign þjóðarinnar og í þriðja lagi, svo ég telji aðeins þrennt, það frv. sem ég mæli hér fyrir.
Þetta lagafrv. fjallar sem sagt sérstaklega um þann djúphita sem fólginn er í iðrum jarðar og að gera hann að almannaeign.
Það má segja að hugmyndin um þjóðareign landsins sé jafngömul jafnaðarstefnunni og hún var í fyrstu stefnuskrá Alþfl. Sá hugsunarháttur hefur ríkt hér á landi til skamms tíma að landrými sé feikinóg og náttúruauðlindir takmarkalausar. Fleiri þjóðir hafa reyndar vaðið í þeirri villu. Nú er annað komið á daginn. Allt er þetta takmarkað og þjóðin deilir um auðlindir landsins, en óttast eyðingu lands og nytjafiska.
Þau frv. sem Alþfl. hefur flutt áður um þetta efni hafa oft mætt harðri mótspyrnu íhaldssamra afla, en það verður að segjast eins og er að þær hafa vakið þjóðarathygli og fengið undirtektir um land allt. Við höfum stundum orðað það svo, Alþfl.-menn, að grundvallarsetning íslenskrar stjórnarskrár ætti í rauninni að vera eitthvað á þessa leið að því er þetta mál varðar, að íslenska þjóðin öll, einn fyrir alla og allir fyrir einn, á Ísland allt, gögn þess og gæði og miðin umhverfis það.
Það er vitaskuld ljóst að æðsta stofnun þjóðarinnar, Alþingi, fer með umráðarétt á þessari eign, en getur með sérstökum lögum og reglum veitt einstaklingum, fyrirtækjum og félagsheildum, t.d. sveitarfélögum, tiltekinn rétt til þessara gæða. Við jafnaðarmenn lítum svo á að það sé fráleitt að fjölmennar byggðir nái ekki að virkja nærtæk fallvötn til framleiðslu á orku og á sama hátt að virkja jarðhita til framleiðslu á hita, hvort heldur er til húshitunar eða iðnaðar. Við teljum fráleitt að einstakir landeigendur geti staðið í vegi fyrir framförum af þessu tagi.
Við teljum að sá jarðvarmi, sem ríki og samfélagslegt fjármagn og framtak þarf til almannanota, eigi að vera þjóðareign og taka skuli hann til almannaþarfa án stórgjalds til hugsanlegra landeigenda. Við teljum að það stríði gegn eðlilegri réttarkennd að land- eða lóðareigandi grípi af því offjár að þétt byggð hafi án hans tilverknaðar myndast í eða við landareign hans og þurfi vaxtarrúm. Það er af þessum sökum sem við höfum flutt þau lagafrv. sem ég gat um áðan varðandi sameign þjóðarinnar á landinu.
Að því er varðar það mál sérstaklega sem ég mæli hér fyrir, þ.e. breytingu á orkulögum, er það svo, að um það hafa oftlega áður verið flutt lagafrv. hér á Alþingi af fulltrúum ýmissa flokka og þm. Alþfl. hafa oft áður verið meðal flm. lagafrv. um almannaeign á jarðhita. Það má segja að megindrögin í því frv. sem ég mæli hér fyrir séu hin sömu og í þeim frv. sem áður hafa verið flutt, t.d. á árunum 1972–1977, og þar á meðal sem stjfrv. af þáv. hæstv. iðnrh. Magnúsi Kjartanssyni og síðar sem þmfrv. sem flutt var af ýmsum þm.
Í þessu frv. er þó gerð ein veigamikil breyting frá fyrri frv., nefnilega sú, að sveitarfélög eða samtök sveitarfélaga eða fyrirtækja þeirra, sem keypt hafa sér land með vinnslu háhita í huga eða rétt til vinnslu fyrir gildistöku laganna, skuli halda rétti sínum óskertum.
Eins og ég gat um fyrr í máli mínu er í þessu lagafrv. greint á milli umráða- og hagnýtingarréttar á jarðhita eftir því hvort hann er að finna á háhitasvæðum eða lághitasvæðum. Allur jarðhiti á lághitasvæðum er háður einstaklingsrétti landeigenda samkv. þessu frv., en annar jarðhiti, þ.e. á háhitasvæðum, er í almannaeign og í umráðum ríkisins samkv. þessu frv. Þó er gert ráð fyrir að þeir sem borað hafa eftir jarðhita á háhitasvæðum og byrjað vinnslu hans fyrir gildistöku laganna eða keypt sér þar rétt til vinnslu hafi þann rétt óskertan áfram.
Samkv. þessu frv. er líka óheimilt að aðrir aðilar en ríkið og þeir sem leyfi ríkisins fá bori eftir jarðhita á háhitasvæðum. Ráðh. sá sem fer með orkumál hefur samkv. frv. heimild til að leyfa vinnslu jarðhita á háhitasvæðum til minni háttar nota, en að öðru leyti skal skipa því með löggjöf hverju sinni. Með því er tryggt að nýting þessara orkulinda verði sem hagkvæmust fyrir þjóðina.
Í samræmi við 2. gr. orkulaga er Orkustofnun ætlað það hlutverk að ákveða nánar hver séu mörk háhitasvæða, en til að auðvelda Orkustofnun eftirlit með hagnýtingu jarðhitans er ákveðið að skylt sé að tilkynna henni allar boranir eftir jarðhita sem eru dýpri en 100 metrar. Enn fremur eru sett ákvæði um heimild til eignarnáms á aðstöðu vegna borunar og vinnslu jarðhita á háhitasvæðum.
Með þessu frv., ef að lögum verður, eru eignarrétti einstaklinga sett tiltekin almenn takmörk án þess að bætur komi fyrir, en heimild löggjafans til að setja eignarréttindum almennar takmarkanir er fyrir löngu viðurkennd af dómstólum.
Það verður að segja að nýting háhitaorkunnar telst ekki til þeirra nota af landi sem heyra til venjulegrar hagnýtingar á eignarrétti fasteigna. Verðmæti fasteigna í jörðu hafa ekki orðið til fyrir mannlega starfsemi. Það er líka ljóst að til rannsókna á hagnýtingargildi hinna einstöku háhitasvæða þarf að kosta miklu fé, en þar sem niðurstöður slíkra rannsókna hljóta ávallt að vera óvissar er vafasamt að einstakir landeigendur hætti fé sínu til slíkra rannsókna. Fjárfesting í tækjum til rannsókna og vinnslu jarðhitans á háhitasvæðum hlýtur að verða a.m.k. flestum einstökum landeigendum ofviða, svo að ekki sé tekið dýpra í árinni.
Það er líka nauðsynlegt að nýting jarðhita á hverju einstöku háhitasvæði lúti stjórn eins aðila, þar sem skipulagslausar boranir á sama svæði af hálfu fleiri aðila mundu leiða til óþarfa sóunar og árekstra þar sem síðari boranir gætu raskað vinnslu jarðhita úr borholum sem áður hafa verið boraðar. Af þessum ástæðum hefur þótt rétt að tryggja með lögum, eins og þetta frv. gerir ráð fyrir, að jarðhiti á háhitasvæðunum verði nýttur á þjóðhagslega hagkvæman hátt án þess þó að koma í veg fyrir eðlileg not landeigenda af fasteignum sínum.
Að svo miklu leyti sem landeigandi verður fyrir takmörkunum á eignarrétti sínum á landi vegna borunar og vinnslu jarðhita á háhitasvæðinu ber honum að sjálfsögðu að fá fullar bætur fyrir.
Með þessu lagafrv. er fylgirit þar sem þekkt háhitasvæði eru talin upp. Það er reyndar gert í lagafrv. sjálfu og gerð grein fyrir því að líklegt sé að finnast muni fleiri háhitasvæði innan gosbeltanna á Íslandi. Flest þessi háhitasvæði eru allhátt yfir sjó, en á tveimur þekktum háhitasvæðum, Reykjanesi og Svartsengi og líklega í Eldvörpum, er djúpvatnið sjór, en annars staðar ósalt grunnvatn sem hitnað hefur við hringrás djúpt í jörðu. Hvert háhitasvæði er sjálfstætt rennsliskerfi og getur vinnsla á einum stað raskað rennsli á öðrum stöðum í kerfinu. Af þessum sökum er mikilvægt að vinnsla jarðvarma á hverju svæði sé undir yfirstjórn eins aðila.
Í 1. gr. frv. er að finna skilgreiningu á háhitasvæðum. Jafnframt eru talin upp þau jarðhitasvæði sem ekki falla undir þessa skilgreiningu.
Í 1. gr. er líka kveðið á um að ríkið eigi allan umráðarétt til hagnýtingar á jarðhita- og háhitasvæðunum, en landareign hverri fylgir réttur til umráða og hagnýtingar jarðhita á lághitasvæðunum og takmarkaður réttur til nýtingar á háhita landeiganda til handa. Síðan er tiltekið í 2. gr. að ríkið eigi rannsóknarréttinn að því er þessi svæði varðar og landeiganda sé skylt að leyfa þeim mönnum sem ríkið eða leyfishafi gerir út í þeim tilgangi aðgang að landareigninni í rannsóknarskyni, en skemmdir ef einhverjar verða skuli bættar að fullu eftir mati. Ákveðið er að leyfi ráðh. skuli bundið þeim skilyrðum að Orkustofnun eigi þess kost að fylgjast með rannsókninni.
Í 3. gr. er tiltekið að til vinnslu jarðhita á háhitasvæði þurfi að öllu jöfnu leyfi Alþingis. Ráðh. sé þó heimilt að veita leyfi til minni háttar vinnslu, eins og nánar er tiltekið í greininni. Síðan er tiltekið að þau sveitarfélög eða samtök sveitarfélaga eða fyrirtæki sveitarfélaga sem keypt hafa sér land með vinnslu háhita í huga eða rétt til vinnslu jarðhita á háhitasvæði fyrir gildistöku þessara laga skuli halda rétti sínum óskertum. Nánari ákvæði eru síðan um hver sé réttur sveitarfélaganna og hvernig fara skuli með umsóknir sem berast og þá einkum og sér í lagi það sem þegar hefur átt sér stað á háhitasvæðum áður en lögin taka gildi. Það er þetta atriði einkum og sér í lagi, þar sem komið er til móts við sveitarfélögin og fyrirtæki þeirra og stofnanir, sem er frábrugðið því sem var í hinum fyrri frv. sem ég gat um.
Ég sé tæpast ástæðu til þess, herra forseti, að rekja efnisþætti öllu nánar. En ég vil leggja áherslu á að eins og þetta frv. er nú búið er leitast við að ná þeim markmiðum sem ég held að hafi komið fram í máli mjög margra þm. á Alþingi og hefur víða komið fram meðal almennings í landinu án þess að gengið sé svo langt í því að ríkið eignist allar orkulindir af þessu tagi að menn ættu að þurfa að hrökkva í kút þess vegna.
Eins og ég gat um er hér um það að ræða að taka háhitann sérstaklega fyrir og setja lög um það efni, en láta lághitasvæðin óhreyfð. Hugmyndin er sem sagt sú, að með því að flytja þetta í þessu formi geti fleiri um það sameinast, en það er ekki vansalaust að svo lengi sem þetta mál hefur verið í umr. meðal þjóðarinnar og á Alþingi skuli Alþingi ekki enn hafa haft uppburði í sér til að setja lög og taka afstöðu í þessum efnum. Það er slæmur ljóður á þinginu að það kinoki sér við ýmiss konar lagasetningu sem mjög brýn er í þessum efnum. Ég tel einmitt að það mál sem ég mæli hér fyrir sé af því tagi þó að þessi hafi því miður orðið örlög þess alloft. Þess vegna vil ég skora á alþm. að hyggja nú vel að þessu máli og koma þá frekar fram með brtt. og semja sig fram til lausnar á málinu en láta það enn einu sinni daga hér uppi óafgreitt.
Að endingu, herra forseti, vænti ég þess að við munum njóta ötuls stuðnings hæstv. iðnrh. í þessu máli og legg til að að lokinni umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. iðnn. þessarar deildar.