25.01.1984
Neðri deild: 40. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2361 í B-deild Alþingistíðinda. (2088)

60. mál, orkulög

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Virðulegi forseti. Ég hygg að þing þau sem ég hef setið séu færri en hin, að ekki hafi komið fram frv. í þessa veru frá þm. Alþfl. Margt er í þessu frv. rétt og vel athugað. Ég vænti þess að þótt ég taki þann veg undir verði það ekki metið á þann veg að ég sé með öllu að fallast á grundvallarsjónarmið jafnaðarmanna til eignarréttarins. Ég er að vísu eignarréttarsinni og jafnvel séreignarréttarsinni, en á hinn bóginn er ég ákafur fylgismaður þess að hagsmunir fárra verði að víkja fyrir hagsmunum fjöldans og þá alveg einkum og sér í lagi í því falli sem einstaklingurinn getur ekki nýtt sér hagsmunina eins og hann í fæstum tilfellum getur eða einkum þegar um er að tefla háhitann í landinu. Þar verður þjóðfélagið sjálft að koma til skjalanna.

Ég hef leitað mér lögfræðilegrar aðstoðar og ráðgjafar til að gera athugun á eignarréttarmálum vegna háhitans, jarðhitans og virkjunarréttar. Það er rétt sem hv. 3. þm. Reykn. tók fram, það er ekki vansalaust að reyna ekki að ná festu í þessu máli og ég verð að segja að mér sýnist þetta frv. vera í átt til þess samkomulags sem við hljótum að leita eftir að við náum um þessi mikilvægu mál, að við höfum fast undir fótum. Að athuguðu þessu frv. og grg. þess held ég að það skilji ekki eins margt að og menn skyldu að ósynju halda. Ég mun þess vegna beita mér fyrir því í framhaldi af niðurstöðu þeirrar athugunar sem nú fer fram á vegum iðnrn. að þetta mál verði hið allra fyrsta tekið upp í því skyni að við náum samkomulagi sem hið háa Alþingi geti sæmilega við unað og við búið og þjóðin við búið á næstunni. Ég á von á því að þess verði ekki langt að bíða að þau atriði skýrist, en ég er auðvitað meðmæltur því að þetta frv. fái þinglega meðferð og athugun í sérstakri nefnd. Það getur líka orðið til hjálpar við að ráða þessu endanlegan farveg.