25.01.1984
Neðri deild: 40. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2361 í B-deild Alþingistíðinda. (2089)

60. mál, orkulög

Flm. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. undirtektir hans við þetta mái. Ég óttaðist það undir fyrri hluta ræðu hans að hann ætlaði að falla í sömu gryfjuna og maður hefur oft heyrt hjá hæstv. ráðherrum að ekki væri hægt að standa í þessu stússi vegna þess að málin væru í athugun í rn. sem orðið er heldur leiðigjarnt. Ég hef hlustað á það í ýmsum málum, þ. á m. í þessu máli einhvern tíma áður. En svo skemmtilega brá við að hæstv. iðnrh. féll ekki í það farið. Hann sagði að vísu að hann hefði leitað sér lögfræðilegs álits á þessu máli og um það er ekki nema gbtt eitt að segja, en að öðru leyti kvað við þann tón að sjálfsagt væri að reyna að ná samstöðu um málið og það gæti fengið þinglega meðferð. Ég læt í ljós sérstaka ánægju mína með þessi viðbrögð iðnrh. og að hann skuli vera sammála mér og okkur Alþfl.-mönnum um það mat að frv. í þeim búningi eins og það er hér núna sé á þann veg að verið sé að teygja sig til samkomulags þannig að sem flestir geti bærilega við unað.

Ég vænti þess að þeir lögfræðingar sem hæstv. iðnrh. hefur á sínum snærum og hefur til verksins ráðið hraði nú frekar störfum sínum. Ég veit að hæstv. iðnrh. getur verið harla drjúgur við að reka á eftir mönnum ef því er að skipta þannig að farið geti saman í starfi nefndarinnar við athugun á þessu frv. að njóta þeirra gagna sem hæstv. iðnrh. mundi þá fá í þessu máli. Það mundi geta auðveldað afgreiðslu málsins og ég lýsi yfir fullum vilja til samstarfs um málsmeðferðina. Eins og ég sagði í upphafsorðum mínum er það ósk okkar að menn teygi sig nú frekar til samkomutags um þetta mál og reyni að afgreiða það því að það er ekki vansalaust, eins og bæði ég og hæstv. ráðh. höfum bent á í máli okkar áður, að mál eins og þetta liggi óhreyft árum saman, komist ekki til afgreiðslu þegar í rauninni er orðin svo brýn nauðsyn á að setja lög um þetta efni og fyrir því almennur vilji og skilningur í þjóðfélaginu og síðast en ekki síst þegar ljóst er að væntanlega mun mikill meiri hl. alþm. gjarnan vilja setja lög sem eru í þá veru sem hér er mælt fyrir, svo að ég fari nú ekki út í að togast á um einstök orð, málsgreinar, kommusetningu eða þvílíka smámuni.

Sem sagt, herra forseti, þakka ég hæstv. iðnrh. fyrir þessar undirtektir og vona svo sannarlega að gott á viti.