25.01.1984
Neðri deild: 40. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2362 í B-deild Alþingistíðinda. (2091)

96. mál, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir):

Herra forseti. Ég hef leyft mér þskj. 117 að flytja frv. til l. um breytingu á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Frv. fjallar um að ef sjóðfélagi lætur ekki eftir sig maka, en aftur á móti börn, sem voru að hluta eða að öllu leyti á framfæri hins látna sjóðfélaga, skal makalífeyririnn ganga til barnanna fram til 24 ára aldurs. Heimilt er að framlengja þær greiðslur samkv. nánari ákvörðun sjóðsstjórnar ef um er að ræða langvarandi sjúkdóm, fötlun eða aðrar erfiðar félagslegar aðstæður barna sjóðfélaga.

Reglur um makalífeyri eru nokkuð mismunandi hjá lífeyrissjóðunum. Að því er varðar Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins gilda eftirfarandi reglur:

1. Við lát sjóðfélaga fær maki greiddan makalífeyri sem er 20% af greiddum launum að viðbættu 1% fyrir hvert iðgjaldagreiðsluár.

2. Hafi sjóðfélagi verið tvígiftur og lætur eftir sig tvo maka skiptist makalífeyririnn milli þeirra í hlutfalli við þann tíma sem hvor þeirra hefur verið giftur hinum látna á þeim tíma sem hann ávann sér lífeyrisréttindi. Mér er ekki kunnugt um að slíkt ákvæði um tvískiptingu makalífeyris sé hjá öðrum lífeyrissjóðum.

3. Í þriðja lagi er að auki heimilt, ef sjóðfélagi lætur ekki eftir sig maka en einstæð móðir hans, ógift systir hans eða annar ógiftur aðili hafi sannanlega annast heimili hans um árabil fyrir andlát hans, að greiða hlutaðeigandi makalífeyri eins og um ekkju eða ekkil væri að ræða.

Með þessu síðasta ákvæði, sem ég hef hér rakið, er því opnaður möguleiki á að greiða öðrum aðilum en maka makalífeyri. Breytingin sem í þessu frv. felst er að undir sérstökum kringumstæðum, ef sjóðfélagi lætur ekki eftir sig maka, geti makalífeyririnn gengið til barna sjóðfélaga fram til 24 ára aldurs. Ennfremur er lagt til að heimilt sé að framlengja greiðslur ef um er að ræða langvarandi sjúkdóm, fötlun eða aðrar erfiðar félagslegar aðstæður barna sjóðfélaga. Fordæmið er fyrir hendi, eins og ég hef áður frá greint, að aðrir en makar geti fengið greiddan makalífeyri.

Eins og nú er háttað um reglur lífeyrissjóðanna fá börn látins sjóðfélaga greiddan barnalífeyri til 18 ára aldurs. Ef barn á ekki foreldri eða kjörforeldri á lífi er greiddur úr lífeyrissjóðnum tvöfaldur barnalífeyrir almannatrygginga eða rúmar 1600 kr. Lífeyrisréttindi, sem einstætt foreldri hefur áunnið sér, tryggja því ekki afkomu barnsins lengur en til 18 ára aldurs. Jafnvel þótt einstætt foreldri hafi greitt áratugum saman 4% af launum sínum til lífeyrissjóðsins tryggja lífeyrisréttindi þess ekki fjárhagslega afkomu barnsins betur en hér hefur verið lýst. Munaðarlaus börn eða börn einstæðra foreldra eiga því ekki margra kosta völ þegar lífeyrisréttindi móður eða föður tryggja þeim aðeins þessa litlu lífeyrisupphæð til 18 ára aldurs. Hér er lagt til að opnaður verði möguleiki til þess að greiða barni sjóðfélaga lífeyri til 24 ára aldurs og í undantekningartilfellum til lengri tíma eins og hér hefur verið lýst.

Eins og fram kemur í grg. er það orðið æ algengara að ungt fólk fari í framhaldsnám að loknu skyldunámi. Þó vissulega sé það ekki algengt þá á ungt fólk oft bakhjarl í einni eða annarri mynd í foreldrahúsum á þeim tíma. En foreldralaus ungmenni eiga síður nokkurn slíkan bakhjarl við þær aðstæður. M.a. þess vegna er miðað við 24 ára aldur í þessu frv. Benda má einnig á það, að í frv. til barnalaga, sem var til meðferðar í 103. löggjafarþingi, var lagt til að framlag til menntunar eða starfsþjálfunar barns væti heimilt að ákveða allt til þess að barn nær 24 ára að aldri. Var þar vísað til þess að þetta ákvæði væri í dönskum barnalögum frá 1960.

Í annan stað hlýtur það að vera sanngirnismál að einstæðir foreldrar, sem mjög lengi hafa greitt í lífeyrissjóð, geti búið við það öryggi og réttlæti að lífeyrisréttindi, sem þeir hafa áunnið sér og skv. lögum um Lífeyrissjóð opinberra starfsmanna renna til maka og barna sjóðfélaga, geti, ef maki er ekki á lífi, runnið til að tryggja m.a. skólagöngu barna þeirra til 24 ára aldurs. Einnig verður á það að líta að skv. barnalögum er nú heimilt að framlengja framfærsluskyldu meðlagsaðila til 20 ára aldurs vegna menntunar eða starfsþjálfunar barna. Ekki hefur þó verið hugað að greiðslum vegna menntunar eða starfsþjálfunar barna einstæðra foreldra sem ekki hafa til neins meðlagsskylds aðila að leita.

Ég vil benda hv. þm. á að líta á það sem fram kemur í grg. með þessu frv. Þar eru tekin tvö dæmi sem sýna ljóslega að við fráfall sjóðfélaga, sem lætur eftir sig maka og börn, nýtast áunnin lífeyrisréttindi miklu betur nánustu ættingjum, þ.e. maka og börnum, heldur en áunnin lífeyrisréttindi ekkju nýtast börnum hennar undir sömu kringumstæðum, jafnvel þótt hún hafi greitt jafnlengi og jafnmikið í lífeyrissjóð og sá sjóðfélagi sem lætur eftir sig maka og börn. Er munurinn í þeim dæmum tveim sem hér eru tilgreind um 5700 kr. á mánuði.

Þar sem lífeyrissjóðirnir hafa opnað möguleika fyrir það að makalífeyrir geti undir vissum kringumstæðum runnið til annarra en maka, þá tel ég það réttlætismál að opnað sé fyrir það að því er varðar börn einstæðra foreldra, ekkju og ekkla að makalífeyririnn geti undir ákveðnum kringumstæðum einnig runnið til þeirra. Ljóst er að afkoma foreldralausra barna getur verið mjög ótrygg og til að mynda komið í veg fyrir frekari skólagöngu þeirra þar sem greiðslu úr lífeyrissjóði lýkur við 18 ára aldur og ekki til neins meðlagsskylds aðila að leita. Það gæti því skipt verulegu máli fyrir foreldralaus börn og ungmenni að lögum um Lífeyrissjóð opinberra starfsmanna yrði breytt á þann veg sem hér er lagt til. Er ég sannfærð um það að ekki getur verið um fjölmennan hóp að ræða, sem nyti réttar ef lögum um Lífeyrissjóð opinberra starfsmanna yrði breytt á þann veg sem hér er lagt til, og því varla mikill kostnaður fyrir lífeyrissjóðina samfara þessari breytingu. Það gæti aftur á móti haft veruleg áhrif á framtíð þeirra barna og ungmenna sem standa uppi foreldralaus, ef þessa frv. næði fram að ganga.

Þeir forustumenn lífeyrissjóða sem ég hef talað við um þetta mál og þá breytingu sem hér er lögð til eru sammála mér í því, að hér sé mikið réttlætismál á ferðinni, og einnig hitt, að ekki muni vera nema um óveruleg útgjöld fyrir lífeyrissjóðina að ræða, sem aftur á móti gætu haft mikla þýðingu fyrir þá sem réttar nytu samkvæmt breytingunni sem hér er lögð til. Ef frv. þetta yrði samþykkt er nauðsynlegt að stjórnvöld beiti sér fyrir því í samráði við aðra lífeyrissjóði í landinu að sett verði sambærileg ákvæði í reglugerð allra starfandi lífeyrissjóða í landinu.

Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að fjölyrða frekar um þetta frv. en legg til, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.