11.10.1983
Neðri deild: 1. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í B-deild Alþingistíðinda. (21)

Kosning forseta og skrifara

Forseti (Ingvar Gíslason):

Ég býð báða varaforsetana sérstaklega velkomna til starfa og vænti þess að milli okkar verði gott samstarf og milli okkar forseta og þd. verði yfirleitt gott og farsælt samstarf á þingtímanum.

Þessu næst voru kosnir skrifarar deildarinnar að viðhafðri hlutfallskosningu. Fram komu tveir listar. Á A-lista var HBl, á B-lista var ÓÞÞ. — Þar sem ekki voru fleiri tilnefndir en kjósa skyldi lýsti forseti yfir að kjörnir væru án atkvgr.:

Halldór Blöndal, 5. þm. Norðurl. e., og

Ólafur Þ. Þórðarson, 5. þm. Vestf.