26.01.1984
Sameinað þing: 39. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2374 í B-deild Alþingistíðinda. (2102)

77. mál, veiðar í erlendri fiskveiðilandhelgi

Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Ég hef því miður ekki hlýtt á allar þessar umr. en vildi aðeins koma inn á það að á s.l. ári, eins og menn muna, kom þetta boð frá Bandaríkjamönnum svona. Það mátti a.m.k. skilja það svo að þar væri um ákveðna möguleika að ræða. Ég spurðist fyrir um það strax í vor hvaða möguleikar gætu verið þarna fyrir hendi. Við höfðum samband við söluaðilana í Bandaríkjunum. Þeir töldu að þarna væru tiltölulega litlir möguleikar og það var rætt um þessi mál bæði við sendiráð Bandaríkjanna og einnig við sendiherra okkar í Bandaríkjunum. Þarna hafa farið fram kannanir og fulltrúar frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna hafa farið til Bandaríkjanna og skoðað sig þar um og svo virðist sem þarna séu vissir möguleikar en á þeim eru mjög miklir annmarkar, t.d. þeir annmarkar að ekki er heimilt samkvæmt bandarískum lögum að skip, sem er smíðað annars staðar en í Bandaríkjunum, landi þar. Hins vegar virðist vera að þessar veiðiheimildir séu mjög eftirsóknarverðar.

Það hefur hins vegar vakið athygli mína að á fundi, sem haldinn var nýlega að því er mig minnir í Vínarborg og ég hef séð skýrslu frá um sjávarútvegsmál, lögðu fulltrúar Bandaríkjamanna á það mjög mikla áherslu að það er þeirra stefna að veiðar erlendra þjóða í landhelginni yrðu lagðar af þannig að segja má að það komi ekki alveg heim og saman við það tilboð sem við fengum ef tilboð má kalla.

Hitt er svo annað mál að ég hef talið að það væri nauðsynlegt að látið væri á það reyna hvað þarna væri að baki og hvort hér væri um einhverja raunhæfa möguleika að ræða.

Eftir að afli hér er orðinn svo lítill sem raun ber vitni má vera að íslenskir útvegsmenn sýni slíkum málum meiri áhuga — þeir hafa ekki gert það fram að þessu í þeirri trú að þeir gætu sótt sjó alla daga ársins hér við land — og það er náttúrlega algjör forsenda þess að slíkt geti gerst að þar sé raunhæfur áhugi fyrir hendi.

Hitt er svo annað mál að það berast stöðugt um það upplýsingar frá ýmsum þróunarríkjum að þau leiti eftir samstarfsaðilum í fiskveiðum. Það er þá á þeim grundvelli að í þessum ríkjum sé stofnað sameiginlegt félag viðkomandi lands, sem er tilbúið til að koma þar til veiða, og þessa þróunarríkis.

Ýmis lönd hafa lagt á það áherslu að ná veiðiréttindum hjá þessum ríkjum, m.a. Vestur-Þjóðverjar, og mér hefur skilist að þeir hafi ekki haft af því mjög góða reynslu en hitt er svo annað mál að það er sjálfsagt að hafa augun opin fyrir þessum möguleikum því að ef hér eru til skip, sem eru verkefnalaus, er því út af fyrir sig vel varið með þeim hætti að senda þau þangað til veiða ef það eru álitin heppileg verkefni og þessi skip útbúin til þess.

Ég vildi aðeins taka það fram í þessu sambandi. Það er mikið rætt um það að hér séu ýmsir fiskstofnar við land sem eru vannýttir og það er vissulega rétt. Þeir eru vannýttir vegna þess að það hefur ekki tekist að afla markaða fyrir þá stofna og að því þarf að vinna áfram.

Alþingi samþykkti fjárveitingu til sérstakrar könnunar á djúpslóð og sú fjárveiting verður að sjálfsögðu notuð til þeirra hluta en þar eru tegundir sem illa hefur gengið að selja. Það má sjálfsagt betur gera í þeim efnum. Það eru tegundir eins og langhali og gullax og fleiri tegundir sem eru út af fyrir sig ágætur fiskur en ekki svona venjuleg markaðsvara, að því er virðist, og þarf því að gera átak í að afla þar markaða.

Ég vildi aðeins taka þetta fram í sambandi við þessa umr.