26.01.1984
Sameinað þing: 39. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2375 í B-deild Alþingistíðinda. (2103)

77. mál, veiðar í erlendri fiskveiðilandhelgi

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Ég verð að segja það að ræða hv. þm. Skúla Alexanderssonar, 4. þm. Vesturl., vakti furðu mína. Hann kvartaði í fyrsta lagi yfir því að við hefðum ekki staðið okkur nógu vel við að nýta ýmsar veiðislóðir hér heima. Ég veit ekki hvað er til hindrunar í þeim efnum. Ég kannast ekki við að það hafi komið nein tillaga um lagabreytingar eða reglugerðarbreytingar frá þeim sama hv. þm. til þess að draga úr hindrunum sem þá ættu að vera í þeim efnum. Ég minnist þess ekki.

Er þm. fyrst og fremst að vitna til fisktegunda sem við höfum ekki markaði fyrir eins og kom fram í ræðu hæstv. sjútvrh.? Það dugar náttúrlega lítið fyrir okkur að veiða fisktegundir sem við getum ekki selt. Þær bæta nú lítið hjá okkur stöðuna.

Hitt eru væntanlega allir sammála um að leita eftir framþróun í þeim efnum, þróa markaði og leita nýrra veiðislóða.

Hann óskaði eftir því að við fengjum veiðiheimildir á Reykjaneshryggnum utan landhelginnar og á Rockall. Þar þarf engar veiðiheimildir. Þetta er á alþjóðlegu hafsvæði. Þar getur hver sem er veitt. Og hv. þm. er heimilt að senda þá báta eða togara, sem hann ræður yfir, þegar í stað til þess að veiða þar með Rússum eða öðrum í hverjum þeim félagsskap sem honum sýnist. Það er ekkert sem hindrar það svo þetta er náttúrlega hlálegur málflutningur.

En í síðasta lagi var það aðaltillaga þm. að við skyldum ekki nota það sem okkur hefði verið boðið af hálfu Bandaríkjamanna. Það er eitthvað nýtt ef það eitt, að hlutir séu boðnir fram, eigi að verða til þess að menn vilja alls ekki nýta sér það svo menn ættu bara að fara í fýlu jafnvel þegar þeir eiga kannske efnahagslega mikið undir — og meira að segja þegar um er að ræða veiðileyfi sem hæstv. sjútvrh. sagði að væru að mörgu leyti eftirsóknarverð. Það voru hans orð: að mörgu leyti eftirsóknarverð. Og það kemur mér ekki á óvart að þau skuli teljast eftirsóknarverð svo mjög sem í þau hefur verið sótt. Ég held þvert á móti eins og kom fram hér í máli mínu áðan að það, að þetta skyldi vera boðið, sé sérstakt tilefni til þess að sækja á.

Þá verð ég að segja það að mér finnst að mótmæli hæstv. utanrrh. við málflutningi mínum hér áðan eigi alls ekki við. Hann sagði að ég hefði haldið því fram að utanrrn. hefði ekki gert það sem skylda þess bauð. Það voru reyndar ekki mín orð heldur sagði ég það mitt mat að það væri ekkert verkefni nærtækara og ekkert verkefni sem utanrrn. ætti að leggja eins mikla áherslu á eins og hagar til í þjóðarbúskap okkar en einmitt þetta og í málinu hefði að mínum dómi ríkt tómlæti.

Þegar orð hæstv. sjútvrh. og hæstv. utanrrh. yfir þær athafnir, sem hafðar hafa verið í frammi í þessu máti, eru skoðuð kemur í ljós að þetta er einmitt rétt lýsing hjá mér; það hefur ríkt mikið tómlæti. Jú, hæstv. sjútvrh. sagði að hann hefði spurst fyrir út af þessu bréfi þarna frá Bandaríkjamönnunum, hann hafi spurt sendiherrana, þann íslenska í Washington skildist mér og þann bandaríska hér og hann hefði spurt sölusamtökin. Það hafa farið vestur menn og þeir hafa skoðað sig um og svo var greint frá því að Skagstrendingar hefðu verið á ferð og menn hefðu auðvitað greitt götu þeirra, reynt að útvega þeim viðtal og þar fram eftir götunum. Þetta er alls ekki það sem ég á við með því að menn haldi á þessu máli af festu og með sóknarhug. Þetta er einmitt það sem mér finnst til marks um tómlæti. Viðhorfin eru bara gjörólík. Utanrrh. taldi þetta vel að verið og hæfilega mikið að verið. Það ætti ekki að skipta sér of mikið af þessu, útgerðarmennirnir ættu að sækja á og þar fram eftir götunum. Mér finnst það ekki nóg, mér finnst þetta tómlæti.

Ég tel að eðlilegustu viðbrögð við þessu bréfi frá Bandaríkjunum sé að tilkynna utanrrn. þeirra, sem sendi okkur þetta bréf, að við tilnefnum hér með sendinefnd í viðræður til að koma þessu í framkvæmd, sækja á í þessu máli. Ég tel að það gildi um aðrar veiðislóðir, hvort heldur er við Grænland eða aðrar fjarlægari, að það sé hlutverk íslenskra stjórnvalda í þessari stöðu að leita eftir þeim möguleikum sem kunna að vera fyrir hendi — til þess höfum við m.a. utanrrn. að mínum dómi, — opna augu útgerðaraðilanna fyrir því, hverjir þeir möguleikar séu, upplýsa um málið og koma á samvinnu við útgerðarmennina um hvað sé álitlegast í þessum efnum, en ekki þetta gauf sem mér finnst vera í málinu núna.

Mér fannst eins og hæstv. utanrrh. legði þetta þannig upp, að það væri hugmyndin, af minni hálfu þá, væntanlega að ætla að fara að senda íslenska útgerðarmenn nauðuga að Afríkuströndum eða Ameríkuströndum eða ég veit ekki hvert. Væntanlega hefur ekki nokkrum manni dottið í hug að tala um að þeir geti ekki farið eða þetta sé óarðbært eða þeir vilji ekki fara og við getum ekki sent þá. Það hefur ekki nokkrum manni dottið í hug heldur að opna augu þeirra fyrir þessu, að sækja á fyrir hönd íslenska ríkisins. Ég hefði haldið að það væri þó nokkuð mikill munur á hvort tveir ágætir útgerðarmenn af Skagaströnd eru að þreifa fyrir sér á Vesturströnd Bandaríkjanna eða hvort það er íslenska ríkið, og utanrrn. fyrir þess hönd, sem sækir á við þau stjórnvöld sem hafa þetta í hendi sér. Mér finnst vera reginmunur á því. Þess vegna tel ég að íslensk stjórnvöld, íslenska utanrrn., eigi að leggja mjög mikla áherslu á þetta mál eins og hagar til í okkar þjóðarbúskap núna.

Hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson segir gjarnan um eitt ákveðið mál að það sé svo mikilvægt að þar dugi ekkert minna heldur en harkan sex, í Rockall-málinu. Ég tel að í þessu máli eigi a.m.k. að vera harkan sjö eða átta miðað við þá hagsmuni sem í húfi eru.