30.01.1984
Efri deild: 45. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2417 í B-deild Alþingistíðinda. (2123)

160. mál, frádráttur frá skattskyldum tekjum vegna fjárfestingar í atvinnurekstri

Stefán Benediktsson:

Virðulegi forseti. Eins og fram kom hjá hv. 3. þm. Norðurl. v. er eitt og annað í sambandi við þetta frv. sem enn þá þyrfti að athuga. Af skiljanlegum ástæðum er kannske ekki mjög mikið um tölulegar upplýsingar sem hægt er að skoða til að kanna áhrif frv. og þar af leiðandi eru áhrif þess nánast ókunn þeim sem um fjalla. Verður þá aðallega uppi spurning um tilgang. Tilgangurinn virðist í stuttu máli vera sá að reyna að auka ávöxtun einstaklinga á fjármunum sínum í atvinnurekstri.

Kannske að maður reyndi þá að spyrja einhverra spurninga til þess að reyna að draga hringinn utan um þetta mál örlítið þrengri svo að maður eigi hægara með að skoða það. Það væri í fyrsta lagi: Hvert væntir ríkisstj. að þetta fé renni, þ.e. þegar fólk fer að ávaxta sparifé sitt sem það annars hefur ávaxtað í bönkum, ef menn kjósa nú frekar að ávaxta það í atvinnurekstri? Í hvaða atvinnurekstur er vænst að þetta fé renni eða eru uppi einhverjar skoðanir á því hvað sé æskilegast?

Ekki verður nefnilega séð af öðrum athöfnum ríkisstj. að hún hafi uppi nein áform um að gera neinn atvinnurekstur í þessu landi girnilegri öðrum til fjárfestingar. Maður með einhverja fjármuni milli handanna í dag aðspurður um það í hvaða atvinnugrein hann vildi fjárfesta mundi trúlega setja sína peninga í sjávarútveg. Því að þó að margyfirlýst sé að það sé rekstur á fallandi fæti er það allavega eini atvinnureksturinn í dag þar sem nokkurn veginn er algerlega tryggt að þú tapar ekki þínum peningum því að endanlega getur þú átt von á annaðhvort að þurfa ekki að borga þær skuldir sem þú hefur stofnað til eða einfaldlega að þær verða strikaðar út og þurrkaðar burt með öllu. Hafa menn hugmyndir um hvað mikið fé verður losað til atvinnuveganna með þessum hætti?

Það er í raun og veru til lítils að vera að setja lög um hreyfingu fjármuna sem hér um ræðir án þess að menn hafi einhverjar vonir um að þau skili árangri og þá væntanlega vonir um einhvern mældan árangur.

Síðast en ekki síst: Hafa menn gert sér grein fyrir því hvaða áhrif ætla má að þetta hafi á kjör þeirra sem til greina koma? Við gerum okkur ljóst að ekki eru allir sem raunverulega eiga kost á því að njóta þessara kjara. Aftur á móti má hugsa sér að fólk sem getur lagt eitthvað af mörkum með þessum hætti geti átt von á tekjuaukningu í gegnum þetta, annars vegar vegna þess frádráttar sem það nýtur og svo hins vegar vegna þess að gegnum þessa ávöxtun hlýtur að skila sér fé til þessa fólks.

Í nágrannalöndum okkar virðast menn gera sér nokkuð góða grein fyrir því hvaða fjármuni getur verið um að ræða í efnahagslífi. Ég þekki það t.d. frá Þýskalandi að þar hafa menn, má segja, mjög haldgóðar upplýsingar um það hversu margir hafa efni á því að leggja fé til atvinnuveganna með þessum hætti, þ.e. að fjárfesta í hlutabréfum. Skattfrádráttur miðast þar nokkurn veginn við það að skapa ákveðinni tekjustétt fólks skilyrði sem síðan eru tekin til greina við ákvörðun á kjörum þess. Ég er að tala um að fólk sem hefur efni á því að ávaxta fé sitt og njóta tekna af því þurfi ekki á sambærilegum launum að halda í hlutfalli við eyðslu eins og það fólk sem ekki hefur tekjur sem gefa því kost á ávöxtun.

Í fjórða lagi er afleiðing af þessu einhver minnkun á skatttekjum ríkisins a.m.k. um einhvern tíma. Aftur á móti vænta menn þess að kjör atvinnuvega batni með þessum hætti. Það væri út af fyrir sig vel því að einhvern tíma í ósköpunum hlýtur að fara að koma að því að þessir atvinnuvegir hafi þau kjör að þeir geti farið að greiða því fólki sem þeir hafa á launum mannsæmandi kaup. Endanlegur árangur eru væntingar um eflingu atvinnulífs sem þá að lokum mundi skila aftur vegna aukinnar veltu auknum tekjum til ríkissjóðs.

Hérna eru á ferðinni og búnir að vera, eins og hv. 3. þm. Norðurl. v. tilgreindi áðan, þó nokkuð margir félagsmálapakkar til atvinnuvega allt frá brbl. frægu frá í vor og síðan í gegnum tillögur og hugmyndir í svipuðum dúr og þær sem hér eru fyrir hendi. Í sjálfu sér er hvað hugsunarhátt snertir ekkert nema gott um það að segja. En menn verða þó líka að fara að gera sér og öðrum grein fyrir því hvenær þeir ætlast til að þessir hlutir fara að skila launamanninum, þ.e. þeim sem á líf sitt undir þessum atvinnuvegum, einhverjum árangri. Og það þýðir að þessir hlutir verða að tengjast einhvers konar heildarmarkmiðasetningu þar sem menn gera sér sjálfum og öðrum grein fyrir því hver niðurstaðan og árangurinn á að vera og þá hvenær.