31.01.1984
Sameinað þing: 40. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2466 í B-deild Alþingistíðinda. (2145)

407. mál, kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Sem svar við fsp. hv. 5. þm. Austurl. vil ég taka þetta fram. 1. Ákvörðun hefur ekki enn verið tekin um tillöguflutning en gert var ráð fyrir í stefnuræðu hæstv. forsrh. í byrjun þessa þings að slík till. yrði flutt á yfirstandandi þingi.

2. Tekið er fram: Engin endanleg áform eru uppi um framkvæmdirnar enda mundi þá vera tími til kominn að leita samþykkis Alþingis. Menn hafa bundið vonir við að hefjast mætti handa á þessu ári um undirbúningsframkvæmdir. Verið er að ljúka forhönnun verksmiðjunnar og endurskoða stofnkostnaðaráætlun. Því verki verður lokið fyrri hluta febrúar n.k. Stofnkostnaður var í okt. 1983 áætlaður 65 millj. Bandaríkjadala. Frá því að ákvörðun er tekin um að byggja verksmiðjuna þarf minnst 4 mánuði þar til framkvæmdir á verksmiðjulóð geta hafist. Byggingartími verksmiðjunnar frá því að jarðvegsframkvæmdir hefjast þar til fyrri ofn hennar er gangsettur er um 21/2 ár. Talið er æskilegt að framkvæmdir hefjist snemma vors. Verðákvæði samnings við Mannesman Demag falla úr gildi ef ekki hefur verið ákveðið að hefja hönnun og framleiðslu vélbúnaðarins fyrir 1. jan. 1986. Sé miðað við eðlilegan framkvæmdatíma og fresturinn nýttur til fullnustu jafngildir það því að fyrri ofn verksmiðjunnar verði gangsettur á árinu 1988.

3. Þá tek ég fram í svari mínu að á vegum samstarfsnefndar stóriðjunefndar og Kísilmálmvinnslunnar hf. var gefið út kynningarrit um Kísilmálmvinnsluna h.f. Ritinu hefur verið dreift til fjölmargra aðila í Evrópu, Ameríku og Japan. Kynningarviðræður um eignaraðild hafa átt sér stað við nokkra aðila. Nú þessa dagana er verið að hafa samband við þá aðila sem kynningarritið var sent til og óskað eftir viðræðu við þá. Aðilum þeim sem rætt hefur verið við hefur verið gerð grein fyrir því hver sé framleiðslukostnaður raforku frá nýjum virkjunum á Íslandi. Kynningarritið hefur verið sent 14 aðilum í Evrópu, 5 í Japan og 14 í Kanada og Bandaríkjunum.