25.10.1983
Sameinað þing: 8. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í B-deild Alþingistíðinda. (215)

4. mál, framkvæmd byggðastefnu

Páll Pétursson:

Herra forseti. Mig langar til að gera nokkrar aths. við þessa till. vegna þess að ég er mótfallinn því skipulagi sem till. gerir ráð fyrir, þ.e. ég er mótfallinn því að leggja lánadeild niður og ég tel að það sé ómaklega veist í till. að stjórn Framkvæmdastofnunar. Ég tel að í framsöguræðu og eins í grg. sé mikið ofmætt, t.d. þetta, herra forseti, svo að ég vitni til grg. orðrétt: „Í hugum flestra er byggðastefna í dag nánast samnefnari fyrir aðgerðir sem eru í mótsögn við skynsamleg þjóðfétagsmarkmið.“ Þessu neita ég alfarið. Ég neita einnig alfarið að rétt sé sem hér segir í grg.: „Reynsla undanfarinna ára af Framkvæmdastofnun og kommissörum hennar hefur ekki sannað ágæti þessarar ráðstöfunar. Lánveitingar Framkvæmdastofnunar hafa tekið mið af pólitískum stundarhagsmunum, en ekki efnahagslegum langtímahagsmunum.“ Og síðar segir að þetta hafi verið til hreinnar óþurftar fyrir þjóðarbúið. Þessu vil ég leyfa mér að mótmæla og því er ég hér kominn.

Það er að vísu víðar farið frjálslega með staðreyndir í þessari grg. og í ræðu frsm. En ég læt þetta nægja. Ég held að það sé hægt að bæta skipulag Framkvæmdastofnunar og að sumu leyti hefur Framkvæmdastofnun þróast allt öðruvísi en henni var ætlað í upphafi. Upphaflega tekur Byggðasjóður við af Atvinnujöfnunarsjóði sem komið var á fót þegar álverið var reist við Straumsvík og tekjur af álverinu að hluta til látnar ganga til Atvinnujöfnunarsjóðs til þess að vega upp á móti því ójafnvægi sem skapaðist í byggð landsins með þessu stórfyrirtæki hér á suðvesturhorninu. Upphaflega lánaði Byggðasjóður ekki til svæða þar sem atvinnulíf var í mestum blóma og það tel ég að hafi verið rétt stefna.

Ég tel að það hafi verið spor aftur á bak þegar breytt var til og það er rétt og má kannske finna stað þungum orðum síðasta ræðumanns, hv. 3. þm. Reykn., um að það hafi komið ódöngun í stofnunina. Ég held að það hafi ekki verið rétt þegar tekið var að lána til þéttbýlissvæðisins þar sem atvinnulíf var blómlegast.

Hv. 1. flm. gat um í ræðu sinni fyrirkomutag í nágrannalöndum á starfsemi í byggðamálum. Í Finnlandi er aðferðin sú að landinu var skipt í nokkur lánasvæði. Næst Helsingfors er krafist annarra lánskjara og eftir því sem lengra dregur frá höfuðborginni, eftir því eru lánskjörin rýmilegri og aðrar kröfur um veð o.s.frv. Þetta er aðferð sem ég er svo sem ekki hér og nú að mæla með að tekin verði upp en Finnar hafa búið við þetta í allmörg ár og þeir hafa ekki áhuga á, að því er ég best veit, að breyta þessu.

Ég tel enn fremur að það gildi nú of mikil sjálfvirkni í lánum Framkvæmdastofnunar. Mér finnst ekki eðlilegt að afgreiða sjálfvirkt viðbótarlán á færibandi. Þegar atvinnuvegasjóðirnir hafa ákveðið lánveitingu, t.d. þegar Fiskveiðasjóður hefur ákveðið lánveitingu, felst raunar í henni sjálfvirk viðbót úr Byggðasjóði. Þetta finnst mér ekki vera rétt. Ég held að það eigi að meta þetta í hverju tilfelli og þeir sem í stjórn sjóðsins sitja eigi að vera menn til að gera það með skynsamlegum og sæmilega réttlátum hætti.

Sjálfsagt má finna þess dæmi að stjórnarmönnum hafi einhvern tíma verið mislagðar hendur og ákvarðanir þeirra hafi ekki verið réttar. En þeir hafa staðið og fallið með sínum gerðum. Það er mjög til fyrirmyndar að þessi stofnun er ekkert að feta gerðir sínar. Lánveitingar eru attar prentaðar og landsmönnum aðgengilegar og þm. fengnar í hendur. Það tel ég mjög til fyrirmyndar og býsna mikil trygging fyrir því að menn fari varlega og af ráðdeild með fé. Og það held ég að hafi verið gert í langflestum tilfellum. Ég held að starfa Byggðasjóðs gæti með heillavænlegum hætti vítt um land og það væri mikill skaði að því að hætta því starfi. Ég vil þakka stjórn sjóðsins og starfsmönnum og kommissörum fyrir það sem ég tel að þeir hafi vel gert og það er langmestur hlutinn af verkinu.