31.01.1984
Sameinað þing: 40. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2474 í B-deild Alþingistíðinda. (2155)

146. mál, umhverfismál

Gunnar G. Schram:

Herra forseti. Það var í þingbyrjun að ákveðið var af hálfu nokkurra þm. Sjálfstfl. að endurflytja með nokkrum breytingum frv. um umhverfismál sem Salome Þorkelsdóttir o.fl. þm. Sjálfstfl. höfðu flutt á þingi 1980–1981 og hafði upphaflega verið flutt af þáv. félmrh. Gunnari Thoroddsen á þinginu 1978.

Það var gert til að minna á mikilvægi þessa málaflokks, sem ég held að enginn þurfi að fara í grafgötur um að hefur verið vanræktur af löggjafarsamkundunni. Þessi mál hafa verið á döfinni lengi, eins og kom fram í svari félmrh., og til að ýta á eftir málinu hér var þetta frv. lagt fram, endurflutt, skömmu fyrir jólaleyfi. Meginefni þess er sameining umhverfismála í einu rn. innan stjórnsýslunnar. Það er nú farið með umhverfismál í a.m.k. sjö rn. Það hefur staðið þessum málum mjög fyrir þrifum hve dreifð og sundurlaus stjórnsýslan er á þeim vettvangi.

Í öðru lagi er hér sérstaklega fjallað um mengunarmál, en eins og fyrri ræðumenn hafa bent á er þar víða pottur brotinn. Ég vildi í framhaldi af þessu fagna yfirlýsingu hæstv. félmrh. um að í vændum sé að framkvæma það sem kom fram í fskj. með stefnuræðu forsrh., að ríkisstj. hefði í hyggju að flytja frv. um umhverfismál. Það var að vísu eftir að sú ákvörðun var tekin að endurflytja það frv. sem hér liggur fyrir. Það eru ánægjuleg tíðindi og ég vona að það frv. sjái sem fyrst dagsins ljós. Þá gefst Alþingi og hlutaðeigandi þingnefnd tækifæri til að fjalla um öll þessi mál á heildargrundvelli. Við sem að þessu frv. stöndum töldum fulla ástæðu til þess að þau efnisatriði sem í því felast lægju fyrir Alþingi þegar að slíkri athugun kæmi. Þá gefst þingnefnd og Alþingi tækifæri til að fjalla um málið á breiðum grundvelli.

Ég vil endurtaka þakkir mínar til ráðh. fyrir eindregna yfirlýsingu hans í þessum efnum og einnig þakkir til fyrirspyrjanda fyrir að hafa vakið máls á þessu hér í deildinni.