31.01.1984
Sameinað þing: 40. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2474 í B-deild Alþingistíðinda. (2156)

146. mál, umhverfismál

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Hér er mjög tímabært mál til umr. og hefðum við áhugamenn um umhverfismál gjarnan viljað hafa séð árangur í sambandi við endurskoðun löggjafar fyrr en raun ber vitni. Það eru nú liðin um tólf ár síðan ég flutti um það till. í nafni Náttúruverndarsamtaka Austurlands á Náttúruverndarþingi, vorið 1972, að stofnað yrði sérstakt umhverfisráðuneyti. Sú till. fékkst þar samþykkt, með smábreytingum þó um að leitast yrði við að sameina sem flesta þætti þessara mála í einu rn. Ég átti sæti í Náttúruverndarráði þegar að þessum málum var unnið undir forustu Eysteins Jónssonar og sérstakar samþykktir voru um þetta gerðar á öðru Náttúruverndarþingi 1975. Í framhaldi af því hófst fyrir alvöru vinna innan ráðuneyta að undirbúningi að endurskoðun löggjafar með það að markmiði að sameina meginþætti þessara mála í einu rn.

Þá höfðu nýverið verið stofnuð á öðrum Norðurlöndum, í Noregi og Danmörku, sérstök umhverfisráðuneyti. Ég vil benda hæstv. félmrh. á að kynna sér, hafi hann ekki þegar gert það, hvernig þar var gengið til verka í sambandi við þau efni. Þar var unnið skjótt og að mínu mati vel að því að koma á fót þessum rn., líklega var það 1973–1974 sem þau urðu til, og óhikað gengið gegn sérskoðunum og viðhorfum innan stjórnsýslukerfisins. Það er alþekkt að embættismönnum, ekki síst þeim sem lengi starfa, er annt um þau mál sem þeir sinna og reyna að halda utan um þau. En á Norðurlöndunum sem ég nefndi var gengið mjög skörulega til verks og teknir út ákveðnir þættir úr einstökum lögum og settir undir umhverfisráðuneytin. Það voru sem sagt klofin sundur lög og teknar einstakar greinar í vissum tilvikum og settar undir forsjá umhverfisráðuneytis í þeim löndum. Ég er ekki í vafa um að þau skref á Norðurlöndum sem þarna voru stigin voru farsæl og að það hefur dregist of lengi hér að sameina meginþætti þessara mála í umhverfisráðuneyti. Því á ekki að þurfa að fylgja aukin skriffinnska eða aukinn tilkostnaður, heldur þvert á móti meiri skilvirkni.

Vegna þess sem hv. 3. þm. Reykv., fyrrv. hæstv. félmrh., sagði hér um áreksturinn við heilbrigðisþáttinn, sem fram kom í tíð fyrrv. ríkisstj. þegar verið var að fara ofan í þessi mál, þá vil ég benda á að gert er ráð fyrir að löggjöf um hollustuvernd verði endurskoðuð ekki síðar en 1985. Þannig er tilvalið að mínu mati að fara yfir þessi mál og taka á þessum málaþáttum sameiginlega og láta það ekki verða hindrun á eðlilegri breytingu í sambandi við stjórnsýslu þessara mála þó að þar hafi rekist eitt á annars horn varðandi þá lagasetningu og það sem menn ætluðu sér í sambandi við umhverfismálin.