31.01.1984
Sameinað þing: 40. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2475 í B-deild Alþingistíðinda. (2157)
148. mál, áhrif nýrrar tækni á íslenska atvinnuvegi
Fyrirspyrjandi (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):
Herra forseti. Á þskj. 207 hef ég leyft mér að beina fsp. til hæstv. félmrh. um könnun þá á áhrifum nýrrar tækni á Íslenska atvinnuvegi sem ráðh. setti af stað í nóv. s.l.
Á undanförnum árum hafa margvíslegar uppgötvanir verið gerðar á sviði sjálfvirkni og tölvunotkunar. Fyrirsjáanlegt er að þessar tækninýjungar muni hafa geysileg áhrif á atvinnulíf hér á landi í nánustu framtíð. Tala menn gjarnan um að breytingar þessar muni tilsvara nýrri iðnbyltingu. Augljóst er að miklu skiptir að tækninni verði beitt á þann veg að allir þegnar þjóðfélagsins njóti góðs af.
Ljóst er að aðstæður á vinnumarkaði munu breytast gífurlega við þessa tæknibyltingu. Líklegt er að mannaflaþörfin minnki til muna og að störfum fækki, fyrir utan þær breytingar sem á þeim kunna að verða. Á sama tíma má hins vegar búast við fólksfjölgun og auknum fjölda fólks inn á vinnumarkaðinn hér á landi. Það er því fyrirsjáanlegt að við óbreyttar aðstæður á vinnumarkaðnum að öðru leyti geta þessar tækninýjungar haft í för með sér gífurlegt atvinnuleysi ef ekki er vandlega á málum haldið strax frá upphafi. Hér eru því stór mál á ferðinni og mikilvægt fyrir landsmenn alla að vel takist til í þessum efnum.
En það eru ýmis atriði þessa máls sem snerta konur sérstaklega og mig langar til að vekja athygli á í umr. um þá könnun sem hér um ræðir. Fyrirsjáanlegt er að atvinnuleysi sökum aukinnar tæknivæðingar muni bitna allharkalega á konum, bæði vegna þess að þau störf sem í dag eru hefðbundin kvennastörf, eins og þjónustu- og skrifstofustörf ýmiss konar, koma til með að leggjast niður eða gjörbreytast fyrir áhrif þessarar nýju tækni og eins vegna þess að ófaglært fólk verður venjulega fyrst fyrir barðinu á atvinnuleysi og meiri hluti kvenna á vinnumarkaðnum í dag er í hópi ófaglærðra. Það er því ákaflega mikilvægt að við alla upplýsingaöflun sé tekið tillit til mismunandi stöðu kynjanna í þessu sambandi og hugað að aðgerðum til að jafna hana.
Annað atriði, sem snýr að konum sérstaklega í þessum málum, eru þær fréttir sem nýlega hafa borist af því að tölvuskermar geti valdið ófrjósemi og fósturláti hjá konum. Ég tel ákaflega brýnt að allra upplýsinga um áhrif af þessu tagi sé aflað nú þegar í upphafi. Að öllu samanlögðu er það mjög mikilvægt að vel sé fylgst með þeirri þróun sem þessi nýja tækni boðar, áhrifum hennar á vinnumarkaði og stöðu kynjanna þar, áhrifum hennar á atvinnuvegi landsmanna og framtíðarþjóðfélagsskipan hér á landi. Það skiptir öllu máli að við höfum stjórn á tækninni en látum hana ekki stjórna okkur.
Hér er mikið verk að vinna og því spyr ég hæstv. félmrh.: Hvernig er háttað störfum þess starfshóps sem ætlað, er að framkvæma könnun á áhrifum nýrrar tækni á íslenska atvinnuvegi í næstu framtíð? Hvernig miðar honum og hverjir skipa hópinn?“