25.10.1983
Sameinað þing: 8. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í B-deild Alþingistíðinda. (218)
4. mál, framkvæmd byggðastefnu
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég þarf ekki ýkjamiklu við þessa umr. að bæta. Ég mun reyna að takmarka mál mitt fremur og ekki fara jafnvítt um svið og hv. næstsíðasti ræðumaður, 5. þm. Reykv., og halda vaxtamálum og stærð togaraflotans að mestu utan við tölu mína.
Það væri margt hægt að segja um þá skilgreinin u hans á byggðastefnu sem hann flutti hér í löngu máli. Ég læt það nægja um mína afstöðu að í mínum huga felast í hugtakinu byggðastefna ekki síður menningarlegir og félagslegir þættir en hinir hagrænu.
Það er ástæða til að fagna því, að menn ræði nauðsyn þess að marka byggðastefnu og ég tek undir þann þátt í þessari tillögu. Þar með er ég þó ekki endilega að lýsa yfir stuðningi við allar þær hugmyndir sem hér eru settar fram.
Það hefur margoft komið fram, m.a. í fjölmiðlum undanfarið, að starfandi er um þessar mundir nefnd undir forustu hv. þm. Tómasar Arnasonar, 4. þm. Austurl., sem fæst við að endurskoða starfsemi Framkvæmdastofnunar. Áðurnefndur hv. þm. er sagður þaulkunnugur í þeirri stofnun og þess vegna er ástæða til að bíða með eftirvæntingu eftir þeim gagnmerku till. sem þaðan munu væntanlega koma um róttækar breytingar á starfsemi stofnunarinnar. Ég sé því ekki annað en að nokkru leyti væri verið með samþykkt þessarar þáltill. að setja á stofn aðra nefnd til að gera nokkurn veginn það sama a.m.k. hvað þetta varðar.
Ég er sem sagt sammála hv. flm. um að brýna nauðsyn ber til að móta heildarstefnu í byggðamálum, en hvort það sé endilega rétt aðferð að leggja Byggðasjóð og lánadeild niður án þess að nokkuð hliðstætt komi í staðinn, það leyfi ég mér að efast um. — Og ef út í einstaka efnisliði þessarar till. er farið sýnist mér að það sé helst verið að setja það á sem ekki er á vetur setjandi í þessari stofnun, en farga hinu, sem kannske helst mætti halda sér.
Herra forseti. Ég er efnislega sammála mörgu af því sem kemur fram í þessari þáltill., þó að ég áskilji mér rétt til að vera þar ósammála um einstök atriði.