31.01.1984
Sameinað þing: 41. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2503 í B-deild Alþingistíðinda. (2182)

162. mál, vegáætlun 1983--1986

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. fyrir undirtektir við þessa þáltill. og málefnalega umr. Ég ætla að fara aðeins örfáum orðum um þær ræður og þær fsp. sem komu fram.

Þá ætla ég fyrst að svara hv. 3. þm. Norðurt. e. hvort líta mætti svo á að ég væri inni á þeirri skoðun að taka tillit til atvinnuástands víða og bjóða ekki út verk, en ég held að hann hafi misskilið mig í því. Það sem hefur gerst í þróun þessara mála er að vegagerðin sjálf hefur dregið mjög saman seglin með vélaeign eins og ég sagði í minni ræðu. Á þann hátt hefur hún gert einstaklingum og samtökum þeirra fært að bjóða út að kaupa sér tæki til þess að vinna fyrir Vegagerðina. Hlutfallið af framkvæmdum Vegagerðarinnar í útboði er að mínum dómi of lágt enn þá en hins vegar hefur vélaeigendum verið tryggð með þessari breytingu frá því sem var fyrir tveimur áratugum stóraukin vinna. Ef við lítum á vélakost Vegagerðarinnar þá á hún í ársbyrjun 1983 aðeins 3 jarðýtur sem sýnir að orðið hefur stórfelld aukning á þessu tímabiti hjá einstaklingum, ræktunarsamböndum og fleirum.

En það sem gerir það að verkum að við getum núna þrátt fyrir erfiðleika og þrátt fyrir þær fjárhæðir sem ég nefndi og eru í þessari till. til vegáætlunar haldið framkvæmdamætti í nýbyggingum byggist fyrst og fremst á útboðum. Það eru útboðin sem bjarga okkur í þessum efnum. Alþingi hefur lýst þeirri stefnu hvað eftir annað og markað þá stefnu og hér hafa þm. skammað ráðh. í fleiri en einni og fleiri en tveimur ríkisstj. og ríkisstofnanir, vegagerð, flugmálastjórn, hafnamálastjórn, að ekki sé nóg boðið út af verkefnum. Þess vegna segi ég það að ég verð að vera mjög harður á því að ýta við vegagerð og þessum aðilum að auka útboð en ekki draga úr þeim ef við ætlum að halda framkvæmdamætti. Hér hafa fleiri en ég nefnt margvíslegar bráðnauðsynlegar framkvæmdir. Eftir því sem við sleppum tækifærinu að fá framkvæmdir fyrir minna fjármagn, þess hægar gengur þetta.

Ég nefndi hér nokkur verkefni, sleppti öðrum. Hv. 3. þm. Vestf. nefndi hér Breiðadalsheiði. Ég nefndi ekkert verkefni sem verður leyst með jarðgangagerð. Ég nefndi jarðgangagerð og verkefnið á Breiðadalsheiði verður í framtíðinni jarðgangagerð eins og víða annars staðar og víða á Austfjörðum. En varðandi b-vegina sem fleiri en einn hafa tekið til máls um. Það er ekkert áhorfsmál að Ó-vegirnir eru tengdir hver öðrum og þessi stefna var tekin upp gagnvart þessum þremur Óvegum. Það var samkomulag um það á milli þm. þessara kjördæma, milli fjvn., vegagerðar og þáv. samgrh. að verkefnin yrðu unnin í þessari röð. Við það vil ég og ætla mér að halda mig að haldið verði áfram í þeirri röð en ekki fært til annarra verkefna. Þetta eru órjúfanlega samtengd verkefni sem hefur verið skipað í þessari röð sem raun ber vitni.

Út af því sem hv. 5. landsk. þm. sagði er sjálfsagt að líta á þau verkefni í sambandi við verkefni eins og Mýrarnar. Það er auðvitað allt undir þeirri upptalningu sem ég taldi í sambandi við aukningu á slitlagi. Ég nefndi sérstaklega sandana í Skaftafellssýslu vegna þess að þar er umferðin ekki það mikil að þar væri hægt með útboðum að leggja gífurlega mikið verkefni undir með einni akrein, tvöfaldri akrein á blindhæðum eins og hefur verið gert lítillega 1982 og nokkuð mikið á s.l. ári. En það dregur auðvitað ekki úr áhuga manna fyrir því að minnka eitthvað holurnar á Mýrunum.

Brú yfir Hvalfjörð. Í þessari langtímaáætlun er ekki gert ráð fyrir brú yfir Hvalfjörð eins og hv. þm. vita og gera sér grein fyrir. Í þessari áætlun er uppbygging og slitlag og það er nú komið nokkuð á veg. Fossvogurinn er í síðasta hluta þessarar langtímaáætlunar. Ég segi fyrir mitt leyti, ég ætla ekkert að berja höfðinu við steininn og segja að ekki komi til greina að breyta neinu. En eftir því sem við leggjum meira fyrir Hvalfjörð eru auðvitað líkurnar minni á að farið verði í þessi verkefni sem hv. þm. nefndi á næstunni.

Hér hefur komið nokkuð til umr. hve aðstöðukostnaður vinnuflokka er orðinn gífurlega hár. Verið getur að hundgömlum vegavinnumönnum eins og mér ofbjóði hvað þetta er orðinn hár kostnaður miðað við það að þá átti Vegagerðin ekki til einn einasta skúr fyrir verkamenn. Þá varð maður að láta sér nægja að búa í tjöldum og þá var ekki einu sinni prímus nema í annað hvert tjald og varð þá að berjast um þá á milli okkar strákanna. En nú er þetta orðið þannig að í nóvemberbyrjun var talið að kostnaður miðað við 12 manna vinnuflokk í sirka 10–15 km fjarlægð frá heimastöð væri 25 kr. á klst. Starfsmenn eiga að keyra á vinnustað og aðstöðu þarf til að borða nesti. Skúraleigan er hæst, flutningur skúra og orka en þetta getur farið allt upp í 96 kr. á klst. Það er áætlaður kostnaður miðað við þessar nýju reglur um aðbúnað á vinnustöðum.

Ég fyrir mitt leyti er ekki að mæla því bót hvernig að okkur var búið á sínum tíma og engum manni dettur nú í hug að það verði tekið aftur upp. En líka má gera of mikið úr þessum hlutum, líka má gera of háar kröfur um þennan viðlegubúnað. Allt þetta kemur niður á þeim framkvæmdum sem verið er að vinna að hverju sinni. Margt bendir til þess að hinir svokölluðu verktakar eða vélaeigendur geti samið við sína menn um það að krefjast minna og borga þeim meira út. Því má ekki reyna það ef menn vilja það heldur? Ég tel enga ástæðu til að grípa þannig fram fyrir hendurnar á öllu og öllum. Vegagerðin hefur því orðið undir í þessari baráttu.

Mig langar til þess að leiðrétta eitt sem hv. 5. landsk. þm. sagði. Það var að þessi ríkisstj. sem núna situr hafi hækkað bensín meira en nokkur önnur. Bensínverð byggðist á forsendum fjárlaga síðustu ríkisstj. Bensínverðið var komið í eitthvað 19.30 kr. viku eftir að þessi ríkisstj. tók við. Það var hækkun sem varð vegna þeirrar ákvörðunar sem Alþingi sjálft tók. Bensín hækkaði svo aftur 12. júlí í 21.70 kr. Þetta voru sömu fjárlagaforsendurnar. En þrátt fyrir það varð að samkomulagi eins og hv. þm. gat réttilega um að ríkissjóður greiddi meira til vegagerðar vegna þess að ekki varð samkomulag um það á milli núv. stjórnarflokka að lögfesta þetta bensíngjald sem rifist var töluvert um áður en þingi var slitið. Þetta var greitt úr ríkissjóði og skal játa það. Það var kannske ekki með sérstakri gleði fjmrh. hverju sinni sem ég þurfti að sækja þetta. En þetta hafðist nú samt.

Ég tel að það eigi — og það á ekki neinn einn máður eða ríkisstj. að hæla sér af því — að ganga lengra til að auka þessar framkvæmdir. Mér þykir mjög vænt um að heyra að þm. almennt úr öllum flokkum taka undir það að auka eigi fjármagnið til vegagerðar þó að það sé gert með erlendum lántökum. Um annað er ekki að ræða.

Í sambandi við þá hlutdeild sem ríkissjóður fær af bensíngjaldinu tel ég að töluvert hafi áunnist. Ég vil nú leiðrétta sjálfan mig í minni frumræðu, ég sagði að það hefði farið niður í 39%. Hlutdeild af veggjaldi til Vegasjóðs fór 12. júlí niður í 37.9% svoleiðis að þetta fékkst þó upp um liðlega 12%. Ég vildi sannarlega fá meira en við skulum líka hafa það með í huga að þær hörðu efnahagsaðgerðir sem hafa verið gerðar til að berja niður verðbólguna hafa gert það að verkum að hér voru afgreidd fjárlög með miklum halla. Því er eðlilegt að ekki hafi náðst meiri árangur en þetta á þessu stigi. En ég vona svo sannarlega að hlutirnir snúist við og allir séu eiginlega fullsvartsýnir á að ekki megi draga meiri afla úr sjó en menn tala nú um. Sjórinn, fiskveiðar og fiskvinnsla, þetta er undirstaða okkar atvinnu ásamt öðrum atvinnuvegum. Um leið og við getum komist úr þessari kreppu og þessum öldudal og aukið þjóðarframleiðsluna er ég sannfærður um að afkoma ríkissjóðs breytist. Þá höldum við áfram þar sem frá var horfið að auka hlutdeild Vegasjóðs af bensíntekjum ríkisins.

Ég vona svo að eins og jafnan áður verði góð samvinna á milli þm. hinna einstöku kjördæma við fjvn. og Vegagerð ríkisins sem er reiðubúin að veita þm. allar þær upplýsingar sem hægt er og okkur beri gæfa til að afgreiða þessi mál með skaplegum hætti.