01.02.1984
Neðri deild: 42. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2508 í B-deild Alþingistíðinda. (2191)

140. mál, lántaka vegna flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli

Guðrún Agnarsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég vil fyrir hönd Kvennalistans lýsa yfir andstöðu við þetta frv. Afstaða Kvennalistans til fyrirhugaðrar flugstöðvarbyggingar á Keflavíkurflugvelli hefur að vísu verið margítrekuð og jafnframt þær forsendur sem ráða þeirri afstöðu og nú síðast við umfjöllun þessa máls í Ed.

Meginástæður fyrir andstöðu okkar eru eftirfarandi: Í fyrsta lagi er hér um að ræða forgangsröðun sem er í fullkomnu ósamræmi við almennt ástand ríkisbúskaparins og ekki síður við afkomu fjölmargra einstaklinga og heimila í landinu í dag. Segja má að val á slíkri forgangsröðun endurspegli verðmætamat sem tekur tildur og ytri velferðarmerki fram yfir afkomu og velferð einstaklinganna og fjölskyldnanna, það verðmætamat sem tekur auðgildið og hina dauðu hluti fram yfir manngildið og velferð hins lifandi. Hverjum dettur í hug að okkur vanti risavaxið glæsihús þegar vaxandi hluti þjóðarinnar á ekki fyrir nauðþurftum og enn fleiri horfast í augu við verulegar og alvarlegar þrengingar? Fyrir hvern er þessi forgangsröð? Að auki veit ég ekki betur en að það sé yfirlýst markmið ríkisstj. að grynnka á erlendum skuldum og taka ekki lán nema til arðbærra verkefna. Það virðist því í algjöru ósamræmi við þetta markmið að taka lán til þessarar fjárfestingar, sem virðist ótímabær, óþörf og óarðbær. Allt öðru máli gegnir um að bæta og laga aðstöðu starfsfólks við flugstöðina. Þess er þörf og það má gera án þess að til komi þessi stóra og dýra bygging.

Í öðru lagi er hér um að ræða flugstöð sem ekki er ætluð Íslendingum eingöngu en mun verða nýtt sem hernaðarmannvirki ef þurfa þykir. Íslendingar segjast vera friðelskandi þjóð og státa af því að bera ekki vopn að öðrum þjóðum. Á dögum Rómverja tryggðu menn friðinn með því að búa sig undir stríð. Í dag eru vopnin þess eðlis að eina leiðin til að tryggja frið er að búa sig undir frið, ekki stríð. Það er því andstætt hinni friðelskandi hefð Íslendinga að vígbúast á landi sínu jafnvel þó að óbeinlínis sé og í annarra nafni. Rödd Íslands á að hljóma í þágu friðar.

Kvennalistinn lýsir andstöðu sinni gegn hernaðarhyggju og öllum þeim framkvæmdum sem auka hernaðarumsvif hvar sem er í heiminum því þær stuðla að hinu stigvaxandi vígbúnaðarkapphlaupi.

Í þriðja lagi eru Íslendingar sjálfstæð þjóð, þjóð sem hefur endurheimt sjálfstæði sitt fyrir rúmum 60 árum eftir að hafa glatað því í sex og hálfa öld. Þetta sjálfstæði er verðmætt og vandmeðfarið, ekki síst vegna þess hve þjóðin er smá. Það hindrar ekki að við höfum þau samskipti sem eðlileg eru við aðrar þjóðir, en Kvennalistinn telur eðlilegt að við Íslendingar sem sjálfstæð þjóð byggjum okkar flugstöð sjálfir þegar við höfum ráð á því og þá af þeirri stærð sem eðlilegt þykir miðað við fólksfjölda, fjárþol og þá flugumferð sem búist er við. Í stað þess að verja því fé sem nú er ætlað í flugstöð mætti sinna ótal öðrum verkefnum sem Kvennalistinn telur mun brýnni og mikilvægari. Nægir þá að minna á sveltandi lánasjóð, dagvistarheimili, skóla, sjúkrahús, þróunarhjálp og margt, margt fleira mætti telja upp.

Hæstv. fjmrh. komst svo að orði hér á Alþingi í umr. um annað mál að bygging Seðlabankahússins væri orðin að tákni í hugum fólks um peninga sem fólkið héldi að væri til í landinu. Þessi flugstöð er annar stafur í þessu táknmáli sem ríkisstj. talar nú við þjóðina. Því segi ég við hæstv. fjmrh. eins og annar maður sagði við annan ríkisstarfsmann út af öðru húsi: Fjmrh. ríkisins, ekki meir, ekki meir.