01.02.1984
Neðri deild: 42. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2510 í B-deild Alþingistíðinda. (2193)
140. mál, lántaka vegna flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli
Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegi forseti. Það mætti margt um þetta mál segja, en afstaða okkar Alþb.manna til þess hefur komið fram við umræðu málsins og afgreiðslu í Ed., svo og í þeirri ræðu sem hv. 4. þm. Norðurl. e. flutti hér áðan og í þeirri till. til þál. sem liggur fyrir hv. Sþ. og hann er 1. flm. að.
Ég tel mjög athyglisvert við þessa umr., eins og raunar í sambandi við meðferð málsins til þessa, að frá Framsfl. heyrist nánar ekkert í þessu máli. Það er enginn þm. flokksins sem treystir sér til þess að skýra fyrir hv. Alþingi hvernig á því stendur að Framsfl. skuli hafa gengist undir það ok sem Sjálfstfl. reisti honum við myndun þessarar ríkisstj., að taka upp í stjórnarsamning samkomulag um byggingu flugstöðvar með þeim hætti sem hér er um að ræða. Ég trúi því varla að hv. þm. Framsfl. séu svo beygðir í þessu máli að þeir treysti sér ekki einu sinni til að koma hér upp í ræðustól við 1. umr. þessa máls í Nd. til þess að skýra hv. þingdeild frá því hvaða ástæður liggja til þess að þeir eiga hlut að þessu máli, eins og hér kemur fram, og skýri það hvernig þeir réttlæti þá röðun framkvæmda í flugmálum okkar sem fram kemur með þessum áformum.
Ég beini máli mínu m.a. til hv. 6. þm. Norðurl. e., Guðmundar Bjarnasonar, sem hér situr og er vel kunnugur fjármálum sem fulltrúi í fjvn. og átti hlut að þeirri fjárveitingu til flugmála sem ákveðin var með afgreiðslu fjárlagafrv. og samþykkt fjárlaga hér fyrir jólin. Ég held að það liggi fyrir að sú upphæð sem hér er verið að ákveða að tekin verði að láni til flugstöðvarbyggingar á Keflavíkurflugvelli sé 12–13 sinnum meiri en það fjármagn sem ákveðið er að ráðstafa til framkvæmda á flugvöllum landsins á komandi ári, öryggistæki sem aðrir framkvæmdaþættir brýnir sem þar blasa við. Ég skora á hv. 6. þm. Norðurl. e. að koma hér og skýra fyrir okkur hvernig hann ætlar að réttlæta það fyrir kjósendum sínum og umbjóðendum í Norðurl. e. að eiga hlut að þessu máli. Ef það eru aðrir hv. þm. Framsfl. sem vilja hlaupa í skarðið fyrir hv. 6. þm. Norðurl. e., t.d. hæstv. ráðherrar flokksins sem hér sitja, þá væri það út af fyrir sig ekki síðra.
En það er margt fleira sem er athyglisvert við þetta mál, þetta stóra mál, og þá m.a. það hvernig að ákvarðanatöku var staðið í þessu máli. Menn gætu haldið að við hér á Alþingi værum nú að fjalla um það hvort gera ætti bindandi skuldbindingar varðandi byggingu þessarar flugstöðvar og það færi eftir atkvæðum manna hér á hv. Alþingi hvort skuldbindingar verði gefnar um þessi efni. En svo er raunar ekki. Með því væri a.m.k. hnekkt þeirri skuldbindingu sem hæstv. utanrrh. undirgekkst og gerði með undirritun skuldbindandi samnings við Bandaríkjastjórn 5. júlí s.l. um byggingu einmitt þessarar flugstöðvar. Það var ekki haft fyrir því að leita til Alþingis um þetta mál áður en hæstv. utanrrh. lét sig hafa það á s.l. sumri að gera skuldbindandi samning um ekki minni upphæðir en hér er um að ræða. Þetta held ég að sé vert fyrir hv. alþm. að hafa í huga við meðferð þessa máls. Það ásamt mörgu öðru, sem gerst hefur eftir myndun þessarar ríkisstj., er lýsandi um það hversu stuðningslið hennar metur Alþingi, sem ekki var haft fyrir að kveðja saman að kosningum loknum þann 23. apríl s.l. til að fjalla um hin mikilsverðustu mál, heldur var þar beitt brbl.valdinu og gengið fram með þeim hætti sem hæstv. utanrrh. gerði við undirritun þessa samkomulags um flugstöð á Keflavíkurflugvelli.
Ég þarf ekki miklu við að bæta í sambandi við það hversu fráleit sú röðun og áhersla er sem birtist í þessu máli, þó að menn vildu fara út í það að reisa nýja flugstöð á Keflavíkurflugvelli, sem eðlilegt er að horft sé til í framtíðinni og nauðsynlegt að bæta þar aðstöðuna. Það hefur komið fram hjá okkur Alþb.-mönnum oft við meðferð þessa máls og liggur fyrir í þáltill., sem þm. flokksins hafa flutt á yfirstandandi þingi, að við erum því meðmæltir að reist verði flugstöð við hæfi á Keflavíkurflugvelli í samræmi við og felld að framkvæmdaáætlunum í okkar flugmálum.
Ég minni á það nú, þegar fjallað er um þetta mál, að heilir landshlutar búa þannig í flugmálum að ár hvert verða tafir á flugsamgöngum vegna þess að flugvellirnir eru þannig í stakkinn búnir að þeir verða eitt forarsvað þegar hlánar t.d. á vori. Og þarf ekki einu sinni vortímann til því þetta getur gerst eins vel um miðjan vetur ef bregður til hláku. Þannig er t.d. málum háttað á aðalflugvellinum á Austurlandi á Egilsstöðum. Hann hefur orðið ófær undanfarin ár æ ofan í æ af þessum sökum. Þar er nú ráðgert að leggja nýja flugbraut, svo sem nauðsynlegt er, flugbraut sem mun kosta 50 millj. kr., eða á bilinu 50–100 millj. kr. eftir því hversu stór áfangi verður tekinn. Ég tel að það sé ólíkt brýnni framkvæmd heldur en sú sem hér er verið að fitja upp á og ákvarðanir hafa þegar verið teknar um af hæstv. ríkisstj.
Þannig háttar til víðar en á Austurlandi. Það er hægt að fara um landshluta eftir landshluta til þess að finna verkefni sem ekki þola neina bið, öryggisverkefni í sambandi við okkar flugsamgöngur og nauðsynlegar framkvæmdir á flugvöllunum, framkvæmdir sem eiga að koma á undan nýbyggingu flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli. En ég endurtek það að við erum að sjálfsögðu þeirrar skoðunar, Alþb.-menn, að flugstöð þurfi að byggja þar, innan ramma áætlunar um flugframkvæmdir í landinu og án þess að farið verði í bónbjargaleit til Bandaríkjanna eins og gert er í sambandi við þetta mál.