01.02.1984
Neðri deild: 42. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2520 í B-deild Alþingistíðinda. (2202)
140. mál, lántaka vegna flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli
Guðrún Helgadóttir:
Virðulegi forseti. Ég ætla að leggja inn nokkur orð um þá tvo þætti sem þetta mál snýst um. Ég mun láta bókmenntir landsins liggja, mér er ekki sú andleg speki gefin í ræðustól, en ætla að snúa mér strax að hinum fyrri þætti þessa máls, sem er ákvörðun um að taka 616 millj. kr. erlent lán.
Lítum á hvað þessar tölur þýða, þessar 616 millj. sem byggja á fyrir flugstöð á Keflavíkurflugvelli, væntanlega til þess að við hinir efnaðri borgarar landsins höfum notalegri útleið og innleið þegar við þurfum að fljúga til útlanda, yfirgefa landið eða koma til þess aftur. Lítum á fjárlög fyrir árið 1984. Ég ætla að leyfa mér að minnast á nokkrar tölur í þeim. Þá skutu menn hafa í huga þær 616 millj. sem nú á að taka að láni.
Til framkvæmda á öllum flugvöllum landsins er gert ráð fyrir 51.3 millj. Til dagvistarheimila handa börnum landsins 31 millj. 640 þús. Til allra hafnarmannvirkja á landinu 110 millj. 300 þús. Til allra sjóvarnargarða landsins 6 millj. 835 þús. Til allra vöruflutninga og flóabáta 44 millj. 252 þús. Til allra íþróttamannvirkja í landinu handa æsku landsins 20 millj. 500 þús. Til allra grunnskólabygginga í landinu 115 millj. 450 þús. Það kostaði okkur nokkra þm. heilmikla fyrirhöfn að harka út sem brtt. við fjárlög 12 millj. til að veita aðstöðu til krabbameinslækninga á Íslandi svo ekki þyrfti að senda fárveika sjúklinga til útlanda. Til allra sjúkrahúsbygginga og heilsugæslustöðva í landinu á yfirstandandi ári 115 millj. Til Framkvæmdasjóðs fatlaðra í landinu 40 millj. Til Framkvæmdasjóðs aldraðra 61 millj. Ég skal upplýsa hæstv. fjmrh. um að þessar tölur allar saman ná ekki 616 millj., en þá upphæð ætlar nú fjmrh. að taka að láni erlendis og auka þannig við erlendar skuldir til þess að byggja flugstöð á Keflavíkurflugvelli. Ég held að hv. þm. ættu að athuga í alvöru hvað hér er á ferðinni. Ég hef sagt það áður og segi það enn: Ég virði til fulls þá atvinnustarfsemi sem fer fram í sambandi við flug á Keflavíkurflugvelli, en ég held ekki að bygging flugstöðvar sé brýnasta framkvæmd í landinu einmitt nú.
Framsfl. hefur löngum haft hin skondnustu rök fyrir sínu máli. Hv. þm. Guðmundur Bjarnason lýsti því áðan að þeir yrðu að fela þá smán sem hverjum heiðvirðum Íslendingi stafar af erlendu herliði á Keflavíkurflugvelli. Við Alþb.-menn þurfum ekki að segja það einu sinni enn að við kunnum aðrar og þekkilegri aðferðir til þess. Við getum falið þann her með því að senda hann heim til sín. (Fjmrh.: Og fá annan í staðinn.) Ekki hef ég haft neinar spurnir af því hæstv. ráðh., en gerði einhver annar her sig líklegan til að koma í staðinn býst ég við að við hefðum sömu afstöðu. (ÓÞÞ: Mundi hann hlýða?) Hvort hann mundi hlýða? Ég hef nú ekki, hv. þm., orðið vör við að hinn erlendi her sem hér er hafi hlýtt einu eða neinu, heldur látið hlýða sér.
En áfram með þá meðferð á fjármunum sem hér er um að ræða. Er svo þessi flugstöð, sem nú á að byggja fyrir 616 millj. kr. erlent lán, arðbær stofnun — stofnun sem skilar auknum tekjum í þjóðarbúið? Að sjálfsögðu ekki. Þau rök eru ekki einu sinni fyrir hendi. Ég hlýt þess vegna að spyrja hæstv. fjmrh., sem þekktur er af umhyggju sinni fyrir þeim sem minna mega sín og gat þess seinast í gærkvöld að hann hefði fullan skilning á að það mætti hækka laun hinna lægst launuðu upp í 12 þús. kr. Nú er það svo, að við dauðlegar verur, sem erum svo eyðslusamar eins og þekkt er, fáum ekki fram á það séð að undir nokkrum kringumstæðum sé hægt að lifa af 12 þús. kr. - ekki fyrir eina manneskju hvað þá séu fleiri í heimili. (Gripið fram í.) Ég býst við að hundamatur kosti upp í 12 þús. kr. á mánuði fyrir myndarlegan hund og vel við aldur. (Gripið fram í.) Hæstv. fjmrh. hefur haft afskipti af ýmsum mannúðarmálum og talað töluvert um þau. Ég hlýt að spyrja alveg hreint út og vil fá svar við því: Finnst fjmrh. sanngjarnt að Framkvæmdasjóður fatlaðra fái 40 millj. á meðan tekið er lán til flugstöðvarbyggingar upp á 616 millj.? Finnst hæstv. fjmrh. Framkvæmdasjóður aldraðra svo miklu ónauðsynlegri að rétt sé að hann fái 61 millj. á meðan tekið er lán að upphæð 616 millj. til að byggja flugstöð?
Ég held að hver heilvita manneskja hljóti að sjá fáránleikann í þessu. Enn sem komið er vinnur starfsfólkið á flugstöðinni alla sína vinnu. Hver einasti maður kemst til útlanda hvenær sem hann vill, hvernig sem viðrar og hvernig sem á stendur. Það er engin nauðsyn sem kallar á þessa framkvæmd einmitt nú. Ég á von á því, með þeirri glæstu framtíð sem bíður okkar vegna efnahagsaðgerða ríkisstjórnarinnar, að það verði leikur einn að byggja þessa flugstöð að nokkrum árum liðnum þegar búið er að hreinsa til eftir þær skelfilegu vinstri stjórnir sem hér hafa verið. Ég held að við hefðum öll þolinmæði til að bíða eftir því.
Ég hefði gjarnan viljað, hæstv. fjmrh., að stóra hjartað hefði slegið á allt annan hátt. Hugsum okkur að við hefðum viljað taka lán upp á 616 millj. í þágu þeirra málaflokka sem ég minntist á áðan. Það hefði verið gaman að spyrja þá Bandaríkjamenn, vini okkar, hvort þeir hefðu ekki verið tilbúnir til að leggja 616 millj. á móti til mannúðarmála. Það hefði ekki verið nema rétt mátulegt fyrir smábörnin og gamalmennin og konurnar sem þeir eru að myrða úti um allan heim, og nægir að nefna Mið- og Suður-Ameríku. Þá hefði ég kannske verið tilbúin að fallast á að hæstv. fjmrh. tæki erlent lán upp á 616 millj.
Ég held að hv. alþm. eigi að hætta að pexa hér um hvað ameríkanar eiga að borga, hvort herinn eigi að vera eða að fara, það liggur löngu ljóst fyrir, en við hljótum að krefjast hér svars við því fyrir hönd þjóðarinnar, sem borgar brúsann, hvort austur í fé í flugstöð, sem engan bráðvantar, sé virkilega með allra brýnustu málum þjóðarinnar í augnablikinu.