06.02.1984
Efri deild: 47. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2569 í B-deild Alþingistíðinda. (2241)
126. mál, skipun prestakalla
Landbrh. (Jón Helgason):
Hæstv. forseti. Á þskj. 161 er frv. til l. um breyt. á lögum nr. 35 9. maí 1970, um skipun prestakalla og prófastsdæma og um kristnisjóð. Efni þessa frv. er að lagt skuli niður annað prestsembættið í Vestmannaeyjum, en þar hefur aðeins verið einn prestur starfandi um allmörg undanfarin ár. Í stað þess komi annar farprestur til starfa að kirkjunni. Annist hann þá prestsþjónustu í Vestmannaeyjum í forföllum sóknarprests. En eins og okkur er kunnugt er þar nokkur sérstaða þar sem mjög erfitt er fyrir nágrannaprest að gegna þar forfallaþjónustu og því nauðsynlegt að leysa það mál á annan hátt. Hins vegar nýtist slíkur farprestur þá víðar á landinu þegar á þarf að halda.
Það eru eindregin meðmæli með þessari breytingu frá Kirkjuþingi og Kjalarnesprófastsdæmi. Það var reiknað með að unnt yrði að afgreiða þetta frv. fyrir áramót og þess vegna er 3. gr. þess á þá leið að lög þessi öðlist gildi 1. jan. 1984. Ég vil biðja þá nefnd sem fær þetta mál til meðferðar að athuga að þarna mun þurfa breytinga við og þau öðlist þá gildi þegar við samþykkt eða þá einhvern tíma síðar en 1. jan. 1984.
Að svo mæltu legg ég til að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og hv. menntmn.