06.02.1984
Efri deild: 47. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2570 í B-deild Alþingistíðinda. (2243)
153. mál, höfundalög
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Hæstv. forseti. Frv. til breytinga á höfundalögum, sem hér liggur fyrir, er samið af höfundaréttarnefnd sem skipuð var samkv. 58. gr. höfundalaganna nr. 73 frá 1972. Í höfundaréttarnefnd eru nú Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður, Sigurður Reynir Pétursson hæstaréttarlögmaður, Björn Bjarman lögfræðingur og rithöfundur, Gaukur Jörundsson prófessor, Knútur Hallsson ráðuneytisstjóri og Sólveig Ólafsdóttir stjórnarráðsfulltrúi. Nefndin hefur verið undir forustu dr. Gauks Jörundssonar.
Þetta frv. skiptist í tvo meginþætti. Annars vegar er um að ræða álagningu svonefnds höfundaréttargjalds á auð hljóð- og myndbönd ásamt tækjum til upptöku á slík bönd. Hins vegar eru í frv. tillögur um breytingar á réttarfars- og refsiákvæðum höfundalaganna. Hér verður á eftir fjallað um hvorn þáttinn fyrir sig, en bent skal á að með frv. er allítarleg grg. sem hefur m.a. að geyma ýmsar tölulegar upplýsingar sem máli skipta í þessu sambandi.
Ég vík þá fyrst að höfundaréttargjaldi.
Það er hlutverk og efni höfundalaga að veita mönnum réttarvernd á tilteknum andlegum verðmætum, bókmenntum og listum. Þegar höfundur hefur skapað tiltekið verk er honum veittur réttur til að hafa af því fjárhagslegar nytjar. Í þessu skyni er höfundi m.a. veittur einkaréttur til eftirgerðar á verkinu eða margföldunar á því og einnig er honum einum heimil birting verks í upphaflegri mynd eða breyttri í þýðingu og annars konar aðlögun, sbr. 3. gr. höfundalaganna. Veigamesta undantekningin frá meginreglu 3. gr. laga um einkarétt höfundar til að gera eintak af verki sínu er í 11. gr. laganna. Þar er leyfð eintakagerð án samþykkis höfundar og endurgjalds til hans ef eintökin eru höfð til einkanota eingöngu. Enginn má þó gera eða láta gera fleiri en þrjú slík eintök til notkunar í atvinnu sinni.
Undantekningarheimildin er bundin takmörkunum. Bann er lagt við mannvirkjagerð eftir verki sem nýtur verndar eftir reglum um byggingarlist og eigi má leita aðstoðar annarra við eftirgerð verka sem njóta verndar samkv. reglum um höggmyndalist, nytjalist eða dráttarlist. En nú er það svo, að tækniþróun síðustu ára hefur auðveldað alla eintakagerð svo mjög að þeir sem eiga hagsmuna að gæta telja helsta tekjustofni sínum verulega ógnað. Á það jafnt við um höfunda sem flytjendur, útgefendur og framleiðendur hljóð- og myndrita ýmiss konar. Eintakagerð, sem áður þurfti töluverðrar sérkunnáttu við, hefur í seinni tíð orðið æ auðveldari með aðstoð nýrra og fullkominna upptökutækja sem fólk getur notað fyrirhafnarlítið á heimilum sínum. Eftir því sem eintakagerðin flyst í ríkari mæli frá höfundum og útgefendum inná heimilin verða höfundar af hefðbundnum og réttmætum greiðslum fyrir afnot hugverka sinna.
Má sem dæmi um þetta nefna þróun í hljómplötuútgáfu hér á landi. Á undanförnum árum hefur upplag góðrar hljómplötu minnkað úr því að vera 5–6 þús. eintök í 3000–3500 eintök. Hljómplata kostar nú um það bil 400 kr., en góð 60 mínútna kassetta aðeins 100– 120 kr. Er því um augljósan sparnað að ræða og mikil freisting fyrir fólk að taka upp á nokkrar kassettur eftir plötunni og nota síðan aftur og aftur. Sömu möguleikar eru fyrir hendi um myndbönd.
Mikið hefur verið rætt og ritað um hvernig bæta megi höfundum þann fjármissi sem af margumræddri tækniþróun hefur leitt, og niðurstaðan hefur víðast hvar orðið sú, að sanngjarnasta leiðin væri lögfesting sérstaks gjalds á auð hljóð- og myndbönd og tæki sem ætluð eru til upptöku efnis á slík bönd. Hefur þetta gjald verið nefnt höfundaréttargjald þar sem því er ætlað að bæta höfundi tjón hans af tækni sem hann hefur enga möguleika á að ráða við.
Grunnhugsunin á bak við réttindi þau sem höfundi eru veitt í höfundalögum er sú að gera honum kleift að lifa af verkum sínum. Það er þýðingarlaust að segja höfundinum að hann geti séð við tækninni í upphafi og gert kröfu til höfundalauna í samræmi við mögulega notkun verksins. Slíkar kröfur geta gert útgefendum og framleiðendum ókleift að koma hugverkunum á framfæri í upphafi vegna gífurlegs kostnaðar. Mundi slíkt valda óhæfilega háu verði, t.d. á bókum og hljómplötum, en gera ólöglega eftirgerð enn þá eftirsóknarverðari og gróðavænlegri. Má þá búast við að á endanum sjái höfundar engan tilgang í því að koma verkum sínum á framfæri sem síðan gæti haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar.
Af þeim samanburði sem hér hefur áður verið gerður á verði hljómplatna og kassetta er augljóst að það munar ekki öllu fyrir kaupendur kassettanna hvort þær kosta t.d. 10–20 kr. meira eða minna, en það getur skipt sköpum fyrir rétthafana og því er þetta frv. nú lagt fram.
Í 1. gr. frv. er gert ráð fyrir að við 11. gr. gildandi höfundalaga bætist tvær nýjar málsgr. Hin fyrri veitir höfundum verka sem útvarpað hefur verið eða gefin hafa verið út á hljóðriti eða myndriti rétt til sérstaks endurgjalds vegna upptöku verka þeirra á hljóð- eða myndbönd til einkanota. Til þess að standa straum af slíku endurgjaldi skal lagt gjald á tæki til upptöku verka á hljóð- og myndbönd, svo og á auð hljóð- og myndbönd og önnur bönd sem telja má ætluð til slíkra nota. Gjaldið skal greitt af tækjum og böndum, sem flutt eru til landsins eða framleidd eru hér á landi, og hvílir skylda til að svara gjaldi þessu á innflytjendum og framleiðendum. Um viðmiðun gjaldsins, fjárhæð þess og annað því viðkomandi skal sett reglugerð að höfðu samráði við heildarsamtök rétthafa svo og innflytjendur og framleiðendur.
Síðari mgr. 1. gr. frv. gerir ráð fyrir að samtök rétthafa, þar á meðal listflytjenda og framleiðenda, stofni sérstaka innheimtumiðstöð sem innheimti höfundaréttargjaldið. Skulu innheimtumiðstöðinni settar samþykktir í samvinnu við menntmrn. og þær staðfestar af rn. Verður í samþykktum þessum m.a. ákveðin skipting tekna með aðildarfélögum sem síðan sjá um úthlutun til sinna félagsmanna, en svo segir um þetta í grg. frv. á bls. 8 í lok þess kafla sem fjallar um 1. gr., með leyfi hæstv. forseta:
„Áskilnaður í 2. mgr. 1. gr. frv. um staðfestingu menntmrn. á samþykktum innheimtumiðstöðvar er í samræmi við gildandi lög og reglur um hin löggiltu höfundaréttarfélög, þ.e. STEF, SFH og Rithöfundasamband Ístands, á þá leið að samþykktir þeirra séu háðar staðfestingu rn. Þá er ákvæðið um framlög í úthlutunarsjóð hliðstætt ákvæðum í samþykktum höfundaréttarfélaganna.“
Þessi leið út úr þessum vanda hefur víða verið farin og það eru nefnd dæmi um það einnig á bls. 5 í grg. með frv. Þar eru einnig fróðlegar upplýsingar um umfang upptöku til einkanota samkv. könnunum sem gerðar hafa verið.
Þá vík ég að síðara aðalatriðinu, um réttarfarsákvæði og viðurlög.
Á sama hátt og hröð tækniþróun gerir álagningu höfundaréttargjalds nauðsynlega verður hún einnig til þess að taka verður réttarfarsákvæði og refsiákvæði höfundalaga til endurskoðunar. Samkv. ákvæðum gildandi höfundalaga verður sá sem misgert er við að höfða mál þegar réttur er á honum brotinn. Á þeim tíma sem höfundalögin voru samin voru höfundaréttarbrot tiltölulega smáfelld miðað við stórfelldari brot sem hin nýjasta tækni gerir möguleg. Umfangsmikil og skipulögð brot á höfundarétti eru orðin alþjóðlegt vandamál sem hefur reynst erfitt viðureignar. Í grg. frv. á bls. 6– 7 er fjallað um þennan vanda, en þar segir m.a., með leyfi hæstv. forseta:
„Að tilhlutan Alþjóðasamtaka hljóð- og myndritaframleiðenda (IFPI) var fyrir nokkru rannsakað, hvert væri umfang þessara lögbrota. Niðurstaða rannsóknarinnar benti til þess, að söluverðmæti ólöglegra hljóðrita næmi milti 1 og 1.2 millj. Bandaríkjadollara eða sem svarar 10% af heildarsöluverðmæti hljóðrita á markaði í heiminum.“
Og síðar segir í grg. um sama efni: „Alþjóðleg samtök höfunda og annarra rétthafa og alþjóðastofnanir á sviði höfundaréttar, svo og Interpol, hafa látið þessi mál mjög til sín taka og gert tillögur um aðgerðir til að hamla á móti þessum skefjalausu lögbrotum.“
Það er ljóst að hér á landi sem annars staðar eru möguleikar á umfangsmiklum brotum á rétti höfunda með ólöglegri hljóðritun á kassettur sem síðan er hægt að selja með miklum hagnaði. Hið sama á við um myndböndin. Í skýrslu myndbandanefndar frá 3. des. 1981 er fullyrt að hér á landi eigi sér stað stórfelld brot á höfundarétti og réttindum ýmissa aðila samkv. V. kafla höfundalaganna. Taldi nefndin brýna þörf úrbóta í þessu efni.
Nú á allra síðustu árum hafa myndbandaleigur sprottið upp víða. Að sjálfsögðu starfa þær flestar á fullkomlega löglegan hátt, en því hefur verið haldið fram með nokkrum rökum að hér á landi eigi sér stað ólögleg fjölföldun á myndbönd og mikill ólöglegur innflutningur myndbanda eða að því eru færð töluverð rök að þetta eigi sér stað.
Þeir sem réttar síns hafa þurft að reka í þessu efni eiga alls ekki nægilega greiða né áhrifaríka leið til réttarvörslu. Þannig er við núverandi aðstæður hvorki kostur lögreglurannsóknar né ýmissa úrræða sem völ er á í opinberum refsimálum, svo sem haldi muna, leit eða beitingu gæsluvarðhalds. Hafa því rétthafar sem gert hafa samninga í samræmi við alþjóðareglur um höfundarétt og fara að lögum átt í miklum erfiðleikum með að ná rétti sínum. Rétt er að hafa í huga að samkv. alþjóðasáttmálum, bæði Bernarsáttmálanum og alþjóðasamningi um höfundarétt, Genfarsáttmálanum frá 1952, hefur Ísland skuldbundið sig til að virða höfundarétt að verkum frá þeim þjóðum sem eru aðilar þessara samninga. Það er því ekki forsvaranlegt annað en að auðvelda þeim sem réttinn eiga að sækja hann fyrir íslenskum dómstólum.
Í frv. er því lagt til að farin verði svipuð leið hér og gert hefur verið hvarvetna á Norðurlöndum að Danmörku frátalinni, en þar í landi hafa einnig komið fram tillögur um breytingar í átt til opinbers réttarfars í höfundaréttarbrotum. Í 8. gr. frv. er gert ráð fyrir að brot á höfundalögum sæti opinberri ákæru. Ekki er þó um skilyrðislausa opinbera saksókn að ræða, heldur einungis að kröfu þess sem misgert er við og er honum ætíð heimil venjuleg málshöfðun.
Að lokum skal minnst á viðurlögin. Samkv. 54. gr. gildandi höfundalaga varða brot á þeim sektum eða varðhaldi allt að þrem mánuðum. Í 5. gr. frv. er gert ráð fyrir að brot á höfundalögum varði sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að tveim árum. Refsiviðurlög eru því hert og er það gert bæði til að auka varnaðaráhrif þeirra svo og til að greiða götu rannsóknar höfundaréttarbrota, sérstaklega að unnt verði að beita gæsluvarðhaldi eða öðrum þvingunarráðstöfunum í þágu rannsóknar alvarlegra brota.
Um aðrar greinar í frv. er það að segja að í þeim eru gerðar ýmsar lagfæringar á lögunum, sem leiða af þeim meginbreytingum sem hér hafa verið raktar.
Ég leyfi mér, hæstv. forseti, að leggja til að þessu máli verði að lokinni umr. vísað til 2. umr. og hv. menntmn.