06.02.1984
Efri deild: 47. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2576 í B-deild Alþingistíðinda. (2248)

153. mál, höfundalög

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég vona að ég hafi náð spurningu hv. 5. landsk. þm. rétt, en hún er sú, hvort ég muni greiða því atkv. að gjald skuli innheimt af böndum og upptökutækjum sem flutt verða til landsins. Ég vil fyrst segja að hv. þm. og þm. almennt mega ekki útfæra afsagnarhótanir mínar yfir á allt sem til umr. er hér þegar ég tala um að ég eigi kannske ekki marga klukkutíma eftir í ráðherrastól hef ég í huga þann ramma sem Alþingi hefur samþykkt og birtist í fjárlögum. Þegar ég hef sagt að ég mundi ekkí standa að auknum sköttum hef ég átt við hefðbundna skatta sem hafa verið hækkaðir nokkuð reglulega eftir því sem eyðsla ríkisins eða útgjöld hafa aukist frá ári til árs.

Við skulum á hinn bóginn hafa í huga að við erum hér að ræða um nýja tækni sem er að ryðja sér til rúms og er enn þá ekki búin að slíta barnsskónum og á eflaust eftir að þróast mjög mikið á tiltölulega skömmum tíma. Það eru hraðar framfarir á þessu sviði og hin nýja tækni kallar á nýjar ráðstafanir og ákvarðanir. Það gerir að verkum að líka er kallað á aukið álag á gjaldeyrisforða okkar. Allt er þetta keypt fyrir erlendan gjaldeyri sem þjóðin aflar. Gjaldeyrisforðinn hefur hingað til verið álagningarliður í innflutningi og þjóðfélagið hefur stólað á þær tekjur. Ég sé ekki að við getum orðið af innflutningstekjum sem við öflum þannig af þessum nýju tækjum og nýju myndböndum, hvort sem það eru hljóð- eða myndsegulbönd. Ég tel eðlilegt að sá gjaldeyrir sem fer í innkaupin skili því sem gjaldeyririnn skilaði áður — eða nokkurn veginn því sama — til þjóðfélagsins.

Ég mun nú greiða þessu atkv. og án hótunar um afsagnir, svo að það sé nú alveg ljóst, og tel að þessi fsp. hafi verið óþörf vegna þess að þetta er stjfrv.