06.02.1984
Efri deild: 47. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2583 í B-deild Alþingistíðinda. (2256)
150. mál, fæðingarorlof
Helgi Seljan:
Virðulegi forseti. Ég vil taka það fram í upphafi að hér er tvímælalaust um eitt þýðingarmesta mál þessa þings að ræða, sem vissulega verðskuldar vandaða skoðun og athugun. Í þessu frv., sem nú hefur verið gerð góð grein fyrir, er um tvíþættan megintilgang að ræða. Annars vegar um jöfnunina á réttindunum, hins vegar um lenginguna á þessum réttindum.
Á þessu stigi vil ég ekki tjá mig afdráttarlaust um hið síðara sem í raun er þó kannske meginatriði þessa frv. Ég á þar við hversu langur tími hér skuli gilda, fjórir mánuðir þegar við gildistöku laganna en sex mánuðir síðar. Vissulega er hér um æskilegt markmið að ræða, ég tek fyllilega undir það. Ég þykist hins vegar vita að ýmsum þyki langt gengið. Um það má líka deila hvar skynsamlegast og eðlilegast sé að draga þessi mörk og hversu langt skuli ganga. Þar vegur hinn almenni kostnaðarþáttur vissulega þungt. Ég dreg þó ekkert úr því að sá þáttur á ekki að vera ráðandi í þessu efni. Hins vegar er þetta mál sem önnur velferðar- og félagsleg málefni þess eðlis, að það hlýtur að skoðast í ljósi annarra mátefna einnig og hlýtur að varða, eins og hv. flm. kom inn á, röðun um forgangsverkefni. Forgangsverkefni, sem þota enga bið, og síðan æskileg úrlausnarefni sem þoka ber fram í réttlætis- og velferðarátt.
Hv. flm. vék að þeim tímum sem við erum sögð lifa á núna, kreppu- og samdráttartímum sem við sjáum sums staðar greinilega merki um en annars staðar ekki, eins og hv. flm. kom réttilega inn á, þegar við þessa dagana erum að fjalla um mál hér á þinginu sem varðar stórkostlegt tekjutap ríkissjóðs. En vitanlega er þar einvörðungu um það að ræða að verið er að færa til fjármagnið í þjóðfélaginu á þann hátt sem þessi hæstv. ríkisstj. stefnir að. Volæðishjalið er reyndar orðið svo áberandi í umræðunni allri að það er auðvitað engin tilviljun. Það er notað til þess að þrýsta niður lífskjörum. En það er ekki síður notað til þess, og á það legg ég áherslu varðandi þetta mál sem önnur almenn velferðarmál, þetta volæðishjal er beinlínis notað til þess að má út eða draga sem allra mest úr ýmsum þeim félagslegu ávinningum sem hafa þó náðst á síðustu árum. Til þess eru refirnir skornir fyrst og síðast með öllu því votæðiskjaftæði, sem mig langar til að nefna svo, sem nú veður yfir þessa þjóð. Og þegar að því er stefnt af hæstv. núv. ríkisstj. leynt og ljóst að færa fjármagn þannig til, þá hljótum við líka, jafnframt því sem við reynum að þoka félagslegum réttlætismálum fram á við, að verja áunnin réttindi sem verðmætust eru þeim sem minnst hafa.
Ég dreg engan veginn úr mikilvægi þess þáttar sem þetta frv. fjallar um. Ég tek undir fjölmargt í rökum og málflutningi hv. flm. Hér er um aðkallandi verkefni að ræða. Við þurfum einnig að gera varðandi þetta verkefni nauðsynlegan samanburð við önnur verkefni þannig að þetta óneitanlega stóra stökk fram á við í fæðingarorlofsmálum sé valið umfram annað. Hv. flm. flutti fyrir því glögg rök hér áðan. Ég get tekið undir þau en jafnframt nefnt ýmis önnur velferðarmálefni okkar sem vissulega þarf að taka til athugunar jafnframt. Ég vil að því hyggja og skoða með jákvæðu hugarfari m.a. hversu langt er unnt að ganga, og það legg ég áherslu á, án þess að það komi þá niður á öðrum. Ég óttast, miðað við það hugarfar sem nú virðist ríkja, að ef menn ná eitthvað lengra á einu sviðinu sé það látið bitna á öðrum þýðingarmiklum málaflokkum.
Þennan jákvæða fyrirvara vil ég hafa nú, einkum þar sem hugmyndirnar sem á lofti eru nú í þjóðfélaginu eru með mjög neikvæðum formerkjum, hvort sem er í heilbrigðis-, trygginga- eða félagsmálum. Stefnumiðið sem slíkt er hins vegar sjálfsagt og við það get ég lýst fyllsta stuðningi.
Að öðru leyti vil ég endurtaka að þarna er um stórt og þýðingarmikið mál að ræða sem vissulega ber að skoða vandlega og fá á sem farsælasta lausn. Auðvitað eigum við að stefna að því að vera ekki með þessar eilífu áfangalausnir, sem við höfum verið með, heldur reyna að finna á þessu máli frambúðarlausn þó hún verði kannske seint fundin svo að allir séu ánægðir og öllum þyki viðunandi. Saga þessa máls er vissulega saga áfanga, vissra áfangasigra, nokkurra sigra, en sannarlega þarf þar að ýmsu að hyggja, og raunar kom það fram í ágætri og greinargóðri framsögu hvernig þessi mál höfðu gengið til áður og hvaða misrétti ríkti í dag í þeim efnum.
Fyrsta lausnin var, eins og menn þekkja, bundin við Atvinnuleysistryggingasjóð með þeirri stífu viðmiðun vinnutekna sem þar var. Sú lausn var vissulega til mjög verulegra bóta fyrir stóran hóp í þjóðfélaginu, en málið var í grundvallaratriðum ranglega upp sett. Ég lýsti því yfir hér þá þegar. Útilokunin, hin algera útilokun sem í því fólst, var vitanlega stærstur annmarki á þeirri lagasmíð. Sá áfangi sem við stöndum nú andspænis sem staðreynd er að vísu miklu rýmri og alger útilokun er þar ekki á ferðinni, en veruleg mismunun vissulega. Og enn er það tekjumarkið sem ræður hér mestu. Á sínum tíma var mjög um þetta fjallað og viðmiðunin var alveg sér í lagi til umræðu. Ég man glöggt að við, sem vildum þá ganga lengra án þess að stíga jafnvel skrefið til fulls jafnaðar, mættum ýmsum mótrökum sem uppi voru höfð. Og ég efast ekki um að þau verði höfð uppi nú alveg eins og þá.
Grunninntakið hlýtur að vísu að vera það sem hv. flm. talaði um. Það hlýtur að vera fólgið í þeim möguleikum sem orlofið veitir foreldrum til samskipta við börn sín, til umönnunar barna sinna á þessu viðkvæma stigi. Það getur ekki verið, eins og margir hafa haldið fram, að grunni til beint framfærsluatriði. Hitt hlýtur að vera grunninntakið þó að framfærsluatriðið spili vissulega hér inn í og hafi m.a. verið notað til þess að skapa þá mismunun sem í þessum lögum felst í dag.
Það hafa þar af leiðandi alltaf verið uppi raddir sem hafa bent á möguleika hinna heimavinnandi foreldra, ef við orðum það þannig, til að vera hjá barni sínu án teljandi tekjutaps og annarrar röskunar. Þessar röksemdir höfum við heyrt hér í þinginu. Nú sé ég að hv. þm. Davíð Aðalsteinsson horfir á mig alvarlegum augum. En svo miklu lengra man ég þó en hann, að þær röksemdir voru svo sannarlega uppi hafðar hér. Þannig hafa hinar heimavinnandi húsmæður orðið um of út undan. En staðreyndin er oftast sú, að þær hafa ekki vegna sinna heimilisaðstæðna, m.a. ómegðar eða veikinda, komist út á vinnumarkaðinn og þar af leiðandi aldrei náð neinum vinnutekjum, einfaldlega af því að það var þeim útilokað. Þær komust ekki í þá aðstöðu. Ég nefni bændakonur, sem hafa verið nokkrum sinnum til umræðu hér, konur í sveit, sem hafa goldið þess t.d., ekki að þær hafi ekki unnið nóg utan heimilisins, þ.e. við þá atvinnugrein sem þær stunda, heldur að hlutur þeirra í vinnuframlagi búsins hefur verið herfilega vanmetinn. Svo mætti áfram telja.
Vissulega ber okkur að ganga braut jafnréttis og jafnaðar til enda í þessu þýðingarmikla máli. Ég rifjaði upp í gærkvöld orð mín úr fyrri umr. um þessi mál þar sem ég m.a. lýsti síðustu lausn sem mikilsverðum en síður en svo fullnægjandi áfanga.
Hv. flm. gerði mjög góða grein fyrir kostnaðarhlið þessa frv. Mætti hæstv. ríkisstj. svo sannarlega nokkuð af því læra, því að hún leggur hér fram frv. sem bæði valda tekjumissi hjá ríkissjóði og útgjaldaaukningu án þess að hirða hið minnsta um að gera tilraun til að gefa þingheimi upplýsingar um hvað slíkt muni hafa í för með sér í tekjutap eða útgjaldaaukningu fyrir ríkissjóð. Vissulega er hér um að ræða talsverðar upphæðir, en ég tek líka undir það, að það eru upphæðir sem vissulega má færa full rök fyrir að sé vel varið, því að í fátt er okkar fjármunum betur varið en til þessa verkefnis, og þá fyrst og síðast ef það mætti verða til þess að auka hamingju fólks og lífsfyllingu í þessu þjóðfélagi streitu og lífsgæðakapphlaups.
Það væri freistandi að kalla hæstv. félmrh. hingað og inna grannt eftir afstöðu hans og hæstv. ríkisstj. í þessu máli. Ég þykist vita að hv. 5. þm. Vesturl., Davíð Aðalsteinsson, svari fyrir hann nokkurn veginn í því efni. Ég nefni hæstv. félmrh. sakir tillöguflutnings hans og málflutnings á s.l. þingi varðandi jöfnuð í þessum efnum. Þar var þetta mál sett á oddinn og síðan gert að meiri háttar kosningarmáli hans flokks svo að við, sem höfðum kannske haft öllu meiri sýnilegan áhuga á því, lentum jafnvel í varnarstöðu út af þessum sýndartillöguflutningi sem ég vil kalla. Ég minnist þess ekki, það kann að vera misskilningur, en ég minnist þess ekki að sjá þetta mál á lista hæstv. ríkisstj. yfir þau mál sem hún hyggst koma fram á þessu þingi. Nú leiðréttir hv. þm. Davíð Aðalsteinsson mig ef mig rangminnir. Þetta mál er kannske efst á óskalistanum, en ég man ekki eftir að hafa séð það þar. Og ríkisstj. ræður hér ferðinni sem í öðrum málum, þessi ríkisstj. alveg sérstaklega, því að hún er einhvern veginn þannig gerð að hún þykist lítið þurfa að spyrja þingið hvernig málum sé háttað, a.m.k. mjög lauslega, ef hún gerir það.
Hins vegar skal ég ljúka þessu máli mínu með yfirlýsingu um að hér er um þarft mál og gott að ræða. Það er mikils vert sem þáttur í almennri velferð þjóðfélagsþegnanna og við þurfum, þrátt fyrir minn fyrirvara sem ég gerði á þessu stigi, að stefna sem allra lengst bæði til aukningar og jafnaðar. Því ber að fagna þessu frv. og stuðla að vandlegri athugun og sem jákvæðastri afgreiðslu þess.