07.02.1984
Sameinað þing: 44. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2611 í B-deild Alþingistíðinda. (2278)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman til fundar og kannað kjörbréf fyrir Siggeir Björnsson, Holti í Kirkjubæjarhreppi, sem er 1. varaþm. Sjálfstfl. í Suðurlandskjördæmi, en eftir því er óskað að hann taki um sinn sæti Eggerts Haukdals á Alþingi. Eggert Haukdal er 6. þm. Suðurl.

Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréfið og ekkert séð athugavert, hvorki við það né kosninguna. Leggur því kjörbréfanefnd til að kjörbréfið verði samþykkt.