07.02.1984
Sameinað þing: 44. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2612 í B-deild Alþingistíðinda. (2281)

408. mál, sumarbústaðir að Hellnum

Fyrirspyrjandi (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti. Þann 29. des. 1981 kunngerði ríkissaksóknari að höfða bæri opinbert mál fyrir sakadómi Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu á hendur fjórum einstaklingum sem höfðu valdið eignaspjöllum skv. 1. málsgr. sbr. 2. málsgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19 frá 1940. Málavextir voru að þeir höfðu í sameiningu laust upp úr miðnætti aðfaranótt fimmtudagsins 24. júlí 1980 eyðilagt undirstöður fimm sumarbústaða sem Landssamband íslenskra útvegsmanna hafði hafið byggingu á í landi jarðarinnar Skjaldartraðir í Breiðavíkurhreppi. Undirstöðurnar voru steinsteyptar súlur í plasthólkum, allt að 7 tommur í þvermál, eins og þar segir, 20 súlur undir hverju húsi, sem ákærðu rifu upp með dráttarvélum eða brutu og fleygðu síðan í opinn skurð á byggingarsvæðinu.

Samkvæmt ákæru þessari var þess krafist að ákærðu yrðu dæmd til refsingar og til greiðslu skaðabóta og alls sakarkostnaðar. Sama dag og þetta var kunngert var sýslumanni Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu skrifað frá skrifstofu ríkissaksóknara og honum sent endurrit úr sakadómsbók ásamt ákvörðun ríkissaksóknara, hvar segir og að þess sé krafist að sýslumaður ljúki rannsókn mátsins og taki það síðan til dómsálagningar samkvæmt meðfylgjandi ákæru.

Vegna þessa hef ég, herra forseti, leyft mér að leggja fram fsp. hér í hæstv. Sþ. og hljóðar hún á þessa leið, með leyfi forseta:

„Hvað líður máli því sem ákæruvaldið höfðaði gegn aðilum sem eyðilögðu undirstöður að sumarbústöðum Landssambands ísl. útvegsmanna að Hellnum á Snæfellsnesi í júlí 1980?“